Vísir - 11.11.1981, Blaðsíða 12
Miövikudagur 11. nóvember 1981
12
VlSIR
SNVRTING -
fræðsla:
Linumar lagðar fyrir veturinn
1 byrjun vetrar ár hvert er að
ýmsu að huga. Linurnar fyrir
veturinn eru lagðar á ýmsum
sviðum til dæmis aliar tiskulinur.
Vetrarfatnaður, hárgreiðsla og
snyrting eru hlutir sem breyti-
legir eru frá ári til árs og þvi
keppast viðkomandi aðilar, er
vilja kynna nýjungar á sinu sviði,
við að koma nýjungum fyrir sjón-
ir almennings.
Nýlega héldu snyrtifræðingar
sitt árlega fræðslu- og skemmti-
kvöldá HótelSöguað viðstöddum
fjölda gesta. Þar fór fram
kynning á nýjum snyrtilinum og
ellefu snyrtivörufyrirtæki kynntu
vörur sinar, i sérstökum
kynningarbásum. Einnig sýndu
snyrtifræðingarhæfnisina á fleiri
i en einu sviði, þvi auk þess sem
þeir snyrtu og fegruðu, sýndu
þeir lika skemmtilegan fatnað frá
Elónni, en sá fatnaður tilheyröi
eldri linunni.
—ÞG.
Tiskufatnaðurinn sem snyrtifræðingar sýndu var af eldri gerðinni — og
vakti mikla hrifningu.
Sigriður Guöjónsdóttir snyrtifræðingur sýnir viðstöddum iistafagurt „Fantasiu make-up” á modeli sinu
Heiðar Jónsson kynnir í baksýn.
Þau stððust prðfið
Fyrir rúmum mánuði Utskrif-
uðust 10 manns i sýningar- og fyr-
irsætustörfum frá Karon-skólan-
um. Þetta unga sýningarfólk sem
á myndinni er ásamt skólastjóra
og aðalkennara skólans Hönnu
Frimannsdóttur, stóðst prófið
með glæsibrag. Aður en til prófs
kom hafði unga íólkið sótt nám-
skeið f skólanum og þeir sem
komast á slik námskeiö þurfa að
hafa fleira til aö bera en fallegt
útlit. Annaö verður lika að vera
með i myndinni svo sem persónu-
leiki, hreyfingar og myndhæfni.
Auk fimm manna dómnefndar
voru margir gestir viðstaddir
prófraun þessa hóps, verðandi
sýningarfólks, en frumraun
þeirra lofar góðu. Við þetta tæki-',
færi lét Hanna Frfmarmsdóttir
skólastjóri þess getið að framtið-
arstefna Karonsamtakanna, sem
eru samtök sýningarfólks, væri
að halda fáar en sérstæðar og
vandaðar tiskusýningar. Tilgang-
urinn væri að gera tiskusýningar
að sérstökum viðburði i stað
skemmtiatriðis á almennum
dansleikjum vinveitingahiisanna.
í kynningarbásnum var margt sem vakti forvitni gestanna
íeldhúsinu
Um siðustu helgi hélt klúbbur
Matreiðslumeistara kynningu á
islenskum og erlendum matvæl-
um i B’élagsheimilinu á Sel-
tjarnarnesi. Er þetta i fyrsta
skipti sem klúbburinn stendur
fyrir sýningu af þessu tagi, en
mun siður sem þessi tiðkast hjá
matreiðslumeisturum viða
erlendis. Markmið klúbbsins er
að stefna að aukinni fræðslu i
matargerðarlist og auknum
gæðakröfum neytenda á
islenskum landbúnaðar- og
sjávarafurðum. Ekki var annað
að sjá á sýningunni um helgina
en að bæði innlendir framleið-
endur og innflytjendur, sem
kynntu fullunnar matvörur og
hráefni til matargerðar með
bragðprufum, væru á sömu
braut og matreiðslumeistararn-
ir.
Á blaðamannafundi sem hald-
inn var rétt fyrir opnun
sýningarinnar, kom fram i máli
Jóns Sigurðssonar formanns
klúbbs Matreiðslumeistara, að
ýmislegt mætti betur fara
varðandi islenskt hráefni, bæði
kjöt og fisk. Vafalaust má taka
undir þau orð formannsins, en
sýningin um helgina var
sannarlega rétt spor i áttina og i
anda klúbbsins til að auka
fræðslu varðandi mat og matar-
gerðarlistina og einnig til að
stuðla að auknum gæðakröfum
neytenda.
Matreiðslumeistararnir höfðu
á boðstólum girnilegar krásir,
gerðar af meistara höndum.
Sýnendur, innflytjendur mat-
væla og innlendir framleiðendur
höfðu einnig ýmislegt gott i
munn að gefa gestum sýningar-
innar. Einn innlendra framleið-
enda var fyrirtækið Islenskir
sjávarréttir, sem kynnti ótal
sildarrétti. Uppskriftirnar
samdi Þórunn I. Jónatansdóttir,
sem eitt sinn var einmitt
eldhúsmeistari Visis. Látum við
eina af sildaruppskriftum
hennar á eldhúsborðið i dag.
Sænskt sildarsalat
Uppskrift fyrir 6-8
B’ljótlagað, en biðtimi 3 klst.
Salat
6 kryddsildarflök
3 soðnar kartöflur
220 g sýrðar rauðrófur
200 g sýrðar agúrkusneiðar
1 stórt epli
Skerið sildarflök og kartöflur i
litla teninga, ca. 1 cm á kant.
Grófsaxið rauðrófur, epli og
agúrkusneiðar. Blandið öllu
varlega saman.
Salatsósa
40 g smjörliki
2 msk hveiti
4 msk sýrður rjómi
1 msk sterkt sinnep
2 1/2 dl kjötsoð
Hitið smjörlikið i potti og hrærið
hveitinu saman við. Þynnið með
kjötsoðinu. Látið sósuna sjóða i
ca. 5 minútur og kælið.
Hrærið saman rjóma, rauðrófu-
legi, eggjarauðu og blandið þvi
út i sósuna. Bragðbætið með
sinnepi og pipar. Hellið sósunni
yfir salatið. Látið það biða i
kæliskáp ca. 3 klukkustundir
fyrir framreiðslu.
Skraut
2 harðsoðin egg
sýrðar agúrkusneiðar
Skreytið með eggjabátum og
agúrkubitum. Berið salatið
fram með grófu brauði.
Rét fyrir opnun sýningarinnar Matur ’81 I Féiagsheimiiinu á Sei-
tjarnarnesi um heigina, voru smiðshöggin rekin, bæöi i básum og
i eldhúsi. Visism./ÞL