Vísir - 11.11.1981, Blaðsíða 20
20
Miðvikudagur 11. nóvember 1981
vism
NORRÆNA KVIKMYNDA-
HÁTÍDIN ER NÚ HÁLFNUÐ
Norræna kvikmyndahátiðin
hefurnú runnið skeið sitt til hálfs.
Aðsókn hefur verið mjög góð að
norsku barnamyndinni Atta börn
ogamma þeirra í skóginum. Hún
verður þvl sýnd áfram i A-sal
Regnbogans, kl. 3, 5 og 7.
Þá verður sýnd finnska teikni-
myndin Bræðurnir sjö i C-sal kl.
3.10 og 5.10. Þessi mynd er gerð
eftir skáldsögu hins fræga rithöf-
undar Finna Alexis Kivi, sem
hefur svipaða stöðu i finnskum
bókmenntum og Jón Thoroddsen
hjá okkur.
Myndin gerist um miðja 19. öld
og eru söguhetjurnar sjö bræður
þrjóskir og sérvitrir, sem rata i
ýmis ævintýri.
Skipt hefur verið um ungiinga-
mynd og er nú sýnd norska kvik-
myndin Hættið þessu! At dere
tör! heitirhún á norsku og fjallar
um sannsögulega atburði, er
ungur bilþjófur verður fyrir voða-
skoti lögreglumanns. Rekur
myndin viðbrögð félaga unga
mannsins og réttarhöld er leiddu
til sýknunar lögregluþjónsins.
Myndin er mjög athyglisverð og á
erindi til ungra og fullorðinna.
Þessi mynd er sýnd kl. 7.10, 9.10
og 11.10 þessa viku.
1 Norræna húsinu eru sýndar
þrjár barnamyndir á fimmtudög
um og sunnudögum kl. 5 báða
dagana. Tvær myndanna eru
sænskar og nefnist önnur þeirra
Hver á að hugga Knutta? Það er
teiknimynd um Múminálfana,
sem eru svo alkunnir úr sögum
Tove Jansson.
Hin sænska myndin heitir Siðan
deyr maður og fjallar um Nikka
litla, sem á gamla ömmu á bana-
beði. Hugarheimi barnsins i sam-
bandi við dauða ömmunnar er
þarna listavel lýst.
Þriðja myndin, sem sýnd er i
Norræna húsinu er finnsk teikni-
mynd sem heitir Galdrakarlinn
Kuikka-Koponen. Hann er töfra-
læknir og furðufugl og drifur
ýmislegt skemmtilegt á daga
hans.
B'ull ástæða er til að hvetja fólk
— bæði börn, unglinga og
fullorðna — að sjá eittvhað af
þeim myndum, sem i boði eru.
Það er mjög lofsvert framtak hjá
Samtökum vinafélaga Norður-
landa að standa fyrir þessari
kvikmyndahátið, og auka þannig
fjölbreytnina i kvikmyndasýning-
um fyrir börn og unglinga.
—jsj.
Hættið þessu! — norsk unglingamynd, sem byggð er á sönnum atburð-
um. Efnisrik og spennandi.
Cr kvikmyndinni Atta börn og amma þeirra I skóginum, sem sýnd er I
Regnboganum á Norrænu kvikmyndahátiðinni, og gerð eftir sögu
Anne-Cath Vestly.
Ný (slensk jazzplata komln á markaðlnn
Um þessar mundir sendir Jazz-
vakning frá sér plötu sem hljóð-
rituð var fyrir rúmu ári siðan á
HótelSögu —þarleika bandariski
bassaleikarinn Bob Magnússon,
Guðmundur Ingólfsson, Viðar Al-
freðsson, RUnar Georgsson og
Guðmundur Steingrimsson. Á
plötunni eru fimm verk: tvö
þeirra eru islensk þjóðlög i út-
setningu Gunnars Reynis Sveins-
sonar tónskálds — Móðirmin ikvi
kvi og siðan samanbræddir Þrir
húsgangar. Síðan er hinn gamai-
kunni jazzópus Guðmundar
Ingólfssonar Seven Special og tvö
erlend lög — You’d be so nice to
come home to og I’m getting
sentimental over you hin platan
nefnist Jazzvaka.
Tilefni þessarar hljóðritunar
var fimm ára afmæli Jazz-
vakningar. Þá var ákveðið að fá
bandarfska bassaleikarann Bob
Magnússon hingað til lands
(hann er reyndar af islenskum
ættum) til leiks með íslenskum
jazzleikurum. Þrjár jazzvökur
voru siðan haldnar, tvær á Loft-
leiðum og ein á Hótel Sögu og þar
var hljóðritað.
Bob Magnússon hefur á
skömmum tima dcipað sér i sveit
með bestu bassaleikurum Banda-
rikjanna. Hann hefur stundað
tónlist frá blautu barnsbeini og
byrjaði að leika á kontrabassa
tæplega tvitugur. Hann hefur
leikið með ýmsum þekktum lista-
mönnum, s.s. Söru Vaughan, Art
Pepper, Buddy Rich og Joe Farr-
ell. Hann hefur gefið út tvær
plötur undir eigin nafni — Reve-
lation og Road Work Ahead.
Guðmundur Ingólfsson pianó-
leikari er flestum kunnur. Fáir
hafa útbreitt fagnaðarerindi jazz-
ins af meiri dugnaði hérlendis
siðustu fjögur ár og margir hafa
snúist til sveiflunnar fyrir hans
tilverknað. Guðmundur hefur
plægt akur synkópunnar á þriðja
áratug og hefur sjaldan verið
betri en á þessari plötu.
Guðmundur Steingrimsson er
gamall I jazzhettunni og hefur
löngum þanið húðir undir islensk-
um og erlendum meisturum.
Guðmundur lék einnig á fyrstu
plötu Jazzvakningar, Samstæð-
um sem kom út 1978.
Viðar Alfreðsson er löngu
þekktur fyrir jazzblástur- á
trompet flygilhorn, franskt hom,
túbu og fleiri blásturshljóðfæri.
S.l. vor kom út fyrsta sólóplata
hans, Viðar Alfreðsson spiiar og
spilar.
Rúnar Georgsson hefur blásið i
tenórsaxófón i tæpa tvo áratugi.
Hann hlaut sina jazzskirn á árun-
um 1965-68 þegar jazzinn blóm-
straði i Tjarnarbúð og lék þar
með fjölmörgum erlendum sóló-
istum. A þessari piötu lætur hann
gamminn geisa, kraftmikill og
hugmyndarikur.
I
| útvarp
i
I Miðvikudagur
J 11. nóvember
| 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
■ kynningar.
j 12.20 Fréttir. 12.45
| Veðurfregnir. Tilkynningar.
■ Miðvikudagssyrpa —Ásta
■ Ragnheiður Jóhannesdóttir.
! 15.10 „örninn er sestur” eftir
j Jack lliggins Öiafur Ölafs-
J son þýddi. Jónina H. Jóns-
• dóttir les (23).
I 15.40 Tilkynningar. Tónleíkar.
116.00 Fréttir. Dagskrá. 16. 15
Veöurfregnír.
I 16.20 Útvarpssaga barnanna:
| „Niður um strompinn” eftir
j Armann Kr. Einarsson Höf-
| undur les (9).
j 16.40 Litli barnatíminn
j Dómhiidur Siguröardóttir
| stjórnar barnatima á Akur-
■ eyri.
|. 17.00 Tónlist eftir Askel Más-
• son a. „Lagasafn” fyrir
• /lautu og vibrafón, Manuela
J Wiesler og Reynir Sigurös-
J son leika. b. „Itys”, tónverk
J fyrir einleiksflautu,
J Manueia Wiesier leikur.
I 17.15 Djassþáttur
I 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
I kvöldsins.
I 19.00 Fréttir. Tilkynningar.
I 19.35 A vettvangi
I 20.00 Nútimatónlist Þorkell
j Sigurbjörnsson kynnir.
j 20.40 Boila-bolla Sólveig
j Halldórsdóttir og Eðvarð
J Ingólfsson stjórna þætti
J meö léttblönduðu efni
I fyrir ungt fólk.
I 21.15 Kachmaninoff: Trió I g-
I moll fyrir fiölu, selló og
I pianó, Borodin-trióið ieíkur.
| (Hijóöritun frá tónlistar-
| háliöinni i Björgvin i vor).
j 21.30 Útvarpssagan:
j „Marina” eftir séra Jón
j Thorarensen Hjörtur Páls-
j son les (11).
■ 2?.00 Rió-trió syngur og leikur.
■ 22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
J Dagskrá morgundagsins.
J Orö kvöldsins
22.35 iþróttaþáttur Hermanns J
Gunnarssonar. J
22.55 Kvöldtónleikar a. »
Sinfónia i c-moll nr. 95 eftir I
Joseph Haydn. b. Sinfónia I
nr. 9 i Es-dúr op. 70 eftir I
Sjostakovitsj. Hljómsveitin I
„Phiiharmonia Hungarica” I
leikur, UriSegalslj. (Hljóð- j
ritanir frá útvarpsstöðvun- j
um i Frankfurt og Vinar- j
borg). j
23.45 Fréttir. Dagskrárlok. j
sjónvarp j
18.00 Barbapabbi. Endur- {
sýndur þáttur. Þýðandi: J
Ragna Ragnars. Sögu- |
maöur: Guðni Koibeinsson. !
18.05 Húsiðbak við birkilund- J
inn.B’innskteíknimynd fyrir J
börn. Þýðnadi Trausti Júl- J
iusson. (Nordvision — »
Finnska sjónvarpið.) í
18.15 Marsvinið Dönsk teikni- I
mynd fyrir börn. Þýðandi: I
Veturliði Guðnason. j
(Nordvision — Danska sjón- |
varpið.) ■
18.25 Fóik að leik Sjöundi |
þáttur. Skotland. Þýöandi: I
Ólöf Pétursdóttir. Þuiur: i
Guðni Kolbeinsson. ■
18.55 Hlé |
19.45 Fréttaágrip á táknmáli J
20.00 Fréttir og veður J
20.25 Auglýsingar og dagskrá J
20.25 Nýjasta tækni og visindi J
Umsjón: Sigurður H. J
Richter. »
21.05 Dallas Tuttugasti og I
fyrsti þáttur. Þýðandi. I
Kristmann Eiðsson. J
21.55 Þingsjá Er fjárlaga- J
frum varpið staöfesting J
styrkrar efnahagsstefnu eða J
steinulaust plagg á brauð- J
fótum? Þessari spurningu *
verður beint tii Ragnars I
Arnalds, fjármálaráðherra, I
Kjartans Jóhannssonar, I
formanns Alþýðuflokksins I
og Matthiasar Á. Mathie- I
sens, fyrrverandi fjármála- j
ráðherra. Umsjónarmaður: j
Ingvi Hrafn Jónsson. j
22.35 Dagskráriok j
Sjónvarp kl. 21.55:
...eða stefnulaust
piagg á hrauðfótum
Þingsjá, i umsjón Ingva Hrafns
Jónssonar, er á dagskrá sjón-
varpsins i kvöld kl. 21.55.1 þættin-
um verður eftirfarandi spumingu
beint: „Er f jármálafrumarpið
staðfesting styrkrar efnahags-
stefnu eða stefnulaust plagg á
brauðfótum?” Þessari spumingu
verður beint til Ragnars Amalds,
fjármálaráðherra, Kjartans Jó-
hannssonar, formanns Alþýðu-
flokksins og Matthiasar A.
Mathiesens, fyrrverandi fjár-
málaráðherra. Þátturinn er 40
mfnútna langur.
•m-------►
Ingvi Hrafn Jónsson er um-
sjónarmaður Þingsjár ísjónvarp-
inu i kvöid.
Sjónvarp ki. 20.35:
Rreskar iræðslumyndlr
I þættinum „Nýjasta tækni og
visindi”, sem er á dagskrá sjón-
varpsins i kvöld kl. 20.35 verða
sýndar sjö myndir, allar breskar.
Þrjár fyrstu myndirnar fjalla um
varðveislu sögulegra minja. I
fyrstu myndinni er sagt frá varð-
veislu gamalla höggmynda, en i
Bretlandi eru margar kirkjur,
sem eru prýddar höggmyndum
að utan. Vegna aukinnar meng-
unar verður rigningin súrari, og
þetta súra regn eyðileggur högg-
myndirnar, og byggingarnar
liggja undir skemmdum. Nú er
verið að gera tilraunir með nýtt
efni, sem hægt er að úða á steina,
og steinamir drekka i sig, og
vinnur þá ekkert á þeim. Þá er
sagt frá nýrri tækni við aðfægja
silfur, og þá einkum forngripi,
sem stillter út, þvi silfur slitnar
þegar fægt er, og mynstur og
myndir hverfa. Ástæðan fyrir þvi
að það fellur á silfur eru efna-
breytingar milli silfursins og loft-
tegunda, en nú hefur verið fundin
upp tækni sem getur snúiö þess-
um efnabreytingum við. Sagt
verður fra"'skipi, sem hét Mary
Rose, og var stolt breska flotans,
en Frakkar skutu það niður á 16.
öid. Nú er verið að bjarga þessu
skipi úrdjúpinu, og á að gera það
upp og hafa til sýnis. Sagt verður
frá þeirri vinnu og nýrri aðferð
við að ná klór úr járni. Þá verður
sagt frá nýju tæki, sem getur látið
vita hvenær bolti er innan eða ut-
an linu i tenniskeppni, sagt er frá
uppskeru á vætukarsa, sem er
vinsæl matjurt erlaidis, mynd
verðurum tækjabúnaðtil að leita
uppi málmþreytu í flugvélum,
sem sparar mikla vinnu, og
greint verður frá músarannsókn-
um. Þær fjalla um það, að músa-
ungar gefa frá sér hátiðnihljóð,
sem mannseyrað nemur ekki, en
nú hefur verið útbúið tæki með
samskonar hljóði, sem ætlað er tii
músaveiða. Umsjónarmaður,
þulur og þýðandi er Sigurður H.
Richter. —AKM.