Vísir - 11.11.1981, Qupperneq 28
Veðurspá
dagsins
Kl. 6 I morgun var um 996
mb. lægö um 200 km. vestur af
Vestfjöröum á hreyfingu aust-
ur. Austan lands og noröan
hlýnar talsvert i dag og veröur
frostlaust, en fer aö kólna um
allt land i kvöld.
Suöurland til Vestfjaröa:
Gengur i vestan og siöar
noröan 5-7 meö slyddu og siöar
snjóéljum.
Strandir og Noröurland vestra
og Norðuriand eystra:
Gengur i sunnan 5-7 og viöa
snjókoma eöa slydda i dag.
Gengur I noröan 5-6 meö snjó-
komu i nótt.
Austurland aö Glettingi og
Austfiröiir:
Suövestan 3-5 og síöar 4-6 og
þykknar upp I dag. Viöa
slydda siðdegis. Léttir til meö
kvöldinu, en gengur siöan I
norövestan 5-7 með éljum á
miöum.
Suð-Austurland:
Sunnan 4-5 og siöar 5-6 og fer
aö rigna. Léttir til meö vestan
hér
09 Dar
Kl. 6 i morgun:
Akureyri skýjaö 0, Bergen
súld 7, Helsinki alskýjaö 3,
Kaupmannahöfn rigning 7,
Osló rigning 4, Reykjavik
rigning 4, Stokkhólmur rign-
ing 4, Þórshöfn alskýjaö 0.
Kl. 18 i gær:
Aþena léttskýjað 11, Berlfn
heiðrikt 1, Chicago skýjaö 8,
Feneyjarheiörikt3, Frankfurt
léttskýiaö 0. Nuuk snjókoma
-r 1, London alskýjað 8, Lux-
emborg léttskýjaö -f-2, Mall-
orka léttskýjaö 12, Montreal
skýjaö 1, Parisskýjaö 3, Róm
heiörikt 6, Malaga léttskýjaö
16, Vln skýjaö 1, Winnipeg
slydda 1.
Hvaö gerir Seölabankinn, þeg-
ar prentarar fara I verkfall?
veöpið
Miðvikudagur 11. nóvember 1981
símmnerdóóU
Kennarar við Hamrahlíð æfir:
SAMÞVKKTU VlTUR A
SAMNINGANEFND HIK
Fundur I Kennarafélagi
Menntaskólans viö Hamrahliö
var haldinn i gær og var þar harö-
lega mótmælt þvi samkomulagi,
sem samninganefnd Hins Is-
lenska kennarafélags haföi undir-
ritaöfyrir helgi, án fyrirvara, um
greiöslur fyrir kennslu I öldunga-
deildum mennta- og fjölbrauta-
skólanna.
Guörún Hannesdóttir, formaö-
ur Kennarafélags M.H., sagöi i
samtali viö blaöiö I morgun, aö
samkomulagiö heföi I för meö sér
beina lækkun launa hjá kennur-
um öldungadeilda M.H. og M.A.,
auk þess sem kveöið væri á um i
samningnum, aö greiöslur væru
mismunandi eftir stærö hópa, og
skilur þar á milli 19 nemenda i
hóp og færri og tuttugu og fleiri.
Þetta ákvæöi sagöi Guörún, aö
væri I beinni andstööu viö áöur yf-
irlýstan vilja kennara.
A fundinum voru samþykktar
vitur á samninganefnd HÍK, og
fariö fram á, aö hún segöi af sér.
Jafnframt samþykktu kennarar
aö ganga ekki til kennslu viö öld-
ungadeild eftir áramót aö ó-
breyttu ástandi.
Aðspurö sagöi Guörún, aö fjár-
málaráöuneytið heföi fyrr i haust
hætt öllum samningaviöræöum
viö kennara, en sýnt lit aö nýju
fyrir skemmstu. „Þá var auðvit-
aö búist viö einhverju betra en
beinni lækkun launa, auövitaö”,
sagöi Guörún og bætti þvi viö aö á
fundinum heföi komiö fram, aö
samninganefndin heföi taliö sig
ganga tilneydda til undirritunar
samningsins, þar eö ráöuneytiö
heföi ekki veriö til viöræöu um
annaö og aö sú afstaöa ráöuneyt-
isins heföi, aö mati samninga-
nefndar HIK, ógnaö tilveru öld-
ungadeildanna. „Kennarar eru
hins vegar ekki á þeirri skoöun”,
sagöi Guörún að lokum.
Kennarar viö Fjölbrautaskól-
ann á Suðurnesjum og Fjölbrauta
skólann á Akranesi hafa einnig
sámþykkt vitur á samninganefnd
HIK. Ekki náöist I morgun i Jón
Hnefil Aöalsteinsson, formann
HIK, þrátt fyrir Itrekaöar til-
raunir.
Ráöstefna um umferöar- og aögengimál fatlaöra hófst aö Hótel Loft-
leiðum i morgun.
Þaö er starfshópur ALFA-nefndar félagsmálaráöuneytisins sem hana
heldur og eru væntanlegir I kringum 120 þátttakendur vlöa aö. Þar á
meöal eru fulltrúar 40 sveitarfélaga um allt land, sem áöur hafa unniö aö
könnun og mælingum á ástandi ýmissa opinberra bygginga meö hliösjón
af umgengni fatlaðra þarum. Munu niöurstööur þessara mælinga veröa
kynntar á ráöstefnunni.
Svavar Gestsson, heilbrigöis-og féiagsmálaraöherra setti ráöstefnuna
I morgun og hér sést hann ásamt Páli Sigurðssyni ráöuneytisstjóra
heilsa upp á Theódór Jónsson, Ólöfu Rikharðsdóttur og Sigursvein D.
Kristinsson og Arna Gunnarsson alþingismann. —JB/Vísism. GVA
Við Durfum hærra verð
en markaðurinn mun Doia
- seglr Rikharður Jónsson á Kirkjusandi
„Við erum búnir að verðleggja
okkur útaf markaðnum”, sagöi
Rikharður Jónsson, fram-
kvæmdastjóri á Kirkjusandi, i
spjalli við Visi i morgun, en hann
flutti skelegga framsöguræðu um
markaðsmál á Fiskiþingi i gær.
„Viö þurfum verulega hærra
verð en markaðurinn er tilbúinn
aðborga.til þess að framleiðslan
geti staðist hér innanlands,”
sagði Rikharður og rakti, að
verðbólguþróunin hér skapaði
þennan vanda. Aftur á móti vildu
markaðslöndin i Evrópu lækka
verðið, það er að segja þau lönd,
sem kaupa afurðir okkar fyrir
bandarikjadollara, til þess að þaö
standi I stað, miðað við þeirra
eigin gjaldmiöil. „Þetta kemur
fram oger þegar komið fram, t.d.
i saltsildinni i haust. Þar erum viö
búnir að verðleggja okkur út af
markaðnum. Það er komin fram
lækkun i skreiðinni lika, miðað
við dollara, og það má búast við,
þótt raunar enginn viti það ennþá
að sama veröi uppi á teningnum
bæöi i saltfiski og freðfiski til
Rússlands,” sagði Rikharður
Jónsson. —-SV
Auglýsendur athugið
Viöskiptamönnum auglýsingadeildar Visis er bent á, aö vegna
yfirvofandi verkfalls prentara, þurfa auglýsingar I Helgarblaö aö
hafa borist fyrir klukkan 18, fimmtudaginn 12. nóvember.
sykurlaust
minnaen
einkaloría
iflösku