Vísir - 13.11.1981, Síða 18
Mæðrakvöld
í Hollywood
Svo bar við á
skemmtistaðnum
HoUvvvood ekki alls
tyrir löngu, að boöiö
var upp á tiskusýningu,
sem er i sjálfu sér eng-
in nýlunda, en þessi var
frábrugðin mörgum
öörum að þvi leyti, að
sýndur var fatnaöur
fvrir verðandi mæöur.
Kaunar má segja aö
þetta hafi verið eins
konar ,,mæðrakvöld”,
þviauk fatnaðarins var
kvnning á barnavögn-
um og Johnsons-barna-
vörum.
Meðfylgjandi myndir
eru frá tiskusýning-
unni, en fatnaðurinn er
frá versluninni Draum-
urinn i Kirkjuhvoli. i
stuttu samtali við Visi
sagði Helga Ásgeirs-
dóttir, eigandi versl-
unarinnar, að lögð væri
áhersla á föt, sem hægt
væri að nota viö öll
möguleg tækifæri, bæði
daglega og spari og svo
fyrir og eftir að barniö
er fætt. Annars tala
myndirnar skýrustu
máli i þessu sambandi.
Þaö var glatt á hjalla hjá
Glsla B. Björnssyni og
starfsfólki Auglýsingastof-
unnar h.f. á föstudaginn síð-
astliðinn þegar haldið var
upp á 20 ára afmæli fyrirtæk-
isins. Veislan hófst um há-
degiðog stóð fram á kvöld og
munuum 250 gestir hafa sótt
afmælisfagnaðinn.
Samkvæmið hófst með þvi
að gestum voru bornir léttir
réttir, brauð, öl og kaffi á
kaffistofu fyrirtækisins og
höfuðpaurinn, GIsli B.
ávarpaði gesti. Þá komu
hjónin Krystyna og Garðar
Cortes I heimsókn og
skemmtu með söng og hijóð-
færaslætti. Að þvl ioknu voru
sett I gang „videoprógröm”
þar sem sjá mátti nýjar og
gamlar sjónvarpsaugiýsing-
ar sem gerðar hafa verið á
vegum stofunnar og einnig
voru kvikmyndasýningar á
ýmsu öðru efni. Voru sýning-
ar þessar I gangi af og til all-
an daginn.
Um eftirmiðdaginn var
borið fram afmæliskaffi meö
tertu og tiiheyrandi. Hrafn
Gunnlaugsson kom I heim-
sókn og las úr verkum sin-
um. Tiskusýning var á veg-
um Módel ’79 og Alafoss, Jó-
hanna Linnet og Sigurður
Rúnar Jónsson skemmtu
með nokkrum „blueslögum”
og öðrum fleiri, — og þannig
leið dagurinn við glens og
gaman.
Meðfylgjandi myndir tók
Anna Fjóla Gisiadóttir I
veisiunni góðu.
GOSH 11S...
Bfl® mxmx.
Bad Manners.
Matchbox.
L