Vísir - 13.11.1981, Blaðsíða 19
vtsm
Föstudagur 13. nóvember 1981
«5S
SUt'!'*
i tyritl*'5
E«»‘
„•Ueisdóttir. r
nur o6
SfcisS
°S Geirþrúöur
IMar í ..Argus>.
*,*
. ;V :. ..
,
tisKusýnin^u
Hluti gesta
U, j&St '■
r' laRlg f ’f' ' p|
|f 1
1
1
„Rokkabillý og ska”
á tveim nyjum plötum frá SPOR
Hljómplötufyrirtækið SPOR,
sem er einskonar dótturfyrir-
tæki Steina h.f., hefur nú sett á
markaðinn tvær erlendar
hljómplötur, — „Flying Col-
ours” með hljóm sveitinni
Matchboxog „Gosh It’s...” með
hijómsveitinni Bad Manners.
Bad Manners er 9 manna
hljómsveit sem skipuð er ung-
um og hressum köppum frá
norður London. Þeir leika tón-
listsem alla jafna gengur undir
nafninu ,,ska”. Hljóðfæraskip-
aniner bassi, trommur, gitar og
hljómborðsem annast hið hefð-
bundna takthlutverk. Auk þess-
ara hljóðfæra notast Bad Mann-
ers við ýmiss konar blásturs-
hljóðfæri og helst má telja saxó- ,
fóna, trompeta, flautur og
munnhörpu. Hljóðfæraleikar-
arnir eru 8 talsins en 9. maður-1
inn og jafnframt sá fyrirferðar-
mesti, er söngvarinn, hinn þrek-
vaxni og sköllótti Buster Blood-
vessel. Hann vekur mesta at-
hygli á sviði enda óvenjulegt að
ungur maður, rétt yfir tvitugt
hafi slikan likamsvöxt og sé að
auki vita hárlaus. Þetta kemur
þó ekki niður á söngnum þvi
söngrödd hefur Buster feiki
nóga.
Bad Manners eru likt og aðrar
breskar „ska” hljómsveitir,
ólátabelgir hinir mestu, en öllu
gamni fylgir nokkur alvara. Ef
hlustað er á texta hljómsveitar-
innar kemur það geinilega i* 1 jós
aö Bad Manners hafa eitt og
annað til málanna að leggja.
Landar þeirra Bretar, hafa
kunnað vel að meta tónlist
hljómsveitarinnar.
Rokkabillý er tónlistarstefna
sem er jafngömul að árum og
rokkið. Þetta er músik fyrir-
brigði sem hlaut nafn sitt ann-
arsvegar frá Rock and Roll og
hinsvegar frá Hillbilly tónlist
við samruna þessara tveggja
stefna um miðjan sjötta áratug-
inn. Elvis Presley er liklega
þekktasti fulltrúi rokkabillýs-
insfrá þessum árum ásamt Bill
Haley, Cad Perkins, Jerry Lee
Lewis, Johhny Cash, Gene Vin-
cent og Burnett bræðrunum svo
einhverjir séu nefndir. Upp úr
1960 dró úr vinsældum þessa
músikforms og önnur afbrigði
rokksins urðu ofan á. Nú seinni
ár hefur rokkabillý tónlistinni
vaxið fiskur um hrygg og eru
nöfn Shakin’ Stevens og Stray
Cats all vel þekkt hér á landi.
IBretlandi nýtur hljómsveitin
Matchbox einna mestrar virð-
ingar sem rokkabillý band af
bestu gerö. Meðlimir Matchbox
hafa starfað saman um langt
skeið og núverandi liðskipan
hefur haldistf rá árinu 1977.Það
var hinsvegar ekki fyrr en árið
1979 og með laginu Rockabilly
Rebel að þeir ööluðust vinsæld-
ir. Siðan hefur hvert lagið fylgt
öðru og þrjár breiðskifúr sem
komið hafa út á Magnet merk-
inu breska. Sú siöasta kom út i
Bretlandi nú i september og
heitir „Flying Colours”.
Matchbox er skipuð 6 mönn-
um sem allir eru góðum tónlist-
arhæfileikum gæddir. Þeir leika
allir á fleiri en eitt hljóðfæri og
eru auk þess ágætis lagasmiöir.
Tónlist Matchbox er að mestu
tekin Ur tónsmiðju Steve Bloom-
field, gitar og munnhörpuleik-
ara hljómsveitarinnar. Steve
hefur sérstakt lag á aö semja
lög sem eru ákaflega gripandi.
Sum þessara laga eru svo m jög i
hinum góða gamla rokkabillý
stil aö varla veröur á milli
greint hvort á feröinni eru
gam lar þdcktar dægurflugur
eða glænýjar tónsmiðar. Þessi
hæfileiki Steve og pottþéttur
flutningur Matchbox á þessum
lögum er lykillinn að vinsældum
og virðingu hljómsveitarinnar.
Flying Colours er fyrsta plata
Matchbox sem framleidd er hér
á landi. Meðlimir Matchbox
eru: Graham Fenton— söngur,
Steve Bloomfield—gitar, stál-
gitar, mandolin, munnharpa,
söngur, Gordon Scott — gitar,
banjó, söngur, Fred Poke —
bassi, kontrabassi, söngur, Jim
Redhead — trommur, söngur,
Dick Callan— gitarsax, söngur.