Vísir - 14.11.1981, Síða 28
VÍSIR
Fjölskyldan: Guörún og Haraldur meö börnin sln, þau Nonna og Þör-
unni. Tvær ungar leikkonur, Sæunn og Valgeröur skiptast á um aö
leika dótturina.
Konan er aö koma heim af
fæöingadeildinni, eiginmaöurinn
er búinn aö fá fri úr vinnunni til
að taka vel á móti henni. En þarf
ekki tengdamamma endilega að
fara aö skipta sér aö hlutunum!
Aldrei er friður
Laugardagur 14. nóvember 1981
Picasso vid
Grensásveg
Sér stök ástæða er til að minna
fólk á sýninguna sem nú stendur
yfir i Listasafni alþýðu við
Grensásveg, heimildasýninguna
um „Guernica”, hiö mikla lista-
verk eftir Pablo Picasso.
Á sýningunni er ljósprentun af
þvi verki i fullri stærð auk ljós-
mynda af skissum listamannsins,
ljósmyndum af framvindu við
gerð þess og ýmsu öðru efni sem
tengist „Guernica”.
„Guernica” hefur verið mikið i
fréttum að undanförnu, bæði
vegna þess að verkið hefur nú
verið afhent Prado-safninu i
Madrid — það var samkvæmt ósk
Picassos varðveitt i New York
þangað til lýðræðisstjórn komst á
á Spáni — einnig vegna þess að nú
eru 100 ár liðin frá fæðingu
Picassos. Sýningin i Listasafni
Alþýðuhefur þegar verið sýnd á
þremur stöðum i Danmörku og
héðan fer hún til Sviþjóðar. Hún
varir til 29. nóvember og er opin
daglega frá kl. 14-22..
Ms
Kópavogsleikhúsið frum-
sýnir nýtt islenskt leikrit
Nýtt islensk leikrit
fyrir alla fjölskylduna
verður frumsýnt i Kópa-
vogi i kvöld. Leikritið
heitir aldrei er friður”
og höfundur er Andrés
Indriðason sem jafn-
framt er leikstjóri.
Aldrei er friður er annað leik-
verk Andrésar leikrit hans
„Köttur úti i mýri” var sýnt i
Þjóöleikhúsinu árið 1974. Andrés
heíur lika skrilað fyrir útvarp og
sjónvarp og kvikmyndin Veiði-
ferðin var eftir hans handriti. An-
drés fékk barnabókaverðlaun
Máls og menningar fyrir söguna
Lyklabarn i fyrra og önnur bók
hans, Palli er ekkert blávatn,
hefur komið út á þessu hausti.
Þótt Andrés sé alla iafna kallaður
höfundur efnis l'yrir börn, er þó
viðs fjarri að hann liti þeim aug-
um sjálfur á verk sin — þau eru
ætluö öllum aldurshópum, segir
Andrés, ogskirskota jafnt til full-
orðinna sem barna.
Aldrei er friður
Nýja leikritið fjallar um fjöi-
skyldu i gamansömum tón. Þar
er eiginlega flett i fjölskyldu-
albúminu og numið staðar við
stórviðburði, eins og t.d. þegar
Guðrún og Haraldur flytja i nýja
húsið með börnunum sinum
tveimur, þegar Guðrún er að
koma heim af fæðingardeildinni
með þriöja barnið og þegar
skírnarveisla barnsins fer fram
þremur mánuðum seinna. Auk
foreldra og barna eru á
myndunum tengdamamma og
tengdapabbi, konan i næsta húsi
prestur sem er KR-ingur o.fl.
Hlutverkin eru skipuð einvala-
liði Leikfélags Kópavogs að sögn
Andrésar. Með helstu hlutverk
fara Jóhanna Harðardóttir,
Gunnar Magnússon, Stefán Ei-
riksson, Sæunn Þórisdóttir og
Valgerður Schopka — en þær
skipta með sér hlutverki stelp-
unnar á heimilinu, Sólrún Yngva-
dóttir og Guðbrandur Valdimars-
son.
Gunnar Bjarnason er leik-
myndasmiður, en Gunnar vann
lengi viö Þjóðleikhúsiö en hefur
siðustu ár snúið sér að leik-
myndagerð annars staðar. Þess
má geta hér, aö Gunnar sér um
leikmyndina i fyrstu uppfærslu
islensku óperunnar i Gamla biói i
Andrés — höfundur og leikstjóri.
vetur. Leikmynd Gunnars við
„Aldrei er friður verður sjötta
verkefni hans fyrir Kópavogs-
leikhúsið. Lýsingu annast Og-
mundur Jóhannesson.
„Aldrei er friður” verður frum-
sýnt i kvöld kl. 20.30. Leikritið
verður sýnt á laugardögum og
fimmtudögum á þeim tima og
einnigá sunnudögum kl. 3.a.m.k.
fram i miðjan desember. Og eins
og áður sagði þetta er leikrit fyrir
alla fjölskylduna að sjá saman.
Ms
Málverk, grafik
og teikningar
á sýningu i Djúpinu
Æfa heima hjá hvert öðru
Áttunda starfsár Kammersveitarinnar að hefjast
Kammersveit Reykjavikur
hefur vetrarstarf sitt meö tón-
leikum á Kjarvalsstöðum sunnu-
daginn 22. nóv. Verða þar flutt
fimm verk eftir islenska höfunda,
en þaö eru viöfangsefni þau, sem
Kammersveitin mun flytja á tón-
leikum sinum i Stokkhólmi 29.
þ.m. Verkin eru eftir Jón Asgeirs-
son, Fjölni Stefánsson, Hjálmar
Ragnars, Atla Heimi Sveinsson
og Pál P. Pálsson, en Páll samdi
það verk serstaklega fyrir þann
hóp, sem fer til Sviþjóðar. Þá
verður einnig ilutt verk eftir Jan
Carlstedt á fyrstu tónleikunum.
Kammersveitinni var einnig
boðið til Noregs, og þar héldu þau
tónleika i Þrándheimi og Osló, og
vöktu mikla athygli, og fengu
mjög góða dóma. 1 umsögnum
blaða var m.a. sagt, að tónverk
og flutningur Kammersveitar-
innar væri á mjög háum'stand-
ard.*' Aösókn að tónieikum i
Reykjavik er talin vera með þvi
mesta, sem gerist I heiminum,
miðað við hina klassisku höfða-
tölu.
Þetta er áttunda starfsár
Kammersveitarinnar, og á blaða-
mannafundi, sem boöað var til,
kom fram að skortur á tónleika-
húsi er til mikilla vandræða.
Kammersveitin hefur fast form á
prógrammskerfi sinu, þar sem
blandað er saman nýrri og
gamalli tónlist, og islensk verk
eru alltaf flutt.
Sú hefð hefur skapast hjá
Kammersveitinni, aö desember-
tónleikarnir eru alltaf hafðir i
Bústaðakirkju, og að þessu sinni
verða þeir haldnir 13. desember.
Þar verður flutt tóniist eftir
Telemann, i tilefni þess, að nú eru
liðin 300 ár frá fæðingu hans.
Allir meðlimir Kammer-
sveitarinnar eru launalausir, og
stendur hún þó rétt undir sér, þvi
þeir peningar sem inn koma fara i
húsaleigu, nótnakaup, prentun á
prógrömmum o.fl. Fastir áskrif-
endur eru nú um 150.
Kammersveitin hefur ekkert
fast húsnæði til aö æfa i, og hafa
þau fengiö inni i Tónlistar-
skólanum.en þessá milliæfa þau
heima hjá hvort öðru.
Tónleikar Kammersveitar-
innar verða alls fjórir i vetur,
alltaf á sunnudögum kl. 17, en
ekki er enn ákveðið hvar siðari
tónleikarnir tveir verða haldnir,
en þeir verða 14. febrúar og 28.
marz. A tónleikunum 14. febr.
verður flutt tónlist eftir Stra-
vinsky, en árið 1982 er afmælisár
hans, og á hann aldarafmæli 17.
júni. Á siðustu tónleikunum
veröur flutt verk eftir Debussy,
Barber og Beethoven.
Askrift að tónleikum kostar kr.
50.- Börnum og skólanemendum
verður veittur afsláttur, þannig
að þau greiða kr. 100.- fyrir
áskrift og kr. 30.- fyrir einstaka
miða. Félagar i Kammersveit
Reykjavikur eru 16, þar af ellefu
af þeim 12 sem stofnuöu sveitina.
—AKM.
Um siöustu helgi opnaði Sigurð-
ur Eyþórsson þriöju einkasýn-
ingu sina i Galleri Djúpið, að
Hafnarstræti 15 i Reykjavik. Þar
sýnir Sigurður málverk, teikning-
ar og grafik-myndir, rúmlega 20
aðtölu. Sigurður mun mála mynd
i oliu og egg tempera meðan á
sýningunni stendur, sem siðan
verður til sölu að sýningunni lok-
inni, en hún verður til 3. desem-
ber. Flestar myndirnar eru til
sölu. Sigurður lauk námi frá
Myndlista- og handiðaskóla Is-
lands árið 1971, og stundaði siðan
nám við Konunglegu listaaka-
demiuna i Stokkhólmi á árunum
1974 - 1976. Þá var hann einnig á
myndlistarnámskeiði i Austurriki
árið 1976. Siguröur hélt siðast
sýningu i Galleri SOM árið 1978.
Aðgangur að sýningunni i Djúpin
er ókeypis.
Svart og hvítt
i Gallerí Langbrók
Ragna Róbertsdóttir, vefari og
tauþrykkjari og ein Langbrókar-
kvenna, hefur nú hengt verk sin
upp til kynningar i Galleri Lang-
brók við Amtmannsstig.
Þar kynnir hún ný mynstur i
tauþrykki, þrykktar lengjur,
púða, handklæði og fleira, en allt
er þetta i svörtu og hvitu.
Kynningar á nýjustu verkum
einstakra félaga sem þessi, eru
nýjung i starfssemi Langbrók-
anna og munu fleiri fylgja á eftir,
auk þess sem ýmislegt annað er á
döfinni. Meðal annars munu þær
allar standa saman að jólasýn-
ingu innan skamms, þar sem allt
verður til sölu.
Kynning Rögnu er opin á sama
tima og Galleriiö eöa daglega
klukkan 12 - 18.
— JB
Ragna Róbertsdóttir meðal verka sinna. (Vlsism.)