Vísir - 14.11.1981, Page 38
38
vtsm
Sími: 13041
Kjólar verð frá kr. 278.
Hvitar svuntur st. 2-12
kr. 176
Drengjaskyrtur frá
98-176.
Hnébuxur ullar og gróft
flauel frá 220
Ullar vesti kr. 163
Flannel og flauelisbux-
ur st. 2-14
Töskur# sokkar o.fl.
Peysur og bolir í miklu
úrvali
Þröngar galla- og
flauelisbuxur verð frá
kl. 179
Þvegnargalla reiðbuxur
margir litir stærðir 2-16,
verð kr. 179-266.
Striga- og leðurbelti i
mörgum litum.
Duffelcoat, úlpur, loð-
fóðraðir samfestingar.
Húfur, treflar og lúffur
í miklu úrvali.
Regnfrakkar og slár
verð kr. 62.
Se<>
\ 9°
/4#\
KRflKKflK
LAUGAVEGI 48
A myndinni sést yfir hluta afmæiisgestanna. t ræ&ustól flytur Þorbjörg Jónsdóttir skólastjóri
Hjúkrunarskólans, ávarp sitt. Vlsism. GVA.
Hjúkrunarskóli íslands 50 ára:
Yfir 200 nemendur
eru í skðlanum
Um þessar mundir er
Hjúkrunarskóli lslands 50 ára, en
skólinn var stofnaður i október-
mánuði árið 1931. Af þessu tilefni
héldu aðstandendur skólans af-
mælishátið i húsakynnum hans i
gærdag, þar sem saman voru
komnir kennarar skólans og
nemendur, velunnarar, ráöa-
menn og forseti Islands Vigdis
Finnbogadóttir sem flutti ávarp á
hátfðinni. Siðar um daginn var
haldiðafmæliskaffiogum kvöldið
fóru hátiðargestir út aö borða og
stigu dans i tilefni af þessum
timamótum skólans.
Fastráðnir kennarar við
Hjúkrunarskóla Islands eru nú 15
talsins, auk fjölmargra stunda-
kennara. Námstiminn er 3 ár og
er námið bæði bóklegt og verk-
legt. Bóklega námið fer fram i
þremur námskeiðum, sem taka
62-64 vikur, en verklega nám-
skeiðið stendur yfir i um 80 vikur.
1 dag eru i skólanum 212 nem-
endur i 9 bekkjardeildum. —SER
Atletlco Madrid - Víkingur:
„ViO viljum ekki fisk”
„Við viljum engan fisk, við vilj-
um fá almennilegan mat. Við vilj-
um vel steikt nautakjöt og ekkert
annað!”
Það voru leikmenn Athletico
Madrid, sem keppa eiga Evrópu-
leik gegn Islandsmeisturum
Vikings i Laugardalshöllinni á
sunnudaginn, sem svo harðlega
fordæmdu islenska fiskinn.
Spánverjarnir komu til lands-
ins á fimmtudaginn og dvelja á
Hótel Esju i boði Vikings. Það var
i hádeginu i gær að stjórnar-
mönnum handknattleiksdeildar
Vikings var tilkynnt, að Spán-
verjarnir hefðu harðlega mót-
mælt fæðinu, þegar dýrindis fisk-
ur var borinn fyrir þá. Vikingar
létu þá bera fram nautakjöt fyrir
kappana og féll þá allt i ljúfa löð.
Eða eins og Vikingarnir sögðu:
„Það er betra að hafa þá góða,
þvi við eigum eftir að keppa við
þá á Spáni”.
Miðasala á leikinn hefur gengið
mjög vel enda er útlit fyrir
spennandi leik. Minna má á, að
siðastþegar Vikingar léku heima
i Evrópukeppninni (á móti
sænska liðinu Luigi) seldust allir
miðarnir i forsölu.
Leikurinn annað kvöld hefst
klukkan 20.
—ATA
Laugardagur 14. nóvember 1981
Kópavogur:
Fundur um elllna
Kvenfélag Kópavogs heldpr
haustfund sinn aö Hamraborg
1 næstkomandi laugardag kl.
14.00.
Fundarefniö aO þessu sinni
eru tvö samtvinnuð málefni.
Annars vegar ver&ur fjallaö
um þa& hvernig sé a& vera
gamall og hins vegar um það
hvernig menn geti búið sig
undir elliárin.
Framsögumenn ver&a þau
Siguröur Magnússon, Rann-
veig Guömundsdóttir, Helena
Halldórsdóttir og Páll Gisla-
son. —SER
Slmon meö gítar-
inn kl. 16.00
Gitartónleikar Simonar H.
tvarssonar á Kjarvalsstö&um
i dag hefjast ekki klukkan
16.30 eins og sagt var I frétt i
VIsi á fimmtudaginn, heldur
klukkan 16.00.
Aðallundur
Landverndar
Aöalfundur Landverndar,
landgræ&slu- og náttúru-
verndarsamtaka islands,
ver&ur haldinn nú um helgina
og hefst i dag klukkan 10 á
aðalfundarstörfum a& Hótel
Heklu. Klukkan 14 ver&ur tek-
ið til viö aö fjalla um áhrif
orkuvinnslu á umhverfi og
framtiðarviðhorf og veröur
fjallaö um þaö efni áfram á
morgun frá klukkan 10 á Hótel
Loftleiðum.
Framsögumenn um sérefni
fundarins veröa Jóhann Már
Marlusson, Arnþór Garðars-
son og Bjarni Gu&leifsson.
Einnig flytur erindi Sylvi
Struksnes, ritstjómarfulltnli
norsku náttúruverndarsam-
takanna, og fjallar það um
reynslu Norðmanna. HERB
VÍSÍSDÍÓ
Visisbió veröur i Regnbog-
anum klukkan 13 á morgun a&
venju. Hins vegar tókst ekki
aö afla upplýsinga um hva&a
mynd veröur sýnd áöur en
blaðið fór i prentun.
Civic Wagon Verð: Beinskiptur 98.000
á götuna
Sjálfskiptur 102.500
á íslandi * Suðurlandsbraut 20 * Reykjavík ■ Sími 38772