Vísir - 14.11.1981, Page 40
Laugardagur 14. nóvember 1981
síminneröóóll
Veðurspá J
Horfur eru á suðlægri og
suðvestlægri átt og hætt er við
að viðast verði talsvert vinda-
samt. Væta um sunnan og suð- „
vestan vert landið skúrir eða j j
slydduél. Norðaustanlands
verður þurrt að mestu. Hiti
verður yfirleitt yfir írost-gj
marki.
■
Veðrið hér !
og par J
Veðrið kiukkan 18 i gær:
Akureyri snjókoma 1, Bergen ®
skýjað 6, Helsinki rigning 2, ■
Kaupmannahiifn skýjaö 3, ■
Oslóskýjað2, Reykjavik rign-
ing 6, Stokkliólinur alskyjaö 0,
Þórshöfn skýjað 1.
Berlin rigning 5, Feneyjar
{xikumóða 6, Frankfurt rign-
ing 7, London skýjað 5,
I.uxemboi g skýjað 4, Malaga i:
alskýjað 19, Maiiorca skýjað
12, Nuuk snjókoma á siðustu
klukkustund-s2, Parisskýjað
8, Kóm þokumóða 8, Vinrign- §§
ing á siðustu klukkustund 7. i
segir;
Ætli ég óski lesendum ekki
gleðilegra jóla — svona til
vonar og vara.
_____________________________I
Engir samningar við Rússa um fjöida sendíráðsmanna:
„Þelta er einsdæmi"
- segir Hörður Helgason, ráðuneytisstjóri
,,Það er engin regla til um það
hvað sendiráðin mega hafa
marga starfsmenn á sinum snær-
um. Venjulega byggist þetta á
gagnkvæmis grundvelli, það eru
gerðir tvihliða samningar um
starfsmannafjöldann, en það eru
engir slikir samningar til á milli
íslands og Sovétrikjanna”, sagöi
Hörður Helgason ráöuneytisstjóri
i Utanrikisráðuneytinu, en
umfang erlendra sendiráöa hér-
lendis hefur mjög verið til um-
fjöllunar i sölum alþingis siðustu
daga og viðar.
„Þaö hefur aldrei komið til tals
aðslikur samningur verði gerður,
þó að hér sé um einsdæmi að ræða
hvað sendiráð snertir.
Þetta er pólitisk spurning sem
erfitt er fyrir mig að svara”,
sagði Hörður, þegar hann var
spurður hversvegna slikur samn-
ingur væri ekki gerður. „Alla-
vega hefurslikur samningur ekki
verið talinn nauðsynlegur.
I sjálfu sér getum við i ráðu-
neytinu alltaf gert athugasemdir
við starfsmannafjölda sendiráð-
anna og ef með þarf, neitað að
gefa vissum mönnum vegabréfs-
áritanir.
Spurningin er hvaö þarf stór-
veldi að hafa marga starfsmenn
til að reka sendiráð hérlendis. 1
sovéska sendiráðinu starfa 15
stjórnarerindrekar, 24 þjónustu-
starfsmenn, auk barna og maka,
en i heild eru hér á landi 88
sovéskir rikisborgarar á vegum
sendiráðsins”. sagði Hörður.
—SER
Flugieiðir:
Breiðpotu-
kaup of
áhættusðm
A stjórnarfundi Flugleiöa, sem
haldinn var á fimmtudag varð
stjórnin sammála um að breið-
þoturekstur á Norður-Atlants-
hafsflugleiðinni gæti hugsanlega
bætt rekstrarafkomu Flugleiöa
verulega.
Að mati stjórnarinnar er fjár-
hagsstaða Flugleiða hins vegar
svo veik, að félagið treystir sér
ekki til aö taka alfariö á sig þá
áhættu, sem samfara er breið-
þoturekstri, nema að til komi
veruleg aðstoö stjórnvalda.
DC-8 flugvélar verða þvi áfram
notaðar á N-Atlantshafsflugleiö-
inni að sinni.
—ATA
Festi fótinn
í drifskafti
Alvarlegt slys varð við bæinn
Eystra-Súlunes um hádegisleytið
i gær. Maður festi annan fótinn i
drifskafti á dráttarvél og
slasaðist alvarlega.
Klukkan var um hálf eitt þegar
lögreglan á Akranesi var beðinn
um að sækja slasaðan mann að
Eystra-Súlunesi og flytja hann á
sjúkrahúsið á Akranesi, en bær-
inn er miðja vegu á milli Akra-
ness og Borgarness.
Ekki eru tildrög slyssins með
öllu ljós enda maðurinn illa hald-
inn og óttast er að hann missi fót-
inn. Hann liggur nú á sjúkrahús-
inu á Akranesi. —ATA
Risaferjan:
Málið ð
lokasiigi
,,Viö áttum viðræður við
fulltrúa færeysku landsstjórnar-
innar og færeysku skipafélag-
anna um samvinnu Færeyinga,
Eimskips og Hafskips um rekstur
risaferju. Við erum nú meö málið
til athugunar og ákvörðunar er að
vænta á næstu dögum”, sagði
Ragnar Kjartansson, forstjóri
Hafskips I samtali við Visi.-
Eins og Visir hefur skýrt frá,
snýst málið um sameiginlegan
rekstur risaferju, sem kæmi i
stað Smyrils, og myndi ferjan
hafa viðkomu i Reykjavik i staö
Seyðisfjarðar.
„Þaö eina sem ég get sagt um
málið að sinni, er að það er á
lokastigi”, sagði Ragnar Kjart-
ansson.
Auk Ragnars tók Hörður Sigur-
gestsson, forstjóri Eimskips, og
Agúst Agústsson, rekstrarráð-
gjafi, þátt i viöræðum i Færeyj-
A félagsfundi prentara i gærdag samþykkti meirihluti fundarmanna að láta boðað verkfall koma tii
framkvæmda og hófst það á miðnætti sfðastliðna nótt.
(Visism. ÞL)
verkfaii prentara hafiO:
„Það gæti staðið
fram yfir áramót”
- segir formaður Félags islenska prentiðnaðarins
„Það þarf aö gerast kraftaverk
til þess að þessu verkíalli verði
frestað — atvinnurekendur hafa
ekkert gert til að koma til móts
við okkur”, sagði Ómar Harðar-
son hjá Félagi bókagerðarmanna
i samtali við Visi að loknum
félagsfundi i Félagi bókageröar-
manna i gærkvöldi.
,,Á fundinum var alger einhug-
ur og menn stöppuðu stálinu hver
i annan. Félagsfundur þessi var
haldinn til að skýra stöðuna fyrir
félagsmönnum, rétt eins og
tiðkast hefur um árabil fyrir
verkföll i félögum prentara”.
„Útlitið er mjög dökkt og langt
bil er á milli samningsaðilanna”
sagði Haraldur Sveinsson for-
maður Félags islenska prent-
iðnaðarins.
„Staðan er erfið og mikið þarf
að gerast til að saman gangi. Það
er hætt við að ef verkfall á annað
borö skellur á, þá verði þaö lang-
vinnt. Við minnumst verkfallsins
1974, en það stóð i sjö vikur. Við
getum eins búist viö aö þetta
verkfall standi fram yfir ára-
mót”.
Sáttafundur i deilunni hófst
klukkan fjórtán i gær hjá sátta-
semjara en gert var hlé á honum
meðan á félagsfundi prentara
stóð. Sáttafundi var svo fram-
haldið klukkan hálf niu i gær-
kvöldi.
—ATA
Flugleiðir slörauka vörullutninga:
Fiskur í sérgámi
- til Lunemborgar og New vork
Flugleiðir bjóöa nú þeim sem
flytja vörur milli landa mjög auk-
iö rými i flugvélum sinum. A
leiðinni New York — Keflavik —
Luxemburg og til baka mun i
vetur fljúga DC-8 flugvél með
skiptu farþegarými til farþega-
og vöruflutninga. Þannig hefur
verið komið fyrir þremur vöru-
pöllum i fremri hluta farþega-
rýmis, en þar fyrir aftan eru sæti
fyrir 208 farþega.
Frakt, sem flutt er fra^ íslandi
er mestmegnis iðnaðarvörur, svo
og ferskur fiskur. Flugleiðir hafa
nú i smiðum sérstaka vörugáma
til fiskflutninga milli landa. Auk
farþega og farangurs þeirra
getur þessi flugvél flutt allt að 17
lestum af vörum i ferð.
Þá er Boeing 727-100 flugvél
Flugleiða búin sams konar vöru-
pöllum. Sú flugvél tekur tvö vöru-
palla og 79 farþega i ferð. Þá eru
sértök fraktflug milli Islands og
Kaupmannahafnar á miðviku-
dögum, og eru allt að 18 lestir af
vörum fluttar i þessum ferðum.
—ATA