Pressan - 02.09.1988, Side 1
1. tbl. 1. árg. 2 sept. 1988. Verð kr. 100.
Islendingur ætlar að skipta um kyn
PRESSAN ræðir við ungan mann, sem ekki ætlar að
gefast upp fyrr en hann er orðinn kona — þó því fylgi
viss áhætta, sem hann er fyllilega meðvitaður um. Mun
hann t.d. geta lifað kynlífi eftir skurðaðgerðina og þá
með hverjum?
Það er maður mitt á meðal okkar hér á íslandi, sem
á við vægast sagt óvenjulegt vandamál að stríða. Hann
er á þrítugsaldri og lítur út eins og hver annar ungur
maður, en í eigin huga er hann — og hefur alltaf verið
— kvenkyns. Sjálfsímynd hans er af konu, sem er fangi
í líkama karlmanns.
Manninum líður að
sjálfsögðu ekki vel í þessu
ástandi. Hann þráir það
eitt að skipta um kyn, svo
sættir geti tekist með lík-
ama og sál. En þó einhver
fjöldi erlendra karlmanna
hafi gengist undir kyn-
skiptingu er ekki þar með
sagt að slíkar aðgerðir liggi
beinlínis á lausu. Það
komst maðurinn að raun
um, þegar hann gekk fyrir
nokkrum árum á milli
Pontíusar og Pílatusar í
„kerfinu“. Eftir þá tilraun
lét hann málið kyrrt liggja
um sinn, en ætlar fyrr eða
síðar að hefja baráttuna á
nýjan leik.
SJÁ VIÐTAL
Á BLS. 5
GEF
STJÓRN
3 VIKUR
Davíð Oddsson
borgarstjóri er mót-
fallinn niðurfcersl-
unni og segist eiga
von á að ríkisstjórn
Þorsteins Pálssonar
springi innan þriggja
vikna.
G
ulltékki með mynd eykur öryggi þitt,
öryggi viötakanda og öryggi bankans þíns.
Það fer ekki milli mála hver þú ert.
Sérprentun án aukakostnaöar!
i r
BÚNAÐARBANKI ÍSLANDS