Pressan - 02.09.1988, Page 8
8
VIKUBLAÐ Á FÖSTUDÖGUM
Útgefandi Blað hf. — Alþýðublaðið
Framkvæmdastjóri Hákon Hákonarson
Ritstjóri Jónína Leósdóttir
Auglýsingastjóri Hinrik Gunnar Hilmarsson
Ritstjórn <?g skrifstofur: Ármúla 38, sími: 68 18 66. Auglýsingaslmi:
68 18 66. Áskrift og dreifing: Ármúla 38, sfmi 68 18 66. Setning og
umbrot: Filmurog prent. Prentun: Blaðaprent hf.
Áskriftargjald: 400 kr. á mánuði. Áskriftargjald: Pressan og Alþýðu-
blaðið: 800 kr. á mánuði. Verð í lausasölu: 100 kr. eintakið.
Pressan er komin
PRESSAN er komin á markaðinn! Nýtt viku-
blað, sem gefið verður út á hverjum föstudegi. Blað, sem
kafar djúpt í íslenskt þjóðlíf, jafnt sem það fleytir á því
kerlingar.
Frá upphafi hefur það legið ljóst fyrir að PRESSAN
yrði ólík þeim blöðum, sem fyrir eru á markaðinum.
Þjóðin þarf ekki á enn einum fjölmiðlinum að halda, ef
hann á bara að vera eftirlíking þeirra sem fyrir eru.
PRESSAN ber að sjálfsögðu merki þess að hún kem-
ur út vikulega en ekki á hverjum degi. í PRESSUNNI
verður því ekki upptalning á fréttum síðasta sólarhrings,
heldur munum við leitast við að skyggnast undir yfir-
borðið og gera viðameiri úttektir á málum en venja er
um dagblöðin. En PRESSAN ætlar ekki að einblína
á alvarlegri hliðar tilverunnar. Það er nefnilega margt
skemmtilegt og skrítið að gerast í kringum okkur og um
það verður líka fjallað í PRESSUNNI. Niðurstaðan
verður þessi sígilda blanda gamans og alvöru, sem er jú
uppistaðan í lífinu.
IPRESSUNNI verða m.a. viðtöl við athyglisvert fólk,
greinar um flest sem efst er á baugi hverju sinni og um-
fjöllun um stefnur og strauma á hinum ólíku sviðum
þjóðlífsins. Við áskiljum okkur eiginlega rétt til þess að
birta greinar um alla mögulega og ómögulega hluti milli
himins og jarðar — hvorki meira né minna. Ef ÞÚ vilt
lesa um það, mun PRESSAN skrifa um það!
í PRESSUNNI verða einnig margir gómsætir fastir
þættir — nokkurs konar kirsuber í kokkteilinn. Hin
eftirsótta spákona Amy Engilberts mun t.d. lesa úr lófa
eins lesenda PRESSUNNAR í viku hverri. Flosi Ólafs-
son leikari skrifar pistla eins og honum einum er lagið
og það gerir líka Eyvindur Erlendsson, kollega hans.
Óttar Guðmundsson læknir fræðir lesendur um ýmis-
legt viðvíkjandi heilsufari og hollustu og við kynnumst
óhefðbundnum læknisaðferðum í mánaðarlegum grein-
um Hallgríms Magnússonar, sem teljast verður til braut-
ryðjenda í þeim fræðum hér á landi.
Skákáhugamenn fá sinn skammt í vikulegum þáttum
Guðmundar Arnlaugssonar, krossgátufíkn lesenda
verður einnig svalað og íþróttaunnendur gleymast held-
ur ekki. PRESSAN teygir sig m.a.s. alveg niður í vöggu
til yngstu þjóðfélagsþegnanna. Við bjóðum nýbökuð-
um foreldrum nefnilega upp á þá þjónustu að fá birta
mynd af afkomandanum í dálki, sem við köllum „Vel-
komin í heiminn“.
Kveðja frá Ómari
Dálkahöfundur PRESSUNNAR um bridge er
lesendum eflaust kunnur, þó hann sé ekki íslenskur að
uppruna. Hann er enginn annar en leikarinn víðfrægi og
bridgespilarinn ólæknandi Ómar Sharif.
Ómar bað fyrir góðar kveðjur til bridge-áhugafólks á
íslandi og sagðist vona að sem flestir gætu haft ánægju
af pistlum hans. Þeim skilaboðum er hér með komið á
framfæri við lesendur PRESSUNNAR.
Föstudagur 2. september 1988
0 ■ ^ ^ + mm ^ Rf<Pt iiiritrt; C i
Eilifðarvelin
I Pressunni munu vikulega birtast teikningar eftir Arnþór Hreins-
son. Hann er 24 ára gamall og hefur stundað nám við Myndlista- og
handíðaskóla Islands síðastliðin þrjú ár. __________________
hin pressan
„Hvað dómarann varðar þá
bendir margt til þess að hann sé
kommúnisti."
Siegfried Held landsliðsþjálfari
að loknum landsleik Sovét/ísland.
„Af eölilegum ástæðum getum
við ekki stjórnað leiknum allan
tímann."
Sigurður Grétarsson knatt-
spyrnumaður eftir landsleik
Sovét/ísland.
„Trúleysi mitt er meðfætt en ég
hef þó gaman af prestum. Guðni
Ágústsson talaði hér fyrr eins og
vakningaprestur um vonina og
trúna.“
Hjörleifur Siguróarson bóndi á
aðalfundi Landssamtaka sauð-
fjárbænda.
„í íslenskum fyrirtækjum er
litið eigið fé en mikið lánsfé.“
Steingrímur Hermannsson í
samtali við Tímann.
„Segja má að allar ráðstafanir
stjórnvalda að undanförnu hafi
gengið út á að skera skuldarana
niður úr snörunni."
Ellert B. Schram, ritstjóri DV.
„Frásögnin um Örlygsstaða-
bardaga sýnirokkuref til vill einna
helst hvernig á að standa beinn i
baki i miklum háska.“
Jón Torfason, starfsmaður
Þjóðskjalasafns, um Örlygsstaða-
bardaga.
„Auðvitað hlýtur nútímamaður-
inn að hafna þessum takmörkun-
um í jafnsjálfsögðum frumþörfum
og samgöngur eru.“
Þorvaldur Jóhannsson, bæjar-
stjóri áSeyðisfirði, um seinagang
í jarðgangagerð á Austfjörðum.
„..einnig er ráðgert að gera i
haust tilraun með niðurbrytjun og
snyrtingu á kjöti fyrir frystingu til
þess að draga úr geymslukostn-
aöi“.
Haukur Halldórsson, formaöur
Stéttarsambands bænda, um
vandamálin í sauðfjárræktinni.
„Engin hægri stjórn i landinu
þarf að taka tillit til miðstjórnar
ASÍ nema til þess að misnota
hana sér til framdráttar."
Kristbjörn Árnason um „sam-
ráð“ rikisstjórnarinnar og ASÍ.
„Fegurðin leynist
innan um Ijótleik-
ann.“
Messiana Tómasdóttir mynd-
listarmaður um H.C. Andersen
sem fann fegurðina í Ijótleik-
anum.
„Litt stoðar, að ráðherrar
býsnist yfir þenslu og verðbólgu,
meðan þeir sjálfir valda mestu um
þá óáran.“
Haukur Helgason, aðstoðar-
ritstjóri DV.
„í fyrra bar þjóðin ekki gæfu til
að veita okkur brautargengi og
horfir núna upp á miklar þrenging-
ar fram undan.“
Pétur Guðjónsson, formaður
Flokks mannsins.
„Alþýðubandaiagið vili verja
lifskjör launamanna, sjómanna
og bænda, aldraðra og öryrkja."
Úr tillögum þingflokks Alþýöu-
bandalagsins.
„Hér eru þessir menn kallaðir
rassaglennar.“
Frásögn Tímans af nöktum
manni á Laugardalsvelli.
,,Það sem heillar mig mest við
geðveiki er hið hreina og tæra
augnablik hinnar algeru
sturlunar./y
Jón Gnarr, fjölskyldumaður, skáld og áhugamaður um geð-
deildir, i viðtali í Morgunblaðinu.