Pressan - 02.09.1988, Page 17
r ( ■;*
STÖBIN SEM HLUSTHB ER 'M!
Páll Þorsteinsson
VIRKIR DAGAR 8-10
Útvarpsstjórinn er fyrstur á fætur á morgnana. Páll hefur starfað á
Bylgjunni frá upphafi. fyrst sem dagskrárstjóri og síðan útvarpsstjóri.
Páll spilar vinsæl lög sem gott er að vakna við, lítur í morgunblöðin
og hjálpar fólki réttum megin fram úr.
BYLGJAN
Anna Þorláks
Virkir dagar 10-14
Anna er „nýjasta" röddin á Bylgjunni. Hún hefur þó starfað á Bylgj-
unni frá upphafi og eignaðist strax stóran aðdáendahóp sem hlustaði
á Ijúfmeti hennará laugardagskvöldum. Dægurtónlistin ræðurríkjum.
■■nnnnamnnBMnaasaB
3YLGJAN
Hallgrímur Thorsteinsson
REYKJAVÍK SÍÐDEGIS - HVAÐ FINNST ÞÉR?
Hallgrímur á nýjum brautum í Reykjavík síðdegis, sem nú er vettvang-
ur fyrir hlustendur sem vilja koma skoðunum sínum á framfæri. Hall-
grímur svarar í síma 61 11 11 frá kl. 18.10-1 9.05 og spjallar við hlust-
endur um hvað sem er.
YLGJANi
Pétur Steinn Guðmundsson
SÉR UM ÍSLENSKA LISTANN
á laugardögum frá 16-18. Pétur Steinn fer yfir stöðu 40 vinsælustu
laga landsins í hverri viku. Hér er ekki þurr upptalning á númerum
heldur margþættur fróðleikur um listamennina sem flytja lögin. Hlust-
endum íslenska. listans er boðið í ævintýraferð um tónlistarheiminn
á laugardögum.
Margrét Hrafnsdóttir
ER YNGSTIDAGSKRÁRGERÐARMAÐUR BYLGJUNNAR
og hefur vakið verðskuldaða athygli, aðeins 18 ára gömul. Margrét
stundar nám í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Hún spilar létt og
skemmtileg lög fyrir hlustendur Bylgjunnar og sér einnig um nætur-
vaktir á laugardögum frá 10-3.