Pressan - 10.11.1988, Side 22

Pressan - 10.11.1988, Side 22
22 Fimmtudagur 10. nóvember 1988 ## Meðaltekjur fyrir einn mánuð liggja einhvers staðar fyrir ofan hundrað þúsund,## segir við- mælandi PRESSUNNAR. eftir Kristján Eldjárn Höstler? Hvaö skyldi þaö nú vera? Eitthvað on'á brauð? Þeir eru ófáir sem myndu hvá viö að heyra þetta orö. Sumir myndu kannski láta hugann reika að ákveönu tíma- riti en flestir myndu halda áfram aö velkjast í vafanum. Nema kannski þeir sem séö hafa aðra hvora af myndunum sem Paul Newman hefur gert um þetta fyrirbæri. Þeir vita aö höstler er maður sem spilar ballskák upp á peninga. Svo viröist sem aö höstler- menning sé aö spretta upp á íslandi. Til aö fræöast nánar um þetta allt saman tókst mér aö hafa upp á manni sem gríp- ur talsvert í kjuða. Hann var fyrst spurður um hvort það væri nýtilkomið aö menn legðu peninga undir við ballskákariðkun. „Frá því að billjard kom til landsins hafa menn alltaf spil- aö upp á peninga. Hins vegar er frekar stutt siðan menn fóru aö leggja þetta fyrir sig, þaö er að segja að lifa nær eingöngu á þessu. Ég þekki svona um þaö bil tíu til fimmtán manns sem gera næstum því ekkert annað. Sumir eru í skóla, að nafninu til, en aörir lifa bara á þessu. Á góöum degi er hægt aö hafa allt aö fimmtiu þúsundum upp úr krafsinu, en meöaltekj- ur yfir hvern mánuö liggja kannski einhvers staöar fyrir ofan hundrað þúsundin. Svo koma alltaf lægöir í þetta ann- aö slagið, þegar maöur hefur kannski náð miklum peningum af einhverjum. Þá verður mað- ur aö taka því rólega í smátíma því annars vill enginn keppa viö mann.“ — En hvers vegna er þetta að spretta svona upp fyrst núna? „Eftir aö myndin „The Color of Money“ kom hingað fjölgaði þeim mjög ört sem höstla. I henni fundu margir einhvers konar fyrirmyndir, auk þess sem þeir lærðu reglurnar í kringum veðmálin. í megin- atriðum er þetta alveg eins og I myndinni nema þaö aö fjár- hæðirnar eru aöeins minni, og spilararnir yngri. Þaö er meira aö segja til I dæminu aö menn fari út úr bænum til að komast á nýjar stofur með nýjum spil- urum. Margir fara i Mosfellsbæ og til Keflavíkur og þeir alhörö- ustu jafnvel til Akureyrar." — Gera menn þá út frá ein- hverjum ákveðnum billjardstof- um? „Stofurnar eiga allar sínar „stofurottur" sem fara síðan á aörar stofur og keppa viö hinar stofurotturnar, og þær fá líka heimsóknir á sína stofu. Á flest- um stofunum eru haldin mót mánaöarlega. Þar mæta höstl- erarnir. Yfirleitt eru góö pen- ingaverðlaun í boöi fyrirefstu sætin, þannig aó þaö er um tvennt aó ræöa fyrir höstlerana; Það er hægt að negla á verð- launin með því aö vandasig. Svo er hinn möguleikinn. Þaö er aö spila illa og lenda neöarlega. Meö því aö gera þetta þá getur maðurverið nokkuööruggurum aö þeir sem lentu I sætum fyrir ofan mann sjálfan hafi áhuga á aö keppa viö mann. Og þá getur maður farió aö plokka þá.“ — Spila þá allir ballskákar- unnendur upp á peninga? „Nei, þaö er til dæmis allt annar flokkur manna sem spilar snóker. Höstlerarnir spila púl. Snókerinn er allur miklu viröu- legri og engir peningar í honum. Ég byrjaði I snókernum en sneri mér aö púlinu þegar ég komst aö tekjumöguleikunum. Reynd- arvoru mln fyrstu kynni af höstl- inu þau að maóur sem ég þekki leigði mig til aö spila á móti öör- um manni. Þeir tveir veöjuöu en ég spilaði, á prósentum. Eftir þaó fór ég aö veöja sjálfur. Svona útgerö er þó nokkuð algeng. Ég hef lent I því aö spila við leigöan strák. í því tilfelli var þaö maður sem ég haföi tekið mikinn pening af, sem leigði strákinn. Þetta er einkennandi fyrir höstlera, ef þeir tapa miklu til einhvers ákveöins, þá reyna þeir aö ná peningunum aftur frá þeim sama.“ — Hvernig þekkirðu þá úr sem vilja leggja peninga undir? „Maður veit alltaf hverjir spila upp á peninga. Maður þekkir hina höstlerana. Ef maður sér einhvern góðan spila þá spyr maður hvort hann sé til I aö spila, og ef vel gengur reynir maður aö koma peningum inn I dæmiö. Þaö er erfitt aö fara á hausinn af þessu, þ.e.a.s ef maö- ur hefur vit á aö hætta snemma ef maður lendir á einhverjum góðum. Það er einna helst að ! maöur brenni sig á því aö leyfa mönnum aö spila upp á skuld. i Venjulega eru peningarnir lagð- ■ ir undir fyrir leikinn en stundum eru menn blankir og fá þá aö spilauppáskuld. Égánúnainni u.þ.b. fjörutíu þúsund hjá skuldunautum. Þaö eru samt ekki bara höstlerarnir sem spila upp á peninga. Oft koma gamlir kallar á stofurnar og vilja keppa. Þeir brenna sig á því aó telja sig geta unnió þessa „strákpatta" léttilega. Fermingardrengirnir eru einnig mjög vinsælir þar sem þeir eiga nóg af pening- um.“ — Á hvaða aldri eru spilar- arnir? „Höstlerarnir eru á aldrinum frá þrettán ára og upp I fimm- tugt. Þó eru flestir I kringum tví- tugt sennilega. Hins vegar þeir sem eru aö byrja aó spila núna eru allt niður I níu til tíu ára gamlir, sumirhverjirorðnirmjög góöir strax, þannig að það er lík- legt aö þetta eigi eftir aö dafna enn frekar meö árunum." Enska sagnorðið „to hustle" hefur margar merkingar. Tvær þeirra eru: Annars vegar aö leggja sig fram og hins vegar aö reyna að klófesta viðskiptavini. Hvort tveggja passar vel viö um- fjöllunarefni þessarar greinar. Þaö sem vantar hins vegar er eitthvert gott íslenskt orö yfir þetta, þannig aö hér er verðugt verkefni fyrir íslenskufræöinga. Eitt er þaö aö lokum sem er mjög einkennilegt viö þessa menningu. Þaö er sú staðreynd aö engir kvenhöstlerar viröast vera til. Kannski er þarna komin ný leiö fyrir konur til aö fara út á vinnumarkaðinn. En hvaö veit maöur svo sem? Kannski hafa þær rætt þetta á Snæfellsnesi um daginn.

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.