Pressan - 10.11.1988, Síða 27
88GI lodmévört ,0t iupebuJir,rpR
Fimmtudagur 10. nóvember 1988
0S
FOLKAFERÐ!
Þegar fjölskyldan ferðast
er mikilvægt
að hver sé á sínum stað
— með beltið spennt.
Uí
UMFERÐAR
Irád
Auglýsing
frá Borgarskipulagi
KVOSARSKIPULAG
LÓÐ HAPPDRÆTTIS HÁSKÓLA
ÍSLANDS
1. Tillaga að breytingu á staðfestu deiliskipu-
lagi Kvosarinnar er hér með auglýst sam-
kvæmt 17. og 18. gr. skipulagslaga nr. 19/
1964. Uppbygging lóðanna Suðurgata 3
syðri hluti, Suðurgata 5 og Tjarnargata 8
breytist vegna sameiningar lóðar.
2. Landnotkun í deiliskipulagi miðbæjarins
verði í samræmi við staðfest Aðalskipulag
Reykjavíkur 1984—2004 þ.e. miðbæjar-
starfsemi.
Uppdrættir og greinargerð verða almenn-
ingi til sýnis hjá Borgarskipulagi Reykjavík-
ur, Borgartúni 3, frá fimmtudeginum 10.
nóv. til fimmtudagsins 22. des. 1988, alla
virka daga frá kl. 8.30—16.00.
Athugasemdum, ef einhverjar eru, skal skila
skriflega á sama stað eigi síðar en kl. 16.15,
fimmtudaginn 5. jan. 1989. Þeir sem eigi
gera athugasemdir innan tilskilins frests
teljast samþykkir breytingunni.
Reykjavík, 10. nóvember 1988
Borgarskipulag Reykjavíkur
Borgartúni 3,
105 Reykjavík
Styrkir til háskólanáms
í Finnlandi og Noregi
1. Finnsk stjórnvöld bjóöa fram styrk handa íslending-
um til háskólanáms eða rannsóknastarfa í Finnlandi
námsárið 1989—90. Styrkurinn erveitturtil níu mán-
aða dvalar og styrkfjárhæðin er 2.200 finnsk mörk á
mánuði.
2. Norsk stjórnvöld bjóða fram styrk handa íslenskum
stúdent eða kandídat til háskólanáms í Noregi
námsárið 1989—90. Styrktímabilið er nlu mánuðir
frá 1. september 1989. Til greina kemur að skipta
styrknum ef henta þykir. Styrkurinn nemurum 4.740
n.kr. á mánuði. Umsækjendur skulu vera yngri en 35
ára og hafa stundað háskólanám í a.m.k. tvö ár.
Umsóknum um framangreinda styrki skal komið til
menntamálaráðuneytisins, Hverfisgötu 6, 150 Reykja-
vik, tyrir 31. desemoer n.K. a serstoKum eyoubiooum
sem þar fást, og fylgi staðfest afrit prófskírteina ásamt
meðmælum.
Menntamálaráöuneytið,
8. nóvember 1988.
Drögum úr hraða ^
-ökum af skynsemi!
Hafnarfjörður —
Verkakvennafétagið Framtíðin
Tillögur stjórnar og trúnaðarmannaráðs félagsins
um stjórn og aðrar trúnaðarstöður fyrir árið 1988
liggja frammi á skrifstofu félagsins Strandgötu 11
frá og með þriójudeginum 8. nóvember til föstu-
dagsins 11. nóvembertil kl. 16.00.
Öðrum tillögum ber að skila fyrir kl. 16.00 föstu-
daginn 11. nóvember og er þá framboðsfrestur
útrunninn.
Tillögum ber að fylgja meðmæli 20 fullgildra félags-
manna.
Verkakvennafélagið Framtíöin
30 daga skilafrestur.
BAY JACOBSEN
heilsudýnan og koddinn hafa fengið frábærar
viðtökur um allan heim. Dýnan lagar sig eftir
þunga líkamans. Dýnan nuddar líkamann
á meðan þú sefur.
flquajÉ^Spopt
HEILDVERSLUN,
Sundaborg 1,124 Reykjavík,
sími: 688085
BAY JACOBSEN
Útsölustaðir: Hreiðrið, Grensásvegi 12, Rvk.
Rúmgott, Ármúla, Rvk.
Bústoð, Keflavík
Málningarþjónustan, Akranesi
Hátún, Sauðárkróki
Vörubær, Akureyri
Verslunin Aldan, Seyðisfirði
Húsgv. Höskuldar Stefánssonar, Reyðarfirði
KASK, Höfn
Reynisstaðir, Vestmannaeyjum
27
Svar til Egils
Helgasonar
blaðamanns á
Pressunni
Vegna skrifa þinna og myndbirt-
inga af húsakosti þingmanna í blaði
þínu, 3. nóv. 1988, vill undirritaður
koma eftirfarandi til skila:
Trúlega er jafnerfitt að elta ólar
við jafnómerkilegan blaðamann og
þig eins og sagt var í gamla daga að
erfitt væri að iosna við óværuna
(lúsina).
Ýmsu er ég vanur af hálfu sumra
blaðamanna, en enginn hefur, svo
ég viti til, gerst svo djarfur sem þú,
að Ijúga, trúlega vísvitandi, eins og
ummæli þín sýna, sem fylgja mynd-
birtingu þinni, þar sem þú lætur
liggja að og beinlínis segir að ég eigi
húseignina Dalbraut 3 í Reykjavík.
Vonandi ert þú ekki svo langt leidd-
ur að þú byggir þig upp innan frá
með ósannindum, dylgjum, já og
lygum, svo þú takir ekki sönsum og
viljir hafa það sem sannara reynist.
Sannleikurinn er sá, að ég á enga
íbúð í Reykjavík. Allt frá árinu
1971, að ég settist inn á Alþingi, hef
ég leigt íbúð á Dalbraut 3 og geri
enn. lbúð, sem ég tel ekki á nokk-
urn hátt iburðarmeiri en er hjá
almennu fólki í þessu landi, sem ég
tel mig tilheyra. En það sýnir „kar-
akterinn" hjá þér, Egill, að birta
mynd af húsinu sem heild og í eru
fjórar íbúðir, banki og verslun.
Fréttamennska af þessu tagi er
slík niðurlæging fyrir frétta- og
blaðamannastéttina að óorði er á
hana komið, þó vonandi séu ekki
margir slíkir þar innan dyra.
Varðandi orð þín um húseign
mína í Bolungarvík er það að segja,
að þar á ég íbúð í verkamannabú-
staðahverfi, 105 fermetra, byggða
1960.
Að lokum vona ég að þú verðir
heiðarlegri blaða- og fréttamaður í
framtíðinni, ef það á fyrir þér að
liggja, sem mér sýnist nú vera
spurning um, og í lokin: Er til of
mikils ætlast af þér að þú biðjist af-
sökunar eða leiðréttir sjálfan þig,
að því er þetta varðar.
Karvel Páimason
Alveg er mér fyrirmunað að lesa
út úr sakleysislegum myndatexta þá
fullyrðingu að Karvel Pálmason
eigi heila blokk í Reykjavík. Og
ekki er heldur fullyrt að Karvel búi
í lystisemdum praktuglega, ólíkt
almennu fólki í landinu, hvorki hér
í höfuðborginni né vestur á Bolung-
arvík. Að öðru leyti rifjast upp fyrir
mér við lestur þessa bréfkorns
nokkuð sem Sir Humphrey Apple-
by, ráðuneytisstjórinn úrræðagóði í
sjónvarpsþáttunum „Já, forsætis-
ráðherra“, hafði á orði: „The higher
the office, the higher the level of
paranoia..."
— EH
Verum
viðbúin
vetrarakstri