Pressan - 01.12.1988, Blaðsíða 19
Fimmtudagur 1. desember 1988
19
Nokkur M fyrir útMnnondi kúsmæður,
Við rákumst á eftirfarandi ráð-
leggingar í frönsku tímariti fyrir
skemmstu. Samkvæmt þeim á
kvenfólk í Frakklandi að líta yfir
sundið til Bretlands og taka lífsstíl
kvenþjóðarinnar þar í landi sér til
fyrirmyndar. Eflaust veitir ís-
lenskum útivinnandi konum ekk-
ert af því að tileinka séi þennan
boðskap og þess vegna látum við
þetta flakka í lauslegri þýðingu:
Sagt er um enskar konur, að
þær séu þær rólegustu í hinum
vestræna heimi. Þegar fólk kemur
í heimsókn taka þær á rnóti gest-
um sínum sallarólegar með allt á
öðrum endanum í kringum sig.
Gúmmístígvél kíkja undan sófan-
sem olfttf ím á hlatftim
um, óhreinir tebollar skreyta
stofuborðið og eldhúsið er eins og
eftir loftárás. En brosið hennar
Dorothy er dásamlega afslappað,
hún hefur heilmargt að segja þér,
hún var að sulta eða þurrka blóm,
les tíu bækur á mánuði, segir
brandara og hlær.
Er ekki góð hugmynd að verða
svolítið ensk í vetur og gefa sér
tíma til að njóta lífsins? Vera jafn-
góð við sjálfa sig og aðra og leyfa
hinum í fjölskyldunni að rétta
hjálparhönd.
Ráðleggingar til þeirra kvenna,
sem vilja lifa rólegra iífi:
1. Láttu það eftir þér að Jara í bíó
og lesa góða bók. Þvotturinn,
matseldin og tiltektin fara ekki
neitt á meðan.
2. Vertu ekki með samviskubit þó
þú farir í gönguferð eða rabbir við
gamla vinkonu. Stutt ánægju-
stund getur gert kraftaverk.
3. Notaðu dagbók til að skipu-
leggja tíma þinn.
4. Kauptu inn í miklu magni, t.d.
5 sokkabuxur, 40 frímerki, 2 tékk-
hefti í einu, o.s.frv.
5. Ekki stoppa í sokkana, þó
tengdamóðir þín segi það borga
sig. það er ekki rétt!
6. Kauptu föt á börnin í póstversl-
un í stað þess að draga þau, nauð-
ug viljug, með þér í bæinn.
7. Gœttu þess að sofa nóg.
8. Ekki hlaða á þig of mörgum
skyldustörfum.
9. Taktu símann úr sambandi eða
fáðu þér símsvara, ef þú ætlar að
eiga rólegt kvöld.
10. Taktu strœtó annað slagið. Þú
hvílist á meðan einhver annar
keyrir.
11. Ef þú ert góð að sulta og vin-
kona þín að prjóna, þá er um að
gera að skiptast á þjónustu.
12. Skrepptu í burtu (á hóteU) til
að halda upp á afmœlið með
manninum þínum. Það er róman-
tískara og meira afslappandi en
stórar veislur.
13. Leyfðu börnunum að ráða
hvernigþau klœðasig, ef fötin eru
nógu hlý. Þau verða að fá að
þroska sinn eigin smekk.
14. Geta eldri börnin ekki hjálpað
þeim yngri við námið?
15. Það er ekki nauðsynlegt að
borða heita máltið á hverjum
degi.
16. Ekki sauma upp faldinn á
buxum barnanna. þau vaxa svo
hratt að best er að bretta bara upp
á þær.
17. Hafðu öll eldhúsáhöldin á
ákveðnum stað. Fjölskyldumeð-
limirnir eru síðan gerðir ábyrgir
fyrir að skila öllu aftur á sinn stað.
18. Uppþvottavél borgar sig —
jafnve! fyrir tvo.
19. Örbylgjuofnar spara tíma.
20. Það er mjög þægilegt að eiga
hálfmatreidda rétti í frysti.
21. Reyndu að eiga sem mest af
lökum, dúkum og fötum, ,sem
ekki þarf að strauja.
við aðventunni
á eftirminnilegan hátt. Gamanið byrjarstrax við innganginn
þarsem ilmandi jólaglóð yljar gestunum.
ISúlnasal svigna veisluborðin undan þríréttaðri
hátíðamáltíð með höfðinglegri möndlugjöf:
Ferðfyrirtvo meðAmarflugi tilHamborgareðaAmsterdam.
Svo duna jólalögin í bland við gamla góða slagara
ogfjörugan fjöldasöng. Það eru þau Raggi Bjama,
ÞuríðurSigurðarogHelga Möllersem leiða okkur inn í nóttina
við dúndrandi undirleik hljómsveitar hússins.
Kynnir verður Magnús Axelsson.
Midaverð með mat kr. 3.500,-
Borðapantanir: Virka daga frá kl. 9.00-17.00 í síma 29900.
Föstudaga og laugardaga í stma 20221.
m
Ármúla3-108Reykjavík- Sími91 -680988