Pressan - 01.12.1988, Side 27
8§&PŒM§8H&1 f eligftWÍWi ;^88
•2>
AIWA AIWA AIWA AIWA AlWA AlWA AlWA
HEFUR ÞIÐ EKKI ALLTAF LANGAÐ í
ALVÖRU HLJÓMTÆKI
Þá er CP 770 samstæðan frá
AIWA
tilvalin, og nú á einstöku jólatil-
boðsverði.
• 2x50W magnari
• 5 banda tónjafnari
• FM,- mið og langbylgja útvarp
með sjálfleitara og 24ja stöðva
minni
• Spectrum analyser
• Surround System
• Al sjálfvirkur plötuspilari
• Tvöfalt segulband, þar af annað
með sjálfvirkri tilbaka upptöku og
spilun (auto reverse)
• Þráðlaus fjarstýring
Verð áður kr. 54.550.-
Jólatilboðsverð kr.39.980.-
AIWA ER BETRA
D
í\dulO
jéRB
LJ
Ármúla 38, símar 31133 og 83177,
Sendum í póstkröfu
V/SA
Á hverjum laugardegi:
ÖKUÞÓR
Bráðfyndinn þáttur um hrekkjóttan
einkabílstjóra sem hefur munninn fyrir
neðan nefið.
Á hverjum fimmtudegi:
MATLOCK
Annan hvem miðvikudag:
HEMMIGUNN
Líflegir spjall- og grínþættir með
músíkívafi, í umsjón hins fjörmikla
Hemma Gunn.
Á hverjum sunnudegi:
MATADOR
Vandaður danskur framhaldsþáttur
um fólkið og lífið í bænum Korsbæk.
Góður leikur, góður húmor.
Annan hvem þridjudag:
ÁÞVI,
HERRANS ARI
Fróðlegir þættir fyrir alla, byggðir að mestu
á áramótaannálum Sjónvarpsins.
Hinn hægláti en snjalli lögmaður
leysir erfiðustu sakamál af innsæi
og kunnáttu.
Og að auki: bíómyndir, þættir tyrir
börn og unglinga, íþróttir, þættir úr
menningarlífinu og fræðslumyndir.
Með Sjónvarpinu ertu vel settur-
það nær sambandi við þig.
SJÓNVARPIÐ
Siðastliðið föstudagskvöld
hélt hljómsveitin Síðan skein
sól útgáfutónleika í Tunglinu.
Fyrir viku kom út þeirra fyrsta
breiðskífa, sem heitir einfald-
lega sama nafni og hljómsveit-
in.
Á undan „sólinni" kom fram
hljómsveit ofan af Akranesi,
sem að sögn söngkonu sveitar-
innar, Önnu Halldórsdóttur, er
svo ný að það gleymdist að gefa
bandinu nafn. Hljómsveitin
flutti nokkur lög og ég verð að
segja að hún kom mér á óvart.
Sérstaklega þó söngkonan,
Anna Halldórsdóttir, sem hefur
mikla rödd og getur gert góða
hluti með henni í framtíðinni.
Trommarinn var traustur, en
meira mætti heyrast í gítarleik-
aranum og af meiri ákveðni.
En svo steig „sólin“ á svið í
Tunglinu. Helgi Björnsson sett-
ist á sviðið og hóf að raula í
rólegheitunum lagið Dag-
drauma. Síöan var sett á fulla
ferð; Einfalt mál, Geta pabbar
ekki grátið, Ljóshærður strákur
og 1 + , sem m.a. felur í sér
ádeilu á sjónvarp, hnignandi
siðferði og hrokafulla fram-
göngu vissra manna: „Trén eru
felld/ húsin eru rifin/ Tjörnin er
þurrkuð/ fyrir ævintýrahöll..."
Á eftir þessum kröftuga rokk-
kafla á tónleikunum róuöu þeir
félagar sig niður með lögunum
Glugganum og Svo margadaga.
Glugginn er sérstaklega
skemmtilegt lag og óvenjulegt
að heyra svona lagasmíð frá
rokksveit. Blautar varir voru
næstar. Hljómsveitin flutti lagiö
í lengdri útgáfu og var sérstakt
að fylgjast með Jakobi bassa-
leikara hamast á hljóðfærinu.
Síðan skein sól flutti nokkur lög
I viðbót, mest af plötunni, en þó
var Bannað þarna og svo Satis-
faction eftir „Rollingana". Var
gaman að fylgjast með Helga
syngja það, því honum hefur oft
verið líkt við Mick Jagger og er
sú samlíking ekki alveg út í hött.
Þessir tónleikar voru hinir
ágætustu, þó voru tónleikar
„sólarinnar" á Listahátíð í sum-
ar það allra besta sem ég hef
heyrt frá þeim. En það er nú
kannski ekki alveg réttlætan-
legt að bera þessa tvenna tón-
leika saman, bæöi vegna húsa-
kynna og svo hljómkerfanna
sem notuð voru, það er tvennt
ólíkt. Síðan skein sól er ennþá
besta tónleikasveit landsins
með pottþéttan hljóðfæraleik
og kröftuga sviðsframkomu, en
sviðið í Tunglinu er bara alltof
lítið fyrir Helga. Rétt eins og
Mick Jagger þarf Helgi risastórt
svið til að geta sinnt eðlislægri
hreyfiþörf sinni. ■
TYGGJÓ
TAKK
Nýjustu rannsóknir við
tannlœknadeild háskóla í
lowa í Handaríkjunum sýna,
að gáfulegt er að Já sér
sykurlaust tyggjó eftir
matinn. Tyggjóið flýtir nefni-
lega fyrir þvi að sýrustigið í
munninum komist í eðlilegt
horf eftir neyslu kolvetna-
ríkrar fœðu og dregur þannig
úr tannskemmdum.
Við sama skóla var gerð
könnun á því hve lengi menn
þyrftu að bursta tennurnar
til að koma í veg fyrir
skemmdir. I>að er hvorki
meira né minna en heilar
fimm mínútur! Meirilduti
fólks ver hins vegar mun
skemmri tíma til tannburst-
unar, þar sem þetta hefur
verið kannað.
GET BÆTT
VIÐ MIG
VERKEFNUM
nýlagnir
teikniþjónusta
viðhald og viðgerðir
LÖGGILTUR RAFVERKTAKI
Upplýsingar í síma 72965