Pressan - 22.12.1988, Blaðsíða 25

Pressan - 22.12.1988, Blaðsíða 25
FI.JÓTT • fUÓTT - AllCLf9INCASMIDJA Fimmtudagur 22. desember 1988 Finnur Árnason, sonur Árna í Hraunkoti, herbergisfélagi Hannesar, en Hannes telur víst að Finnur ætti frekar heima á vitlausraspítala. En ef Finnur er í raun á réttri deild, hvað má þá halda um Hannes? Finnur telur aftur á móti að hann sé á hótelherbergi á Spánarströnd. Kannski er það bara rétt hjá honum. Olé! Steini Hálfgerður auli, greyið, en heimsœkir Hannes föður sinn samviskusamlega með malt og appelsin og „bland ípoka“. Passar húsið í fjarve.ru pápa, en sá gamli grunar sonvnn’um að draga gæsir heim um helgar. Steini sver að það séu bara rjúpur. Hannes Lagður inn til rannsókna, ekki vitað hvað á að rannsaka. Gerist kvensamur þegar hann fær „bland í poka“, og þá má Brúnhilde hjúkrunarkona vara sig. Þolir ekki spítalamat, roluháttinn í syninum eða ruglið í herbergisfélaganum. Aðrar persónur Heimsóknartímans: Saxi lceknir: Þarfnast ekki kynningar. Brúnhilde von Mayerhaft hjúkrunarkona: Hannes vill kynnast henni betur. Brúnhilde er þýsk, og gceti því verið Þjóðverji, en það fer eftir því hvers lensk hún er. Nenni: Hjúkrunarfrœðingur með alla þá takta sem einkenna komma. Þeir eru ekki gengnir af göflunum, en örugglega af skeiðunum. Þó rofar til endrum og sinnum, aðallega í Heimsóknartímanum, virka daga á Stjörnunni klukkan 11, og ruglið er svo endurtekið klukkan 17 og 23 sama dag. FIV1102,2 4104 Sjúklega skemmtileg

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.