Pressan - 22.12.1988, Blaðsíða 5

Pressan - 22.12.1988, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 22. desember 1988 Jólasiðirnir okkar koma ótrúlega víða að Hverjum datt tyrst í hug að draga grenitré inn í hús og skreyta það? Hvaðan koma að- ventuljósin? Hvar fengum við þá hugmynd að setja skó út í glugga á aðventunni? Hvaðan eru jólasiðirnir okkar eiginlega upprunnir? gjaman smiðuó lítil tré þann- ig að ofan í stöpul var sett prik eða stólpi og inn í hann stungið álmum eða kerta- spööum eins og margir köll- uðu þá. Þetta var síðan vafið með sortulyngi, krækilyngi eða eini eftir því hvað fékkst og sett á þetta lifandi Ijós — kerti — á jólunum.“ — Á það sér einhverja sögu sem við hengjum á trén? „Það skraut sem við velj- um okkur kemur að mestu leyti frá Danmörku og reynd- ar öðrum löndum Evrópu lika. Skrautið virðist vera samferða jólatrénu. Skrautið hefur náttúrlega breyst eftir því sem liðið hef- ur á öldina. í byrjun aldarinn- ar voru hjörtu og kramarhús vinsæl. Síðan hafa verið að koma sífellt þróaðri kúlur. Mér skilst meira að segja að hægt sé að fá töluvert af jólakúlum úr plasti núorðið." — Hvaö til dæmis um eft- irlikingar ávaxta sem maður sér stundum á erlendum jóla- trjám? Hafa þær engri fót- festu náö hér? „Jú, það sýnist mér,“ svar- aði Hallgerður. „Epli voru til Stöðugt styttist til jóla. Siðustu daga og vikur hafa flest okkar verið önnum kafin við að undirbúa komu þeirra. Skúrað, skrúbbað, bónað. Hengt upp kransa og Ijós. Bakað og bruggað. Áð minnsta kosti bakað! Sumir eru búnir að skreyta jólatréð. Aðrireru í viðbragðsstöðu. Enginn má vera að því að spyrja sig: Af hverju gerum FJÖLÞJÓÐLEGIR SIDIR Jólasiðirnir sem við höfum tileinkaö okkur koma víða að. Það kom í Ijós í samtali Pressunnar við Hallgerði Gísladóttur, þjóðháttafræð- ing á Þjóðminjasafninu. Hall- gerði hafa áreiðanlega verið jólin sérlega ofarlega í huga þetta árið því að hún vinnur við sýningu þá er safnið setti upp til að kynna siði og venj- ur landsmanna í gamla daga. Er hún hafði veitt okkur allar umbeðnar upplýsingar fór hún til dæmis beint í að sjóða bjúgu handa Bjúgna- kræki sem væntanlegur var á hverri stundu í safnið. „Við vitum fyrir þaö fyrsta ekki hvað orðið jól þýðir,“ sagði Hallgerður. „Þau hafa verið haldin hér frá örófi alda — allt síðan í heiðni — sem skammdegishátíð til að örva sólina í að rísa aftur. Heiti margra annarra þjóða á hátíð- inni tengist kristni. Til dæmis Christmas eða Krists- messa á ensku og Weih- nachten eða heilaga nóttin á þýsku. Viö höfum hins vegar haldió okkar gamla heiti.“ JÓLATRÉ OG -SKRAUT — Viö erum sifellt aö breyta siöum okkar sem tengjast jólunum. Taka upp nýja og leggja minni áherslu á aðra. En ef viö skoðum hlutina hvern af öðrum og byrjum á jólatrénu sjálfu, hvaðan fáum viö þaö? „Fyrst er talað um jólatré í Þýskalandi á sextándu öld og síðan breiðist það norður um Evrópu," svaraði Hallgerður. „Rétt eftir 1800 er það komið til Norðurlanda. Hér á landi sést það fyrst um miðja síð- ustu öld en veróur ekki al- gengt fyrr en á þessari. Víða úti um sveitir var ekki haft jólatré í byrjun aldar. Úti í Evrópu þjónaði greni- tréð hlutverki jólatrés. Hér gekk hins vegar ekki alltaf vel að verða sér úti um greni- tré svo að fólk varð að bjarga málunum öðru vísi. Þá voru ASGEIR TÓMASSON við einmitt þetta en ekki eitt- hvað annað á jólaföstunni?

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.