Pressan - 22.12.1988, Blaðsíða 23

Pressan - 22.12.1988, Blaðsíða 23
Fimmtudagur 22. desember 1988 23 nærmynd Egill Eðvarðsson Súkkulaði- drengur sem breyttist í bítil eflir Bergljótu Daviðsdóltur Að kvöldi annars dags jóla verður frumsýnt I Ríkissjón- varpinu nýtt íslenskt leikrit byggt á þjóðsögunni um Djáknann frá Myrká eftir Egil Eðvarðsson. Sjálfur segir hann Djáknann vera það verk sem hann er hvað ánægðastur með af öllu þvl sem hann hefur fengist við til þessa. Egill er fæddur á Akureyri í október árið 1947, og segir að þrátt fyrir að hafa lengstum búið í Reykjavík hafi hann ætíð sterkar taugar þangað. „Ég segi börnum mínum gjarnan sögur á kvöldin áður en þau fara að sofa og hvernig sem á því stendur hvarflar hugurinn alltaf til bernskuára minna fyr- ir norðan. Ég spinn í kringum það sem ég sjálfur upplifði sem barn,“ segir hann. ENGINN KÚRISTI Steindór Gunnarsson, lög- fræðinguráAkureyri, eræsku- félagi og skólabróðir Egils. Þeir gengu saman I skóla og eru samstúdentar frá MA. Um skólaár þeirra Egils segir Steindór: „Hann var enginn kúristi, en átti gott með að læra, sér I lagi það sem hann hafði gaman af, hitt lét hann lossa en engu að síður náði hann góðum árangri i skóla.“ Steindór segir þá félaga einn- ig hafa unnið saman á sumrin í bæjarvinnunni á Akureyri undir verkstjórn afa Egils sem hafi verið þekktur maður þar I bæ og náð hundrað ára aldri.“ „Hann hét Jón Vopni og var ættaður frá Vopnafirði og var Egill augasteinninn hans. Við áttum nú til að slugsa dálítið f vinnunni og tókum lífinu létt,“ segir Steindór. Foreldrar Egils eru hjónin Marta Jónsdóttir og Eðvarð Sigurgeirsson, Ijósmyndari og kvikmyndatökumaður, og bjó fjölskyldan viö Möðruvalla- strætið. Snemma var Egill far- inn að fylgja föður sínum eftir við vinnu. Eðvarð faðir hans var að segja má nokkurs konar frumkvöðull í kvikmyndagerð og var sonurinn í miklu uppá- haldi hjá karli föður sinum; sannkallaðuraugasteinn hans er haft eftir Steindóri. GJÖRBREYTTIST í AMERÍKU Sjálfur segir Egill ekki hafa staðið til að læra kvikmynda- gerð — heldur arkitektúr. En það datt upp fyrir þegar hon- um bauðst Rotary-styrkur til framhaldsnáms í Bandarikjun- um eftir stúdentspróf. Hann hafði frá barnsaldri verið drátt- hagur og lá þá beinast við að skella sér I myndlistarnám sem hann og gerði. Egill dvaldi þar í eitt ár og á þeim tímum voru mikil umbrot þar vestra. Blóma- og hippatímabilið I al- gleymingi og sterk andspyrna gegn stríðinu í Víetnam. Steindór Gunnarsson, fé- lagi Egils, segir hann hafa komið gjörbreyttan heim; ekki aöeins i útliti heldur hafi við- horf hans til lífsins snúist við. Þessi vel uppaldi, prúði súkku- laðidrengur, sem hafði í æsku verið virkur í æskulýðsfélagi kirkjunnarog kveikti þarákert- um ásunnudagsmorgnum, var ekki sá sami. „Ég tel að hann hafi orðið fyrir miklum áhrifum vestra, enda vart komist hjá því frekar en aðrir sem þar dvöldu á árum Víetnamstríðsins. Það s^n mér fannst hvað merkilegast var hvað eitt ár gat haft geysilegasterk áhrif álífs- skoðun hans. Sjónvarp var tómt kjaftæði, tíminn skipti ekki máli og úr og klukkur nokkuð sem ekki var þörf. Síðan og ekki sist hafði að hans mati ungt fólk ekkert með það að gera að eignast börn. En þessar skoöanir áttu ekki lengi upp á pallborðið hjá honum, enda er Egill í dag mikill heimilisfaðir og nýtur þess að vera samvistum við börn sín. SJÁLFSÖRUGGUR MEÐ STERKAR TAUGAR Aöal Egils finnst mér vera hversu sterkar taugar hann hefur og sjálfsöryggið mikið og þá á ég ekki við I neikvæðri merkingu. Hann er líka mikill vinnuþjarkur og lætur aldrei fara frá sér verk fyrr en hann er fullkomlega ánægður. Nei, Egill er ekki maður sem fellur inn I tjöldann og hann er óhræddur við að brydda á nýj- ungum. Ég man til að mynda þegar Bítlarnir með sitt siða hár komu fram á sjónarsviðið, þá var Egill ekki lengi að verða fyrsti bítillinn á Akureyri. Það segir Ifka heilmikiö um sjálf- stæði hans, að hann varð ekki beint aðdáandi þeirra — held- ur var það Rolling Stones sem varð hans uppáhaldshljóm- sveit. Við áttum því láni að fagna að vera sendir til Bret- lands sumartíma til náms í ensku og hygg ég að við höf- um verið með fyrstu íslending- um að sækja tónleika þeirrar frægu hjómsveitar. Egill lét sér ekki nægja að fara bara einu sinni, heldur oftar.“ Þrátt fyrir að þeir Steindór hafi verið mikið samvistum á sínum yngri árum og brallað ýmislegt hafa tengslin rofnað með tímanum. Steindór segir þó að þeir hittist ailtaf af og til og eigi þá ánægjulegar sam- verustundir og fylgist hvor með öðrum. ÁST VID FYRSTU SÝN Egill er tvíkvæntur og á 17 ára gamlan son með fyrri konu sinni; Hrafnhildi Hrafnsdóttur flugfreyju. Seinni kona hans, Guðrún Bjarnadóttir, er einnig flugfreyja og eiga þau saman tvo syni, 7 og 10 ára gamla, og í mars nk. er væntanlegt í heiminn nýtt krili og kemur það engum á óvart sem til þekkja, þar sem Egill er mikill barnakall. Um Egil segir Guð- rún kona hans að hann sé sér- stakt Ijúfmenni, þægilegur I umgengni og hafi einstakt jafnaðargeð. „Það má með sanni segja að þegar ég leit hann fyrst augum hafi það verið ást við fyrstu sýn og ekki hefur dregið úr henni, heldur vex hún með hverjum degin- um,“ segir Guðrún. „Egill er auk þess mikill húmoristi, jákvæður og hefur þann hæfileika að sjá björtu hliðarnar á tilverunni. Hann er minn besti vinur og við eigum auðvelt með að tala saman um það sem við erum að gera. Hann stappar í mig stálinu og sér ævinlega jákvæða lausn á öllum þeim vandamálum sem upp kunna að koma. Hann ber einnig undir mig það sem hann er að fást við, sem er ekki svo lítið. Stundum skil ég ekki hvernig hann^temur öllu því í verk sem hann er að gera, þvi hann lætur heimilið sitja I fyrirrúmi án þess að það bitni á vinnunni." Til marks um það segir Guð- rún þaðoftsinnis komafyrirað þegar hún sé föst I vinnu geti hann átt það til að hætta I miðju verki til að ípra heim og sinna drengjunum. MED ALLT Á HREINU Sigurður Jónasson var að- stoðarmaður Egils við upptök- ur og vinnslu á Djáknanum. Um Egil segir Sigurður: „Það var hreint út sagt stórkostlegt að vinna með Agli. Hann vissi nákvæmlega hvað hann var að gera — var með allt á hreinu — og hélt ró sinni hvað sem á dundi. Hann var ákveðinn án þess að örlaði á frekju og var mjög samvinnuþýður og tók Ijúfmannlegaöllum ábending- um frá okkur hinum; semsagt alltaf tilbúinn að hlusta á til- lögur sem komu frá öðrum. Hann ö^hugmyndarikur og fer ótroðnar slóðir; sannkallaður listamaður af guðs náö.“ Allir þeir vinir og kunningjar Egils sem PRESSAN leitaði til voru á einu máli varðandi mannkosti Egils. Þó leitað væri til margra aðila fékkst enginn til að segja annað en gott um hann — jafnvel ekkert gagnrýnivert. Það er Hrafn Gunnlaugsson sem á lokaorðin: „Æðruleysi er hans aðal. Hann er heill f samskiptum við fólk og hefur gott auga fyrir umbúðum. Á þvi sviði hefur hann kennt mér mest. Við höfum átt langt sam- starf og það hefur oft tekist vel. Við bætum hvor annan upp.“ Jakob Frímann Magnússon Únikum blanda Ég hitti Egil fyrst í sturtu. Hann var þá malbikunar- maður en ég sendill. Ég horfði öfundaraugum á þennan kafloðna og karlmannlega malbikunarmann í heil tvö sumur. Hvorugur okkar yrti á hinn, en ég hugsaði oft með sjálfum mér: Skyldi ég verða svona glœsilegur og loðinn á bringunni þegar ég verð stór? Svo varð ekki. Þetta var í sundlaugunum á Akureyri ca. 1965. Við Egill kynntumst síðan einum 10—12 árum síðar hér í Reykjavík og það kom mér á óvart hve stór- skemmtilegum persónuleika þessi hœg- og hljóðláti malbikunarmaður lumaði á. Hann er úníkum blanda af snjöllum myndlistarmanni, vel spilandi tónlistarmanni, notalegum fjölskyldumanni og frábcerum húmorista. Um hœfni hans sem stjórnanda og kvikmyndargerðar- manns þarf náttúrulega ekki að fjölyrða, þar tala verkin. Örlögin höguðu því svo að nú búum við nánast hlið við hlið og það er ekki hcegt að hugsa sér betri vini og nágranna en þau Egil og Guðrúnu. Við Ragnhildur lítum á þau sem hluta af fjölskyldunni.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.