Pressan - 22.12.1988, Blaðsíða 14

Pressan - 22.12.1988, Blaðsíða 14
14 Fimmtudagur 22. desember 1988 Athugasemd vegna nærmynd ar af Guðna Bergssyni Guðni er hirðfiflid i sinum hópi, en nýtur somt virðingar. Vegna þeirra ummæla sem voru höfð eftir undirrituðum í nærmynd af Guðna Bergssyni knattspyrnu- manni í Pressunni í síðustu viku sé ég mig knúinn til að leiðrétta ýmis- legt sem þar kom fram. Á einhvern óskiljanlegan hátt hefur jákvæð umfjöllun mín í garð Guðna mátt skiljast sem neikvæð gagnrýni en það var ekki meiningin, því á fáum einstaklingum hef ég meira álit en Guðna Bergssyni. Blaðamaður Pressunnar ræddi við mig í gegnum síma og skolaðist greinilega margt til frá því viðtalið átti sér stað og blaðið fór í prentun. Eitt lærði ég þó á þessu, en það er að maður skal ávallt fá að lesa það yfir sem haft er eftir manni opinberlega. Ég sagði t.d. við blaðamann Pressunnar, til þess að sýna hina sterku stöðu Guðna í Valshópnum, að hann væri hirðfífið í hópnum í jákvæðri merkingu þess orðs og nyti mikillar virðingar. Þetta já- kvæða komst aldrei á prent og því síður var orðið hirðfífl sett innan gæsalappa eins og óskað var eftir. Einnig ræddum við um þær fram- farir sem Guðni myndi taka um leið og hann gerðist atvinnumaður, því hjá Tottenham er „standardinn" mun hærri en á íslandi. í því sam- bandi minntist ég á ýmislega knatt- spyrnulega þætti Guðna en þeim var slegið upp í óþarfa fullyrðingar í Pressunni. Til að mynda sagði ég við blaðamanninn að Guðni tæki aldrei áhættu í vörninni og bætti við að það væri mikill kostur varn- armanns. Þetta síðasttalda komst aldrei á prent. Þeir sem þekkja til knattspyrnumannsins Guðna Bergssonar efast aldrei um getu hans á knattspyrnusviðinu né þá möguleika sem hann á í framtíð- inni. Staða Guðna í íslenskri knatt- spyrnu er til merkis um það og hann' hefur hlotið ýmsar viðurkenningar að loknu hverju keppnistimabili með Val. Persónulýsing Guðna komst heldur ekki til skila, því ætla mætti af ummælum í Pressunni að Guðni væri kærulaus jóiasveinn sem aldrei nennti að leggja nokkurn skapaðan hlut á sig. Hið sanna í málinu er að vegna þess hve einstak- lega jákvæður og léttlyndur Guðni Bergsson er hefur hann farið í gegn- um ýmsar prófraunir með bros á vör, á meðan aðrir hafa gert það með fýlusvip og óþarfa alvöru. Þótt Guðni sé meiri húmoristi en gengur og gerist með menn almennt hefur sá þáttur ávallt vikið fyrir alvörunni þegar hún þarf að vera til staðar. Metnaðurinn er sannarlega fyrir hendi hjá honum og heiðarleikinn er ávailt í fyrirrúmi. Guðni hefur til að mynda stundað erfitt lögfræði- nám samhliða knattspyrnuiðkun sinni og gert það með sóma. Hversu margir afreksíþróttamenn skila fullnægjandi námsárangri sam- hliða erfiðu keppnistímabili? í lok greinarinnar reyndi undir-' ritaður að lýsa þeim góða anda sem er í Valshópnum á mjög barnalegan hátt. Þar eru ýmsir „loka!“ brand- arar í gangi eins og gengur og gerist í hópíþróttum, sem vonlaust er fyrir alþjóð að skilja og engin ástæða til. í því sambandi nefndi ég það þegar Guðni tekur sig til og nefnir leik- menn hinum ýmsu nöfnum á gam- ansaman hátt og veldur það ávallt mikilli kátínu nærstaddra. Þessi frásögn komst engan veginn til skila enda voru það mistök að reyna að koma henni til skila á sannfærandi hátt. Tilgangur þessarar frásagnar átti að vera sá að lýsa því að Guðni væri ávallt hrókur alls fagnaðar og sá sem ætti mestan heiðurinn af þeim góða anda sem ríkir í Val í dag. Guðni skilur eftir sig stórt skarð í Valshópnum, bæði sem leikmaður og persónuleiki. Hann hefur stigið skrefið sem allir biðu eftir og fram- tíðin mun leiða það í Ijós fyrir fleir- um en íslendingum að þar er ein- stakur hæfileikamaður á ferð. Virðingarfyllst, Þorgrímur Þráinsson. Guð almáttugur hjálpi þér Endurminningar séra Sigurðar Hauks Guðjónssonar Séra Sigurður Haukur hefur löngum verið umdeildur, enda þekktur fyrir að segja skoðun sína afdráttarlaust. íþessari hispurslausu bók fjallar hann m.a. um: • skemmtilega atburði frá æskuárunum í Ölfusi • fjölda samferðamanna • læknamiðla • hinar „alræmdu “ poppmessur # hestamennsku • sálarrannsóknir • brottrekstur frá útvarpi og sjónvarpi Nýja Bókaútgáfan Sími 681268 —Bjódd vetrinum byrainn! Með BRIDGESTONE „ÍSGRIP“ vetrar- hjólbörðunum færð þú gripið, sem þú þarft í vetur. Tryggðu öryggi þitt og þinna a í vetur, keyptu BRIDGESTONE „ÍSGRIP“ | undir bílinn — þeir fást hjá hjólbarðasöl- í um um lanxt allt.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.