Pressan - 22.12.1988, Blaðsíða 17

Pressan - 22.12.1988, Blaðsíða 17
bækur Fimmtudagur 22. desember 1988 verið að hugsa til þess að núna séu allir á spani heima á íslandi við að kaupa jóla- gjafir og það er bara gott að vera laus við þaó einu sinni. Hér er nákvæmlega ekkert stress." — Hvernig stód á þvi að þú tókst að þér þetta verkefni fyrir Rauða krossinn? „Ég var í Eþíópíu fyrir Hjálparstofnun kirkjunnar ár- ið 1985 og skráði mig svo í hjálparstarf hjá Rauða kross- inum eftir það því það er mjög fróðlegt aö taka þátt í þessu og kynnast framandi þjóðum. Þetta hefur veriö mjög eftirminnilegur tími.“ Kristín segir að hennar starfstími í Taílandi renni út um miðjan næsta mánuð, en þá kemur annar íslenskur hjúkrunarfræðingur í hennar stað. „Þá ætla ég að ferðast eitthvað um Asíu áður en ég kem heim,“ segir hún. — Hvernig er aðstaðan hjá ykkur á sjúkrahúsinu? „Spítalinn er mjög vel rek- inn en við notum aðallega hugvitið og hendurnar því það er mjög lítið um tæki hér. Að vísu eru tæki á skurð- stofunni en þegar við skipt- um á sárum verðum við bara að þvo okkur upp úr klórvatni og nota berar hendurnar. Þaö eru sko engir sótthreinsaðir hanskar hér. Þetta voru mikil viðbrigði fyrst en svo hef ég vanist þessu og þetta hefur gengið Flestir sem slasast á flóttanum yfir landamærin hafa stigið á jarð- sprengjur. Að sögn Kristínar koma 2—3 slasaðir flóttamenn á skurðsjúkrahúsiö á hverjum degi. Kristin starfar við skurðsjúkrahúsið i Thaiscan, en þangað er komið með flóttamenn sem hafa særst á leið sinni yfir landamærin frá Kambútseu. um og ekkert minnir á jólin. Það eru líka allir dagar eins. Við vinnum hér alla daga og líka um jólin en ég býst við að það skapist jólastemmn- ing þann 24. þegar við förum að undirbúa kvöldið. Það verður væntanlega kalkúnn í jólamatinn og svo þessi venjulegi taílenski mat- ur, kjúklingar og svínakjöt í allskoná'r karrísósum. Og svo náttúrlega grjón í allan mat.“ — Saknarðu jóianna hér heima? „Nei, eiginlega ekki. Ég hef ágætlega til þessa. Við ætlum bara að hafa það rólegt og gott um jólin því það verður vonandi rólegt við landamærin. Þó veit maö- ur aldrei hvenær ófriður brýst út. Ég býst því bara við að ég hafi það gott þessa daga og «, ætla að njóta þess að þurfa ekki að spana um göturnar við að leita aö jólagjöfum eóa standa í kökubakstri," sagði Kristín Davíðsdóttir hjúkrunarfræðingur í Tailandi og bað að sjálfsögðu fyrir jólakveðju heim. „Gott að vera laus við jólaspanið heima“ segir Kristín Davíðsdóttir hjúkrunarfrœðingur, sem er nú við hjálparstörf á vegum Rauða krossins í Taílandi. Hún býst við rólegum jólum en þó er aldrei að vita hvenœr ófriður brýst út við landa- mœrin. slasast af völdum jarð- sprengja þegar þeir eru að flýja yfir landamærin." — Hvernig ætliö þiö aö halda jólin hátiðleg þarna? „Það verða væntanlega skandinavísk jól á aðfanga- dagskvöld en jólahald með amerísku sniði ájóladag með. kalkún og tilheyrandi. Hér skortirekki matvæli og þess háttar. Taílendingar halda ekki jól en þeir nota hvert tækifæri til að halda veislur og það verða því mikil hátíðahöld hér bæði um jól og áramót. Hljómsveitir spila á götum úti og mjög fallegar Ijósa- skreytingar verða settar upp.“ — Er kornin jólastemmn- ing i hópinn? „Nei, það er langt frá því. Við liggjum hér í sólbaði í frí- Kristin Davíðsdóttir, hjúkrunarfræðingur úr Reykjavik, verð- ur fjarri heimahögunum um jólin. Hún er nú við hjálpar- störf á vegum Rauða krossins á skurðspítala í Thaiscan í Taílandi, sem er rétt við landamæri Tailands og Kambútseu. PRESSAN sló á þráðinn til Kristinar til að forvitnast um jólahald á þessu framandi ófriðarsvæði en þar eru nú um 300 þúsund flóttamenn sem hafa komið yfir landamærin frá Kambútseu. „Það er mjög skrítið að vera hér um jólin í sól og hita en ég hef það mjög gott. Hópurinn sem starfar hérna er frá tíu þjóðlöndum og við hyggjumst halda sameigin- legt jólaboð. Ég er eini Is- lendingurinn í hópnum en hann samanstendur af Norð- urlandabúum, Bandaríkja- mönnum, Japönum, Nýsjá- lendingum og svo að sjálf- sögðu Svisslendingum. Við störfum hér á eina skurðsjúkrahúsinu sem starf- rækt er fyrir flóttafólkið. Allir sem verða fyrir loftárás, slas- ast vegna jarðsprengja eða verða fyrir skotsárum eru færðir til okkar,“ segir Krist- in. — Hvernig er ástandið við landamærin núna? „Það hefurverið rólegt undanfarið. Frá því að ég kom hingað í júli í sumar hef- ur ekki verið mikið urh stór- slys en fyrsta daginn okkar hér komu tuttugu sjúklingar inn eftir loftárás. Annars hafa að meðaltali komið tveir eða þrír inn á sjúkrahúsið á degi hverjum. Oftast hafa þeir þá Kristín Daviðsdóttir. „Ég býst við að hafa það ró- legt yfir jólin. Það er eng- in jólastemmning. Viö liggjum hér i sólbaði þeg- ar frítimi gefst og ekkert ir á jólin.“ Mynd/Jó- hannes Long. Frekar múkka en hrafn Eyvindur Eiríksson Múkkinn Iðunn 1988. Eftir því sem ég kemst næst er Múkkinn fyrsta skáldsaga Eyvind- ar Eiríkssonar. Hún hefur að ég held þó vakið litla athygli enda er Eyvindur ekki ungur maður, hvorki sonur skálds né framkvæmdastjóri stórfyrirtækis, bók hans fjallar ekki um násisma né heldur um há- stéttir Reykvíkinga í ölduróti hvers- dagslífsins í þrúgandi stórborginni. Ekki aldeilis, hún fjallar um fyrir- brigði sem íslendingar þekkja en vilja þó Iítt kannast við. íslenska sjómenn. Það hefur verið sagt að með kvikmynd sinni, Skyttunum, hafi Friðrik Þór Friðriksson endurskap- að íslendingasöguandann betur en aðrir menn í seinni tíð. Óneitanlega er nokkur skyldleiki með áður- nefndri kvikmynd og bók Eyvind- ar. Þetta er saga af hetjum sem eru utangarðs, eiga hvergi heima nema um borð í sínum togara þar sem karlmennskan kemur fram í mál- farinu og vinnuseminni, í grófleika lífsins, sem er hrátt og óheflað. Samt er alltaf fyrir hendi ákveðin blíða og samkennd í svona samfé- lagi, samfélagi sem er sjálfu sér nógt um allt — nema konur. Sjó- mennirnir eru eins og múkkinn sem ekki getur flogið nema hann sjái hafið, þeir eru utangátta þegar fast land er komið undir fætur þeirra. Saga Eyvindar af sjómönnunum er einskonar hópsaga, kollektífur róman eins og það heitir víst. Marg- radda saga. Persónur bókarinnar eru því fremur óskýrar þar sem ekki er gerð nein grein fyrir þróun þeirra á þeim tíma sem bókin tekur yfir. Það er þó margt sem á daga sögu- persónanna drífur en í lokin er líkt og ekkert hafi gerst, sjórinn er jafn- sléttur og hann var í upphafi. Hafið gefur og hafið tekur, það krefst sinna fórna og sjómennirnir kippa sér ekki sérstaklega upp við það. Vita að þessi er gangur lífsins og honum verður ekki breytt. En um leið skynjar lesandinn átök manns og hafs sem birtast í Magga sem uppgötvar ástina og lifir eitt augna- blik í algleymi hennar en fellur svo fyrir borð í ofsaveðri. Afdrif þessa drengs, sem er sú persóna sem næst stendur huga manns, eru látin brjóta upp formið á nokkuð hug- vitssamlegan hátt og þessi aðferð veitir bókinni nauðsynlegan ólg- andi undirtón, kannski ekki alveg nægilega kraftmikinn til að sú vá sem leynist undir yfirborðinu komi skýrt fram. Stíll Eyvindar er annarsvegar næsta ljóðrænn í stuttum innskot- um, þar sem fjallað er um múkkann og skipið og samskipti þess við haf- ið. Þessir kaflar eru nokkuð mis- jafnir en mjög góðir þegar best læt- ur. Stíllinn oft auðugur og fyrir rót- gróna landkrabba mörg orðanna afar sjaldgæf að sjá. Hinsvegar er stíllinn kröftugur og kjaftfor, mál- far sjómannana, sem reyndar mest snýst um kvenmannstussur, er sömuleiðis kraftmikið og hörku- legt, kannski full á köflum — verð- ur svolítið Ieiðigjarnt til lengdar að lesa. Ég hafði verulega gaman af þess- ari bók, jafnvel þó hún sé ekki gallalaus (svo maður hrapi í klisju- skurð). Hér er á ferðinni metnaðar- full tilraun 1 formi og stíl til að skapa bókmenntalega nútímalýs- ingu á lífi þeirra manna sem halda okkur gangandi í þessu landi. Skapa nútíma íslendingasögu sem safnar saman sérstæðri reynslu ís- lendinga. Fanga málfar manna sem eru ekki venjulega á síðum bók- menntanna. Sannarlega kominn tími til að slíkt væri gert og ég hef enga trú á því að íslendingum, almennt, þyki slíkt efni ekki kærkomið. Hér hefur lítið sem ekkert verið skrifað um þessa stétt manna í alvarlegum bókmenntufn, kannski eru menn uggandi um að fólk nenni ekki að lesa bækur um svo hversdagslegt efni sem líf sjómannsins. En hér gildir að það er skáldið sem hefur umfjöllunarefnið yfir hvunndaginn með auðgi anda síns — það þykir mér Eyvindi hafa tekist að mörgu Ieyti býsna vel. ■ Kristján Kristjánsson

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.