Pressan - 22.12.1988, Blaðsíða 9

Pressan - 22.12.1988, Blaðsíða 9
886f i9dm969b .SS lUQfibuírrirnH Fimmtudagur 22. desember 1988 8 9 BMBUNARABSERÐ í BOUMUIVÍK Einar Guðfinnsson hf og dótturfyrirtœki skulda Landsbankanum um 500 milljónir. Unnið að endurskipulagningu fyrirtœkjanna. Þokast mjög vel í rétta átt, að mati Sverris Hermannssonar bankastjóra. Skuldir við bæjarsjóð samsvara öllu framkvœmdafé í tvö ár. Þrír gjalddagar staðgreiðslu í vanskilum, en ríkið borgar bœnum. Bág rekstrarstaða Einars Guðfinnssonar hf. og dótt- urfyrirtækjanna í Bolungarvík endar líklega ekki með gjaldþroti. Lausafjárvandinn er gífurlega mikill og ýms- ir draga í efa að fyrirtækið eigi fyrir skuldum, en það breytir engu: Fyrirtækinu er ætlað að lifa. Landsbank- inn hefur málefni E.G. til sérstakrar skoðunar og aðrir fylgjast grannt með, svo sem Lífeyrissjóður Bolungar- víkur, verkalýðsfélögin á staðnum og bæjáryfirvöld. Unnið hefur verið að endurskipulagningu fyrirtækisins og að sögn forsvarsmanna hafa ýmsir sérfróðir aðilar verið kallaðir til. Hjá atvinnutryggingasjóði liggja fyrir umsóknir frá íshúsfélagi Bolungarvíkur hf. svo og móð- urfyrirtækinu. „Þetta hefur þokast mjög vel í rétta átt og ég hef trú á að þeir snúi vörn í sókn. Það hefur verið unnið að tillögum um gagngera endur- skipulagningu og mér líst mjög vel á þær,“ sagði Sverrir Hermanns- son, bankastjóri Landsbankans, viðskiptabanka Einars Guðfinns- sonar og fyrirtækjanna í Bolungar- vik, í samtali við PRESSUNA. VEÐSETT FYRIR MILUARD Skuldirnar eru vissulega miklar, en ekki tilefni gjaldþrots að mati lánardrottna og pólitískra sjóð- stjóra. Hjá Landsbankanum einum nema skuldirnar um 500 milljónum með afurðalánum, samkvæmt heimildum PRESSUNNAR, og samkvæmt veðbókarvottorði eru skuldir við fiskveiðasjóð álíka. Veð síðustu fjögurra ára nema rúmum milljarði króna að núvirði. Skuld gagnvart bæjarfélaginu er talin a.m.k. 16 milljónir. Þá á launafólk- ið sjálft, verkalýðsfélögin og lífeyr- issjóðurinn inni peninga hjá fyrir- tækinu, en tölur liggja ekki á lausu. Einar Guðfinnsson hf. er móður- fyrirtækið. Velta þess var tæplega 1,5 milljarðar á síðasta ári. Önnur fyrirtæki E.G. eru íshúsfélag Bol- ungarvíkur, fiskmjölsverksmiðja, verslun svo og útgerðarfyrirtækin Völusteinn hf. og Baldur hf. Fyrir- tækið gerir út Heiðrúnu ÍS 4, Sól- rúnu ÍS 1 og Dagrúnu ÍS 9. BEDIÐ EFTIR BJQRGUN „Ef ekki verður um fyrirgreiðslu að ræða, hvort sem er frá atvinnu- tryggingasjóði eða með öðrum hætti, og fyrirtækið á að leggja upp laupana, þá tel ég að menn séu nán- ast vísvitandi að leggja byggðarlag- ið i rúst. Þetta tengist ekki aðeins fyrirtækinu sem slíku, heldur er þetta keðjuverkandi fyrir önnur fyrirtæki á staðnum og allt atvinnu- lífið,“ sagði Karvel Pálmason al- þingismaður, formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Bolungarvíkur. Formaður verslunarmannafé- lagsins í Bolungarvík, Kristinn H. Gunnarsson, tekur annan pól i hæðina: „Ég tel ákaflega mikla ein- földun þegar talað er um að staður- inn geti ekki lifað þótt aðrir eignist fyrirtækið. Þótt tímabundnir erfið- leikar ættu sér eflaust stað myndi slíkt ekki gerast." Kristinn telur að breytt eignarað- ild að fyrirtækjum E.G. geti jafnvel orðið staðnum til góðs. „Ég er ekki

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.