Pressan - 22.12.1988, Blaðsíða 29

Pressan - 22.12.1988, Blaðsíða 29
Fimmtudagur 22. desember 1988 29 SUNNUDAGUR ar við sögu við gerð handritsins, allt erlendir nienn, en meðal þeirra sem tókii þátt í gerð myndaflokksins var Una Coll- ins sem gerði búningana. Sem fyrr segir leíkstyrir Ágúst verk- inu en helstu hlutverk eru í höndum þeirra Lisu Harrow sem leikur Sigriði, Luc Merendu leikur Harald Helgason, Stuart Wilson l'er með hlutverk Magnúsar Hansen, amman er leikin af Conclia Hidalgo, Jó- liann G. Jóliannsson leikur Júlla smala og borstein leikur Klaus Griinberg. Með hlutverk þeirra bræðra, Nonna og Manna, fara þeir Garðar Tlior Cortes og Einar Örn Einarsson. bættirnir verða sýndir í Ríkis- sjónvarpinu daglega eftir fréttir til 30. desembcr. Stöð 2 kl. 19.05 KRÓKÓDÍLA- DUNDEE * * * Crocodile Dundee Áslrölsk, gerð 1986, leikstjóri Peter Fairman, aðalhlutverk Paul Hogan, Linda Kozlowski. Einhver vinsælasta gamanmynd síðari tíma. Og, sem ekki er al- gengt, afar góð sömuleiðis. Segir frá kvenblaðamanni frá New York sem fær ævintýramann til að leiðsegja sér um óbyggðir Ástralíu. Seinna fær hún hann til að koma með sér til New York, sem ef til vill er ekki síður frumskógur. Þetta er ákaflega indæl mynd, Ijúf og falleg, sem er kannski óvenjulegt á vorum tímum. Rómantík og brandarar falla saman í Ijúfa löð. Dundee er einhver geðþekkasta hetja bíósins í dag. Trygg skemmtan fyrir alla fjölskylduna. Sunnudagur 25. desember Ríkissjónvarpið kl. 20.30 NONNI Nýr framhaldsmyndaflokkur í sex þáttum, gerður af Þjóð- verjum í samvinnu við Islenska sjónvarpið, þýskar, austurrísk- ar, spænskar og svissneskar sjónvarpsstöðvar. Verkið er byggt á bókum Jóns Sveinsson- ar og segir frá æsku hans og uppvaxtarárum á Akureyri, myndin er reyndar ekki tekin þar heldur í Flatey á Breiðafirði, að mestu leyti sumarið 1987. Leikstjóri er Ágúst Guðmunds- son og er myndaflokkurinn frumsýndur samtímis hér á landi og í Þýskalandi. Sjón- varpið hefur látið talsetja þátta- röðina og er það í fyrsta skipti sem slíkt er gert hér á landi við erlendan myndaflokk. Ágúst hafði sömuleiðis umsjón með því verki. Alls komu fjórir aðil- Kæra dagbók. Þetta er búið að vera voða tvísýnt með hana Bellu vinkonu á síðustu dögum. Hún byrjaði sko að æla um siðustu helgi! Og það er einmitt þannig, sem maður verður handviss um að vera ófrískur. Um Ieið og uppköstin byrja þýðir ekkert að ímynda sér að blæðingarnar séu bara soldið óreglulegar. Þá er þetta nefnilega orðið pottþétt. Og hafi grey stelpan verið á taug- inni áður, þá trylltist Bella nú end- anlega þegar hún fór að gubba. Mamma hennar hringdi í mig og sagði að hún bókstaflega heimtaði að hafa mig hjá sér. Það fannst kell- ingunni auðvitað pínulítið skrítið, vegna þess að Bella er ekki beint þannig týpa að Ieika sér að því að smita bestu vinkonu sína af ælu- pest. En ég laug bara að við værum orðnar svo ógeðslega „nánar“ eftir að hafa lesið svona mikið saman undir prófin og þyldum ekki annað en taka þátt í öllu í sameiningu. (Mamma hennar hlýtur að vera meira en lítið biluð, því ég held hún hafi trúað mér!) í miðju gubbustandinu þurfti Óli dólgur (Sko, sökudólgur — ekki melludólgur) að mæta á staðinn til að frétta af „barninu* sínu, því Bella hafði byrjað á að kjafta í hann, þegar hún byrjaði ekki á túr. Mér finnst nú, svona persónulega, að hún hefði frekar átt að snúa sér til bestu vinkonu sinnar en dólgs- ins, en hún hefur líklega verið eitt- hvað skotin í honum. Það er að vísu allt búið núna, enda henti Bella postulínsuglu í hausinn á honum um leið og hann steig yfir þröskuld- inn í herberginu hennar. (Þetta var voða dýr stytta, sem hún fékk frá ömmu sinni eftir samræmdu prófin í vor. Og hún brotnaði auðvitað í mask. Þ.e.a.s. uglan...) Ég gat eiginlega ekkert gert til að láta Bellu líða betur (fyrir utan að henda Óla út, sem ég gerði með mestu ánægju), svo ég skrapp bara til ömmu á Aragötunni. Hún er miklu meira líberal en amma á Eini- melnum og hefur m.a.s tekið vaktir í Kvennaathvarfinu og allt, þannig að ég var viss um að hún myndi segja mér hvar fóstureyðingar eru gerðar. En þessi ferð var nú meiri bömmerinn, maður. Amma trúði ekki að það væri vinkona mín, sem væri ólétt. Hún hélt að þetta væri gamla vinkonu-trixið og ég þyrði barasta ekki að viðurkenna að það væri ég! Það var sko hringt í mömmu með látum og haldinn fyrirlestur yfir mér og ég veit ekki hvað og hvað. Og nú heldur öll familían að ÉG sé ófrísk! Það væri enginn vandi fyrir mig að fá þetta á hreint, ef ég segði þeim að þetta væri Bella, en ég lof- aði henni með tíu fingur upp til Guðs að kjafta ekki í neinn. Æ, ég verð að hætta. Mér er orðið svo ógeðslega bumbult. Ó, nei!!! Guuuuuð, ætli það sé ekki örugg- lega della að maður geti orðið ólétt- ur á því að setjast á ókunnug kló- sett? Bless, Dúlla. sjónvarp 25. desember Jóladagur Stöð 2 kl. 16.40 HVÍT JÓL * * White Christmas Bandarísk, gerð 1954, leikstjóri Michael Curtiz, aðalhlutverk Bing Crosby, Danny Kaye, Rose- mary Clooney, Vera Ellen, Dean Jagger. Segir frá skemmtikröftum sem koma heim úr stríðinu, taka saman höndum og skemmta og gengur vel. Þeir kynnast tveimur stúlkum og saman ákveða þau öll að eyða saman tima á vetrar- dvalarstað. Staðurinn er rekinn af fyrrum yfirmanni þeirra úr hernum sem á í fjárhagskrögg- um. Tónlistin eftir lrving Berlin þykir hreint afbragð en hinsveg- ar er myndin að öðru leyti frem- ur slapparaleg. JOLA MYNDIRNAR Ríkissjónvarpið kl. 22.15 EINS OG SKEPNAN DEYR Islensk, gerð 1985, leikstjóri Hilmar Oddsson, aðalhlutverk Þröstur Leó Gunnarsson, Edda Heiðrún Backman, Jóhann Sigurðarson. Hilntar Oddsson sneið sér of stóra skó í þessari mynd, ætlaði að gera of mikið i einu. Myndin er metnaðarfull að því leyti að reynt er að kafa í persónurnar og til þess er óspart notað tákn- mál og tilvísanir í l'orlíð þeirra. Handritið var hinsvegar tæplega nógu slerkt og í myndinni eru of rnargir lausir endar til að hún geti talist skila þeirn hughrifum sem líklegast hafa vakað fyrir leikstjóranum. Hilmar þorði þó að reyna að gera slíka mynd, sem kannski er ekki algengt þegar hafðar eru í huga sumar aðrar myndir hérlendar, þar sent yfirborðsmennskan og glassúr- inn eru allsráðandi. Stöð 2 kl. 22.30 NAFN RÓSARINNAR * * The Name of the Rose ítölsk, þýsk, frönsk gerð 1986, leikstjóri Jean Jacques A nnaud, aðalhlutverk Sean Connery, F. Murray Abraham, Cliristian Slater. Afar sérstæð mynd, gerist á 13du öld og segir frá munki sem er eins og Sherlock Holmes end- urgerður og aðstoðarmanni hans (Dr. Watson) sem konta í klaust- ur þar sem ýmislegt gruggugt fer fram undir sléttu yfirborði. Myndin er gerð eftir samnefndri metsölubók Umbertos Eco. Hún reynir að blanda sér í þær heim- spekilegu pælingar sem bókin býður upp á, en það gengur eiginlega ekki upp. Sakamálið er líka tæplega nógu spennandi hjá Annaud. Myndin er þó fullkom- lega verð allrar athygli margra hluta vegna, einkum vegna frá- bærrar frammistöðu Connerys. Rikissjónvarpið kl. 23.50 MY FfllR LflDY Bandarísk, gerð 1964, leikstjóri George Cukor, aðalhlutverk Rex Harrison, Audrey Hepburn, Stanley Holloway, Gladys Cooper. Klassísk söngvamynd, gerð eftir söngleikjaútgáfunni af Pyg- malion, leikriti Bernard Shaw. Segir frá prófessornum Higgins sem stúderar mállýskur og finn- ur stúiku, Elizu Doolittle, á göt- unni og ákveður að breyta henni, ótíndri götustúlkunni, í

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.