Pressan - 12.01.1989, Side 2
2
y'itíl ‘t’i'i’íi A! iuytoti.-(rirPi*í
Fimmtudagur 12. jánúar 1989
PRESSU
ASGEIR
TÓMASSON
Reynir Jónasson
harmónikkuieikari
tók lagiö með gest-
um. Ekki bar á öðru
en þeir skemmtu
sér hiö besta.
Pressumyndir:
Helga Vilhelms-
dóttir.
Þretíándagleði
við Tjörnina
Gestir veitingahússins
Við Tjörnina gerðu sér
glaðan dug á þrettánd-
anum. Valgeir Guðjóns-
son tónlistarmaður kom
í heimsókn og tók lagið.
Svo og Reynir Jónasson
harmónikkuleikari sem
fékk fólk til að taka lag-
ið með sér og lék síðan
fyrir dansi fram eftir
nóttu. Matseðillinn var
sexréttaður. Þegar Jólk
var svo se/n hálfnað
með það sem á borðum
var efndu húsráðendur
fyrirvaralaust til flug-
eldasýningar. Hópurinn
brá sér út á hlað og
horfði á dýrðina, snar-
aðist síðan inn og hélt
áfram aö snæöa og
skemmta sér. Að sögn
Helgu Vilhehnsdóltur
Ijósmyndara, sem tók
myndirnar hér á síðunni,
var fjörið mikið. Þegar
hún hélt heim á leið
undir tnorgun var síður
en svo fararsnið ú mörg-
uin hinna.
Það fer vel á meö veitingamönnunum i Við
Tjörnina, þeim Rúnari Marvinssyni og Sig-
riði Auðunsdóttur.
Meðan á borðhaldi stóð buðu húsráðendur
veitingastaðarins upþ á flugeldasýningu.
Hér er hluti gesta aö virða hana fyrir sér.
velkomin i heiminn!
1. „Mikið „obboslega" liður mér
vel! Eg kom i heiminn á þrettánd-
anum, sonur Ingibjargar Magnús-
dóttur og Hjartar Hjartarsonar.
Vitiði hvað ég var stór? 13 merkur
og 50 sm!“
2. „Er þessi svipur ekki góður?
Ég er að horfa á hana mömmu
mina og nenni ekkert aö lita inn í
einhverja linsu!“SonurllnnarÓla-
dóttur og Jóns Aðalbjörns
Kratcsh fæddist á þrettándanum,
6. janúar, eins og félagi hans á
myndinni hér við hliðina. Jafn-
langur, jafnþungur og hann: 13
merkur, 50 sm.
«
Áður en sest var til borðs dreyptu gestir
veitingahússins við Tjörnina á fordrykk.
Hér sjáum við fjóra þeirra.
Ekki bar á öðru en tekiö væri undir við
raust er nikka Reynis Jónassonar var
þanin.
Síamstviburarnir Sjang og Eng kvæntust systrum og eignuðust með þeim 21 bam. Myndin er úr uppfærslu Leik
tolonr D/Mil/imnl/aar
félags Reykjavíkur.
Fjör á f jölunum um
Tvö leikrit verða frumsýnd
um helgina. Sjang-Eng eftir
Göran Tunström hefur göngu
sina á fjölum Iðnós á föstu-
dagskvöldið. Þar segir frá tvi-
burum frá Síam sem voru
samvaxnir á brjóstinu. Þeir
fluttust til Bandarikjanna og
urðu frægir skemmtikraftar.
Lánaðist meira að segja að
giftast — systrum reyndar
— og eignuðust alls 21 barn,
samvaxnir allan timann.
Á laugardaginn frumsýnir
Leikfélag Hafnarfjarðar i
Bæjarbíói Allt í misgripum
eftir Shakespeare. Þar er
reyndar einnig fjallað um tvi-
bura, tvenna meira að segja,
þótt ekki séu þeir síamstvi-
helgina
burar. Allt i misgripum er
sagt eitt af fyrstu verkum
Shakespeares, ærslafullur
gamanleikur um það þegar
sífellt er verið að villast á tví-
burum og þeir meira aö segja
hvor á öðrum. Sannkallað tvi-
burafjör á fjölunum um helg-
ina.
3. Þessi dama nennir nú ekkert að
opna augun. „Eins og það sé ekki
búið að trufla mann nóg, blossar
af einhverju flassi ofan i rúmið hjá
strákunum. Nei, ég ætla að sofa
áfram.“ Stúlkan fæddist 8. janúar,
dóttir Erlu Birgisdóttur og Eriings
Magnússonar. Hún vó 3.600
grömm og var 50 sm löng.
4. „Oh, hvað ég er sybbinn. Ég
bara verð að geispa. Afsakiði."
Þessi ungi herra fæddist á laugar-
daginn, 7. janúar, sonur Hafdisar
Þorsteinsdóttur og Róberts Júli-
ussonar. Hann var 52 sm langur
við fæðingu og vó 3.760 grömm.
5. „Ég ætla að vera mannalegur
á myndinni þótt ég sé alveg nýr.“
Sonur Hlífar Halldórsdóttur og
Sigurgeirs Grimssonar fæddist
laugardaginn 7. janúar. Hann var
49 sm langur og 2.700 g að
þyngd.
6. Þessi dökkhærða prinsessa
þarf ekki að kvarta yfir að hún sé
ekki hárprúö. „Ég er fædd 5. janú-
ar svo að þegar Pressan kemur út
verð ég orðin vikugömul. Mamma
mín heitir Ásta Ólafsdóttir og
pabbi minn Gisli Sveinsson. Þeg-
ar ég fæddist var ég 50 sm löng
og vigtin sýndi 3.600 grömm og, æ
ég nenni ekki að segja meira, ég
er svo þreytt!“
7. „Hvað er alltaf verið að trufla
mann? Sko. Nú er ég næstum
aiveg glaðvaknaður, allt út af ykk-
ur.“ Þessi herramaður fæddist 6.
janúar og er sonur Sveinbjargar
Pálmarsdóttur og Hreins Stefáns-
sonar. Hann vó 3.120 grömm og
var 51 sm langur.
(Pressumyndir: Helga Vilhelmsd.)