Pressan - 12.01.1989, Síða 7
Fimmtudagur 12. janúar 1989
„Þaö þarf stóra menn til aö ganga litlum drengjum i fööurstaö," skrifaði As-
geir Hannes Eiríksson í minningargrein um stjúp- ^ ^ 'kllÍ J
föður sinn. „Mér þótti wjf ■? ■ w
1 uff ■—*' ‘Tk W ákaflega vænt um hann
1 m m ^ f og leitaði mikiö til hans m ét Æ
I ^ þótt ég flytti ekki á heim-
ili þeirra fyrr en ég var
orðinn 18 ára,“ segir
| Ásgeir i samtali við Press-
H alíI u.i una.
Emilía Ágústsdóttir, full-
trúi hjá Eimskip: Tvær
mömmur, tveir pabbar,
þrjár ömmur, þrir afar og
tiu ,,systkini“. „Fannst
þetta eölilegasti hlutur i
heimi!“
sameinist aftur býr iengi i huga
barnanna. Þegar samband foreldra
er orðið tiltölulega hlutlaust eftir
skilnað slaka börnin frekar á gagn-
vart þessari ósk, því þau sjá að
raunveruleikinn eftir skilnaðinn er
oft á tíðum betri en meðan óham-
ingjusamt hjónaband varði. Þegar
vel tekst til ná börn oft meira sam-
bandi við foreldra sína eftir skilnað
því það fer svo mikil orka í átök í
erfiðu hjónabandi að börnin verða
hreinlega útundan. Þegar skilnað-
urinn er um garð genginn losnar
heilmikil orka úr læðingi. Feður
sem hafa haft lítil afskipti af börn-
um sínum fá mjög oft nýjan og
öðruvísi áhuga á þeim, samanber
máltækið „enginn veit hvað átt hef-
ur fyrr en misst hefur“. Börn eru í
flestum tilvikum eftir hjá móður
sinni og faðirinn getur orðið ein-
mana eftir skilnaðinn og ræktar þá
betur sambandið við börn sín.“
GÓÐAR MINNINGAR UM
STJÚPFJÖLSKYLDUNA
Eins og áður er getið reyndust
aðeins tveir aðilar reiðubúnir að
ræða við pkkur um stjúpforeldra
sína, þau Ásgeir Hannes Eiríksson
verslunarmaður og Emilía Ágúsfs-
dóttir, fulltrúi hjá Eimskipafélagi
íslands. Þau segjast bæði eiga góð-
ar minningar frá
æskuárunum.
Emilía var tveggja ára þegar for-
eldrar hennar skildu og fjögurra ára
eignaðist hún fósturforeldra. Eldri
bróðir hennar fylgdi föðurnum, en
Emilía fór til móðursystur sinnar
og manns hennar: „Fljótlega eftir
að ég fór að búa þar fór ég að kalla
þau „mömmu og pabba“ og geri
enn í dag,“ segir hún. Ekki minnist
hún þess að sér hafi á nokkurn hátt
þótt óeðlilegt að búa hjá stjúpfor-
eldrum og halda góðu sambandi
við eigin foreldra: „Ég man heldur
ekki eftir því að nokkur hafi haft á
orði að slíkt væri ekki alveg eðli-
iegt,“ segir hún og bætir við að
helst hafi hún fengið að heyra það
frá jafnöldrum sínum hvað hún
ætti gott að eiga tvo pabba og tvær
mömmur, þrjár ömmur og þrjá afa:
„Stjúpforeldrar mínir ólu mig alveg
upp og þótt foreldrar mínir kæmu
mikið á heimilið og ég færi til þeirra
skiptu þau sér aldrei af uppeldinu
og ég var ekkert dekruð meira af
þeim en stjúpforeldrunum. Ég fann
ekki mikið fyrir því að vera flutt frá
mömmu og pabba því ég eignaðist
\
nýja mömmu og nýjan pabba sem
mér leið vel hjá. í mínum augum
var þetta það eðlilegasta í heimi!“
Þegar Émilía var 12 ára skildu
stjúpforeldrar hennar og hún segir
sér hafa þótt erfitt að missa pabba
sinn af heimilinu. „Þau héldu þó
áfram að ala mig upp saman, þótt
þau byggju hvort á sínu heimilinu.
Ég fann aldrei fyrir öðru en það
væri góð vinátta á milli þeirra og
það var samgangur á milli heimil-
anna.“ Stjúpforeldrar Emilíu giftu
sig báðir aftur, en þótt hún hafi bú-
ið síðar hjá pabba sínum og konu
hans kallaði hún hana ekki
mömmu: „Við urðum strax góðar
vinkonur, en það var nógu ruglandi
að kalla tvær konur „mömmu“.“
segir hún.
Emilía segist fyrst og fremst
þakka stjúpföður sínum hversu
eðlilega hún hafi tekið umskiptun-
um sem urðu í lífi hennar: „Pabbi er
mjög raunsær og skynsamur mað-
ur,“ segir hún. „Hann kenndi mér
að dæma aldrei neinn og ég heyrði
aldrei nokkurn í fjölskyldunni hall-
mæla öðrum. Það var gott sam-
band milli allra og kannski auðveld-
aði það líka hlutina að stjúp-
mamma mín, eða „mamma“ eins
og ég kalla hana alltaf, er móður-
systir mín, þannig að sama fjöl-
skyldan var alltaf í myndinni. “ Það
er nokkuð kómískt að Emilía skyldi
velja sér japanskan eiginmar.n.
Ogino kemur frá samheldinni fjöl-
skyldu, frá landi þar sem hjóna-
skilnaðir eru næsta óþekktir: „Jú,
honum fannst svolítið furðulegt að
kynnast mér og minni fjölskyldu!“
segir Emilía hlæjandi. „Þetta voru
tvær mömmur og tveir pabbar, og
þótt ég eigi bara einn albróður kalla
ég tvo stjúpbræður mína „bræður"
og stjúpsystur mína „systur". Að
auki átti seinni maður mömmu
minnar sex börn, sem ég kalla fóst-
ursystkini. Það var heilmikið mál
fyrir Ogino að setja sig inn í þetta í
byrjun, en núna finnst honum þetta
jafneðlilegt og öðrum sem þekkja
mig!“ Hún segir að sjálfri hafi sér
alltaf fundist fjölskyldumálin eðli-
leg og hafi ekki fundið fyrir því í
æsku að alast ekki upp í dæmi-
gerðri kjarnafjölskyldu: „Mér hef-
ur alltaf þótt þetta einfalt og þegar
fólk hefur einu sinni fengið skýr-
ingu á þessari fjölskyldu er það
sama sinnis. Nema,“ bætir hún við,
„að einstaka sinnum segir fólk:
„Um hvaða pabba ertu nú að
tala?!““
EINA FJÖLSKYLDU-
MYNSTRIÐ SEM ÉG ÞEKKTI
„Það þarf stóra menn til að
ganga litlum drengjum í föður-
stað,“ skrifaði Ásgeir Hannes Ei-
ríksson í minningargrein um stjúp-
föður sinn í haust. Ásgeir Hannes
var sjö ára þegar móðir hans giftfst,
en fram að þeiin tíma höfðu þau
mæðgin búið hjá móðurforeldrum
Ásgeirs. „Þegar mamma giftist var
strax um það talað að ég kæmi til
hennar og manns hennar. Hins veg-
ar höguðu atvikin því þannig að á
þeim árum sem ég sótti skóla á
Skóiavörðuholtinu bjuggu þau
vestur á Seltjarnarnesi og í Hafnar-
firði þannig að ég llutti ekki til
þeirra fyrr en 18 ára,“ segir Ásgeir.
„Ég hélt áfram að búa hjá ömmu og
afa og átti alla mína vini í hverfinu.
Ég flutti því ekkert til þeirra fyrr en
þau fluttu á Fjölnisveginn, þremur
húsum frá ömmu og afa. Mér þótti
ákaflega vænt um stjúpföður minn
og leitaði mikið til hans.“
Ásgeir segir að sér hafi aldrei þótt
neitt óeðlilegt við að alast upp hjá
ömmu sinni og afa og eiga stjúp-
föður: „Mér var alveg sama og eig-
inlega vorkenndi ég þessum greyj-
um sem áttu pabba sem ráku þá inn
á kvöldin! Ég fékk að hafa mína
hentisemi og naut góðs af. Maður
þekkir auðvitað bara það sem mað-
ur elst upp við og mér þótti þetta
ekkert skrýtið. Krakkar spurðu mig
þó stundum hvers vegna ég ætti
fleiri afa og ömmur en almennt
tíðkaðist! Fyrir mér var þetta alltaf
hið eina fjölskyldumynstur sem
kom til greina. Afi minn og amma
voru sérstakt öðlingsfólk og
kannski öðruvísi tekið á málum á
þeirra heimili en algengt var og það
held ég að flest börn þekki sem hafa
búið hjá ömmu sinni og afa. Þau
eru auðvitað heilli kynslóð þrosk-
aðri en foreldrarnir og hafa kannski
tilhneiginu til að taka málin ekki
eins föstum tökum.“
Ásgeir hafði alltaf samband við
föður sinn og föðurömmu en segist
aldrei hafa haft þá von að foreldrar
hans myndu giftast. „Slíkt hvarfl-
aði aldrei að mér. Málin voru bara
svona og það var einfalt.“ Hann
eignaðist tvær fjölskyldur og báðir
foreldrar hans eignuðust börn með
nýjum mökum. Ásgeir segir að þótt
alltaf hafi verið góð vinátta milli
hans og hálfsystkinanna fari ekki
hjá þvi að sá sem er alinn upp milli
tveggja fjölskyldna verði að vissu
leyti utangátta í systkinahópnum:
„Það er ekkert endilega verra að
vera ekki alinn upp með hálfsyst-
kinum sinum, en það er öðruvísi.
Samband þeirra systkina sem alast
upp á sama heimili verður auðvitað
nánara. Krakkar sem vaxa úr grasi í
sama húsi, þar sem söniu lögmál
gilda, verða miklu nánari liver öðr-
um en töluvert eldri bróðir sem
kemur i heimsókn. Hann verður
síður einn af hópnum þótt vinátta
og væntumþykja séu fyrir hendi.“
Af samtölunum við Emiliu og
Ásgeir Hannes væri luegt að draga
þá ályktun að því yngri sem börn
eru því auðveldara reyndist þeim að
aðlagast nýju fjölskyldumynstri.
Sigrún Júlíusdóttir segist ekki telja
að einn aldurshópur sé betri en ann-
ar: „Það virðist ekki tengt aldri
hvernig börn taka stjúpforeldrum,"
segir hún. „Það er ákaflega per-
sónubundið og fjölskyldubundið
hvernig úr þessum málum vinnst,
en þó má auðvitað segja að við vit-
um að á ákveðnum aldri eru börn í
meiri þörf fyrir báða foreldra sína.
Unglingaskeiðið er oft erfitt. Þá eru
börnin sjálf á umbrotaskeiði, þau
eru að glíma við eigin kynímynd og
sjálfsmynd og þeim finnst óþægi-
legt að vita af foreldrum sínum að
brölta i ástarsamböndum. Þeim
finnst erfitt þegar mamman tekur
upp á því að fara á böll eða þegar
pabbi hagar sér eins og unglingur
með nýja konu. Þau eru líka orðin
það stór að samstöðukenndin með
foreldrunum er orðin sterk og oft
setja þau það foreldri sem komið er
út úr sinu dags daglega hlutverki á
stall. Það foreldri verður góði aðil-
inn, en stjúpforeldrið sá vondi. Til
þess að koma á sem hlutlaustustu
sambandi þarf fólk oft að leita sér
hjálpar, því við notum svo oft reið-
ina og vondar tilfinningar til að
geta staðið við ýmsar ákvarðanir
sem skilnaði fylgja. Ég held engan
veginn að erfiðleikar sem upp koma
hjá stjúpfjölskyldum séu óleysan-
legir. Við höfum haldið námskeið
hjá Tengslum fyrir stjúpfjölskyldur
og það hefur sýnt sig að fólki þykir
gott að leita sér aðstoðar, læra af
reynslu annarra og fræðast um þau
vandamá! sem upp geta komið, áð-
ur en sársauki hefur orðið. Við höf-
um einnig hug á að þátttakendur
geti komið sér upp stuðningshóp-
um svo þeir gefi hist áfram og stutt
hver annan. Það má margt læra af
reynslu annarra. Þumalfingursregla
númer eitt er að ræða málin í stað
þess að beita reiðinni og þögninni."
en gengur
dæmío upp?
Rannsóknir
sýna að skiln-
aðartiðni er
mun hærri i
öðru hjóna-
bandi en því
ffyrsta. Emn
hluti erfiðleik-
anna er vanda-
mál þau sem
koma upp hjá
stjúpfjölskyld-
unni