Pressan - 12.01.1989, Page 16
16
Fimmtudagur 12. janúar 1989
plötur
BUBBI
Spor í
rétta átt
l’ó lalsverl sé liöið síðan plalan
Serbian Flower með Bubba
Morthcns kom úl er það ekki l'yrr
en nú sem ég kem mér til að skrila
hér nokkrar línur um plötuna.
Hvers vegna ég hel'ekki skril'að utn
hana fyrr er mér ennþá hulin ráð-
gáta og sennilegast rannsóknarel'ni
l'yrir sáll'ræðinga. En nóg er komið
al' kjal'tæði og ómerkilegu hjali.
Á Serbneska blóminu er úrval
þekktustu laga Bubba l'rá siðast-
iiðnum tvcimur árum og er megin-
uppistaðan al' Frelsi til sölu, scm
kom út árið 1986, og plötunni 56,
sem kom út siðasta sumar. Aðeins
eitt lag er al' Dögun, lagið Voiecs ol'
Freedom (Frelsarans slóð), og eitt
lag l'rá MX-2l-timabilinu, lagið
Moon in thc Gutter (Skapaði l'eg-
urðin hamingjuna?).
Öll lög Serbian Flower eru í nýj-
um útsctningum sem þó eru byggð-
ar á þeim eldri. Sama er um textana
að segja, grunnhugmyndir þeirra l’á
að standa ál’ram.
Sá maður sem á hvað mestan
heiðurinn al' þcssari plötu, l'yrtr
utan Bubba að sjáll'sögðu, cr
sænski þúsundþjalasmiöurinn
Christian Falk, sem ásanit þvi að
taka plötuna upp og útsetja lögin
spilar á l'jölda hljóðl'æra og syngur
að auki. Annar Svíi kemur einnig
talsvert við sögu sem aðstoðarmað-
ur Falks, lelagi hans Stel'an Glau-
mann, sem þó er einungis í upp-
tökustjórn.
En hvernjg skyldi svo Bubba tak-
ast upp? Ég held að þrenningin
Bubbi-Falk-Glaumann hal'i leyst
þetta verkel'ni ágætlega al' hendi.
Það hlýtur að vera ansi strembið að
varpa islenskum textum yl'ir á
ensku og endurútsetja lögin þannig
að vel sé. Eti markmiðið með þess-
ari plötu er að sjáll'sögðu að koma
Bubba á l'ramfæri erlendis, þ.e.a.s. á
enskum markaði. Eað er svo nátt-
úrlega stóra spurningin hvernig til
tekst með markaðssetninguna, en í
Skandinavíu hefur þessi plata l'eng-
ið jákvæða umfjöllun og smáskíl'an
Moon in tli'e Gutter fékk frábæra
dónia þegar hún kom út um mitt
síðasta sumar. Að niínu áliti er lagið
lika það lag sem ris hvað hæst á
Serbian Flower, en að auki eru lögin
Battlefield ol' Sex (Sársauki — af
56), Six o’clock in thc Morning (Sex
að morgni — af Frelsitiu) og Whale-
song (Er nauðsynlegt að skjóta þá?
— einnig af Frelsinu) í l'ínu „l'ormi"
á Serbian Flower. Það verður fróð-
legt að fylgjast með því hvernig
tekst að markaðssetja rokkarann
Bubba Morthens erlendis, eins
rammíslenskur og hann er i raun og
veru. Serbian Flower er fyrsta spor-
ið í þá átt og svei mér þá ef það spor
er bara ekki í rétta átt. ■
Margt af þvi, sem lesa má um t vis-
indaskáldsögum, gæti brátt orðið að
veruleika. Svo er fyrir að þakka
merkilegri uppgötvun fimmtugs
Skota, sem heitir Sandy Kidd.
Auðvitað hvílir mikil leynd yfir mál-
inu, en uppgötvunin tengist ferða-
lögum á milli staða. Maðurinn er
nefnilega sagður hafa fundið aðferð
til að yfirvinna þyngdarlögmálið.
Sagt er, að fyrir tilstilli Kidds munum
við í náinni framtið geta skotist í
dagsferðir til Ástraliu, þar sem flug
þangað muni einungis taka örfáar
minútur, og í helgarferðir um Vetrar-
brautina. Það mun t.d. einungis taka
Sandy Kidd laetur ekki mikid yfir
sér, en virtir vísindamenn segja
hann hafa fundið upp leið til að yfir-
vinna þyngdarlögmálið.
34 klukkustundir að „fljúga“ til mars,
ef einhver hefði áhuga á slikri ferð.
Kidd vann að þessu verkefni i
fimm ár i garðskúrnum sínum, en nú
hefur hann fengið aðstöðu i Kali-
forníu til að halda því áfram. Vísinda-
menn, sem fengið hafa að fylgjast
með rannsóknunum, segja uppgötv-
unina ganga kraftaverki næst og að
þeir myndu ekki hafa trúað þessu,
nema af því að þeir sáu það með eig-
in augum. Við hin verðum víst að
bíöa enn um sinn, áður en við fáum
að vita um hvað málið snýst ná-
kvæmlega. En lokaáfanginn ku eiga
að vera smíði afar nýstárlegs farar-
tækis.
Enn viröast menn fikta
viö svartagaldur, ef marka
má frásögn konu, sem seg-
ist vera fyrrverandi galdra-
norn. Konan heitir Jacquie
Balodis og segist m.a.
hafa séd mannfórnir, bæöi i
Bandarikjunum og Bretlandi
— og samkvæmt lygamæli
var hún ekki aö fara med
ósannindi. Jacquie sagði,
að konur innan slikra „safn-
aða“ gengju með börn i
þeim eina tilgangi að útvega
lifandi mannverur fyrir fórn-
arathafnir. Sjálf ól hún tvö
börn, sem hlutu þessi örlög,
en núna hefur hún stofnað
samtök til að berjast á móti
djöfladýrkendum.
Allir þeir\ sem greitthafa laun
á árinu 1988, skuiu skila
launamiðum vegna greiddra
launa á þar tilgerðum eyðu-
blöðum til skattstjóra.
Frestur tii að skiia launamiðum
rennurút20.janúar.
RÍKISSKATTSTJÓRI
5. i