Pressan - 12.01.1989, Page 19
Fimmtudagur 12. janúar 1989
19
spain
vikuna 12. jan. — 19. jan.
(21. mars — 20. aprilj
Það verður öllu léttara yfir þér næstu
daga en veriö hefur um langan tima. Þér
fellur ekki framkoma náins ættingja I
þinn garð og skalt ekki hugsa þig tvisvar
um að segja álit þitt. Slíkt verður þér til
góðs síöar meir. Umfram allt verðurðu að
varast að láta skapið hlaupa með þig i
gönur þótt einhverjir aðrir séu með leió-’
indi.
(21. apríl — 20. niaí)
Þú hefur óvenjumikið að gera í næstu
viku og eyðir mestum fritima þínum meö
einhverjum sem þú hefurekki séð lengi.
Reyndu að hressa þig við og eyða deyfð-
inni sem hefur umlukið þig. Er ekki orðiö
timabært að hreinsa til á heimilinu eða
taka til hendinni á öórum vettvangi?
'i (21. mai — 21. jiini)
Einhver sem þu hefur aldrei getað fellt
þig við sýnir á sér nýja hlið. Það kemur
þér á óvart hversu langan tíma það tók
viðkomandi að sýna sinn rétta mann, en
ef þu hefur biðlund færðu skýringarnar.
Reyndu ekki að ganga eftir þeim of
snemma.
(22. júní — 22. jiilí)
Þú hefur átt óvenjunáðuga daga uþp á
siðkastiö, en nú tekur alvara lifsins aftur
við. Láttu skemmtanalifið eiga sig um
helgina og byggóu þig fremur upþ fyrir
átökin sem framundan eru. Þú þarft á
allri starfsorku þinni að halda. Peninga-
áhyggjur verða brátt úr sögunni og þú
sérð fram á bjartari daga en gerst hefur
um mánaða skeió.
(23. jlili — 22. ágiisl)
Þérverður boðiðað hitta persónu sem
þig hefur lengi langað til að kynnast.
Varastu að gera of miklar kröfur svo þú
verðir ekki fyrir vonbrigðum. Mundu að
láta engan bilbug á þér finna og láttu
ekki traöka á skoðunum þínum. Ef þér
finnst svartsýnin vera að ná tökum á þér
llttu þá I kringum þig og sjáðu hversu
margir hafa það mun verra en þú.
3$
(23. ágúsl — 23. sepl.)
Samkvæmi sem þér hefur verið boðiö
i um helgina freistar þln litið. Reyndu aó
ýta frá þér sektarkenndinni sem nagar
þig og mundu að hver hefur rétt á að lifa
lífinu eins og hann sjálfur kýs. Eldri
þersóna þarf á þér að halda núna, meira
en nokkru sinni fyrr.
(24. sepl. — 23. okt.)
Nú er rétti timinn til að gera upp málin
við mann sem kom illa fram við þig fyrir
skömmu. Stattu á rétti þínum og gefðu
ekkert eftir. Fjármálin virðast vera að
lagast að nýju eftir lægð I þeim málum en
varastu að eyða um efni fram, peningar
vaxa ekki á trjánum eins og þér ætti
löngu að vera orðið Ijóst. Eyddu meiri
tíma með maka þínum.
(24. okt. — 22. nóv.)
Þótt þú sért ekki alls kostar sáttur við
málalok I ákveönu máli, sem hvilt hefur á
þér I langan tíma, veróurðu þó öllu léttari
þegar þú sérð hvaða stefnu það tók. Þú
þarft að taka þig áog veraduglegri heima
fyrir. Mundu að taka tillit til þeirra sem
þurfa að umgangast þig mikið.
(23. náv. — 2!. des.)
Þér veitir ekki af svolitilli hvild um
helgina eftir amstur síðustu daga. Taktu
ekki meiri vinnu að þér en þú ræður við
með góðu móti og gættu þess að lofa
ekki upp (ermina á þér. Einhver á heimil-
inu er oröinn svekktur út í þig svo þú
skalt vera eins mikið heima við og þér er
unnt.
(22. des. — 20. janúar)
Miklaðu ekki fyrir þér samkvæmi sem
þú þarft að halda. Það leysist allt ein-
hvern veginn og óþarfi að missa svefn að
ástæðulausu. Þér berst liösauki úr
óvæntri átt.
(21. janiiar — 19. febrúar)
Skapofsi þinn hefuroftaren einu sinni
komið þér i vond mál. Reyndu nú að telja
uþþ að tíu áður en þú rýkur upp svo þú
missir ekki allt út úr höndunum. Einhver
þérnákominn erfarinn aðþreytast ákröf-
unum sem þú gerir til hans og þið þurfið
að leysa málin áður en þau lenda i óleys-
anlegri flækju.
(20. febráar — 20. mars)
Nú þarftu að taka á honum stóra
þinum til að hlutirnir gangi upp. Gættu
þess að fá nægan svefn, þvl án hvildar-
innar miðar þér hægar en ella. Þú lætur
fjölskyldumeðlimi fara i taugarnar á þér
að óþörfu og þarft að læra meiri tillits-
semi.
lófalestur
í þessari viku:
Forvitin
(kona, fædd 11.10. 1959)
ALMENNT:
Þessi unga kona hefur mjög
blandaða hönd. Hún hefur fremur
heimspekilegan hugsunarhátt og
það bendirýmislegt til þess að hún
hafi afarsterka réttlætiskennd. Hún
geturveriðmjögskörp. Þaðværit.d.
hægt að lýsa henni sem raunsærri
hugsjónamanneskju.
Það hafa orðið verulegar breyt-
ingar í lífi hennar (tengdar fram-
kvæmdum hennar og jafnvel fjöl-
skyldunni), þegar hún var 18—25
ára gömul.
TILFINNINGALÍNAN (1);
Þetta er hlýleg og fjölhæf per-
sóna, sem getur auðveldlega farið
af einu sviði yfir i annað. Hún hefur
ákveðna hæfileika til þess að leið-
beinaog hjálpa öðru fólki og hún er
fórnfús I eðli sínu.
Hún er næm fyrir tónlist og
hljómfalli. Það má eiginlega segja
að hún sé mjög hrifnæm mann-
eskja. Kannski lika svolitið óróleg.
ERT ÞÚ FORVITIN/N?
Ef þú vill lálu lesa úr lófanum
þínum skuliu senda TVÖ LJÓS-
RITaJ hœgri hendinni (nema þú
sérl örvhenl/ur) og skrifa aftan á
blöðin lykilorð, ásaml upplýsing-
um um kyn og fœðingardag. Hver
veii netna þinn lófi verði nœsturl-
ur!
i framhiáhlaupi
Björgvin Halldórsson er
kominn á sviö aö nýju. Hann
hefur endurreist þá fornfrægu
Brimkló meö nokkrum göml-
um félögum sínum. Hljóm-
sveitin leikur fyrir dansi í veit-
ingahúsinu Broadway og verö-
ur þar fram á vor. Jafnframt
hafa Björgvin og félagar fullan
hug á aö hljóörita nýja plötu
þegar líður að vori. Þá fyrstu í
tæp átta ár sem kemur út meó
Brimkló. — Viö lögðum nokkr-
ar spurningar fyrir Björgvin
Halldórsson. í framhjáhlaupi.
Persória sem hefur haft
mest áhrif á þig?
„Þær eru nú svo margar
persónurnar sem á einn eóa
annan hátt hafa haft áhrif á
mann, svo að það er erfitt að
taka eina fram yfir aóra. En á
tónlistarsviðinu og sérstak-
lega á söngsviðinu gæti ég
nefnt Elvis, John Lennon og
svo auðvitað Cole Porter og
George Gershwin.“
Hvenær hefurðu orðið
hræddastur á ævinni?
„Það held ég að sé í flugferð
einni sem ég fór um árið. Það
var flogið á Akureyri, þar sem
ég átti að spila með HLH-
flokknum. Flugvélin lét svo illa
að ég hélt að hún væri aiör-
samlega á siðasta snúningi.
Ég var veikur í heilan dag eftir
sjóferð þá. Eftir þessa flugferð
höfum við félagarnir í gamni
kallað Flugleiðir „Þrym hf.““
Hvenær hefur þú oröiö glað-
astur á ævinni?
„Ætli það sé ekki þegar
börnin mín fæddust."
Hvers gætirðu síst veriö án?
„Það væri nú lítið varið í lífið
ef ástin, tónlistin og listin yfir-'
leitt væru ekki til.“
Hvað finnst þér krydda til-
veruna mest?
„Kvikmyndir, tónlist, lestur
bóka, matur og ferðalög. En
ekkert endilega í þessari röð.“
Hvað fer mest i taugarnar á
þér?
„Það eru einna helst rolur í
umferðinni og fólk sem kemur
of seint i bíó eða sýnir óstund-
vísi almennt."
Hvað finnst þér leiöinlegast
að gera?
„Maður gæti svo sem tint
margt til, en ég held ég sleppi
því. Ég reyni nefnilega af
fremsta megni að hafa allt
skemmtilegt sem ég fæst við.
Stundum tekst það, stundum
ekki.“
Hvaö finnst þér skemmti-
legast aö gerá?
„Ef ég er heppinn er það
hvert það verkefni sem ég
fæst við hverju sinni.“