Pressan - 11.05.1989, Blaðsíða 9

Pressan - 11.05.1989, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 11. maí 1989 9 REYKJAVÍKURBORG KAUPIR 17 NÝJAR TOYOTUR FRAMHJÁ UMBOÐINU VIÐSKIPTI VIÐ ÓSKRÁÐ FYRIRTÆKI Reykjavíkurborg hefur fest kaup á 17 Toyota-fólksbifreiðum sem keyptar eru af heildverslun M.Ó. Ólafssonar. Þetta er i fyrsta skipti sem opinberir aðil- ar líta framhjá bifreiðaumboðum við bílakaup. Toyota-umboðið gerði einnig tilboð í bílana en talið var að munaði 85 þúsund krónum á verði umboðsins og því verði sem heildverslunin bauð á hvern bíl. Borgarráðsmenn sem sam- þykktu tilboðið töldu sig sýna hagkvæmni í þessum bííakaupum og hafa spar- að borginni tæplega 1,5 milljónir kr. „Við gættum þess að greiða ekki krónu í þessum bílum fyrr en við af- hendingu," segir borgarráðsmaður í samtali við PRESSUNA. Að sögn hans urðu forráðamenn Toyota- umboðsins æfir þegar Ijóst varð að Reykjavíkurborg hafði gengið framhjá þeirra tilboði og sendu bréf 25 ára heildsalí bauð bet- ur en um- boðið gerð af Toyota Corolla 1300 á verði sem var um 40 þúsund kr. hærra en verð Guðmundar. Því var ekki held- ur sinnt af borginni. Þegar opinberir aðilar kaupa bíla er æviniega óskað eftir tilboðum frá bifreiðaumboðunum, ýmist til einstakra umboða eða fram fer al- Ekkert út- boð fór fram umtalsverðan hagnað af umsýsl- unni. í Þýskalandi eru bifreiðavið- skipti flókinn frumskógur og ekki mögulegt að festa kaup á bílum á töluvert niðursettu verði og flytja þá til landsins án þess að sniðganga innflutningsreglur. í samtali við PRESSUNA þver- Reiði i stjórn Bil- greina- sam- bandsins Fyrirtækið sem annaðist þessi viðskipti við borgina, heildverslun M.O. Ólafsson, finnst hins vegar hvergi skráð. Fyrir fjórum árum var til fyrirtæki með þessu nafni sem var sameinað Vélorku hf. í Reykja- vík og síðan lagt niður. Fyrirtækið er því hvergi á skrá í dag en á bak við þessi viðskipti við Reykjavíkurborg stendur 25 ára Reykvikingur, Guð- mundur Kr. Guðmundsson, sem hefur nokkuð fengist við bílavið- skipti og bifreiðainnflutning. Kaupir hann bílana beint frá Þýska- landi og verða fyrstu sex bílarnir að öllum líkindum afhentir Véiamið- stöð borgarinnar í næsta mánuði. í samtali við PRESSUNA kvaðst Guðmundur vera að stofna eigið fyrirtæki undir þessu nafni og Toyota- umboðið hótaði að veita enga þjónustu vegna þessara bila hygðist færa það á skrá sem sitt einkafirma er fengist við inn- og út- flutning. „Ég náði bara betra verði en umboðið,11 segir hann en vildi lítið greina frá þessum viðskiptum að öðru leyti. „Það er rangt að það hafi munað 85 þúsund krónum á þessum bílum. Þessi tegund kostar ekki nema 640 þúsund og því mun- arekki nemarúmlega40 þúsund kr. á hvern bíl. Umboðin leggja bara þeim mun meira ofan á verðið,“ segir hann. Aðeins umboð veita verksmiðjuóbyrgð Bifreiðaumboðin veita að lág- marki eins árs verksmiðjuábyrgð á öllum nýjum bílum sem þau seija. í þessu tilfelli hvílir ábyrgð bílanna 17 á Guðmundi. Að sögn Sigfúsar Jónssonar, forstjóra Innkaupa- stofnunar Reykjavíkurborgar, tek- ur heildverslunin á sig árs ábyrgð á bílunúm. Guðmundur heldur því þó fram að hann fái eins árs verk- smiðjuábyrgð með kaupunum. Það er hins vegar útilokað að aðrir en skráð umboð geti veitt slíka ábyrgð til kaupenda. til borgaryfirvalda þar sem þeir hótuðu að veita enga varahluta- þjónustu vegna þessara bila. Upp- hersla og ryðvörn eru undan- bragðalaust innifalin í verði bif- reiða sem keyptar eru í umboði. Upphersla kostar venjulega á bilinu 10—30 þúsund. Vélamiðstöð borg- arinnar hefur aftur á móti sitt eigið verkstæði og telur sig geta annast þetta sjálf. Bogi Pálsson, fram- kvæmdastjóri hjá Toyota-umboð- inu, vildi ekkert tjá sig um málið þegar þangað var leitað. 40 þús. kr. mismunur Bílarnir sem hér um ræðir eru af gerðinni Toyota Corolla 1300árgerð 1989. Innkaupastofnun Reykjavík- urborgar hafði milligöngu um kaupin fyrir Vélamiðstöð borgar- innar og hefur borgarráð staðfest þessi kaup. Toyota-umboðið bauð bifreiðina á 695 þúsund krónur en Guðmundur bauð lægra, eða á kr. 610 þúsund. Heildarviðskiptin hljóða upp á 10 milljónir og 370 þúsund. I tilboði Toyota var miðað við XL-gerð af þessari tegund en Guðmundur býður Standard-teg- und, sem er nokkru ódýrari. Toyota hafði ekki slíka tegund til afhend- ingar en kvaðst einnig geta boðið þá mennt útboð. Nú hefur borgin hins vegar vikið frá þessari reglu. Ekkert útboð átti sér stað vegna bílanna 17 sem borgin kaupir nú. Flest bif- reiðaumboðin vissu því ekkert um þessi kaup en borgin hafði sam- band við Toyota-umboðið til að leita tilboða þar. Af einhverri óút- skýrðri ástæðu vissi Guðmundur einnig um þetta og lagði sitt tilboð frani. Á stjórnarfundi Bílgreinasam- bandsins, sem haldinn var í vik- unni, voru þessi viðskipti tekin til umræðu og voru stjórnarmenn ákaflega óhressir með það fordæmi sem borgin sýnir með því að snið- ganga umboðin með þessum hætti. „Grái markaðurinn,/ Það hefur færst mjög í vöxt á síð- ustu árum að einstaklingar taki að sér að flytja inn nýja og notaða bíla og bjóði þá á lægri kjörum en um- boðin veita. Af viðtölum við ýmsa sem komið hafa nálægt slíkum við- skiptum má ráða að algengt er að samið sé við seljanda erlendis um að setja lægra útflutningsverð á reikninga og greiða seljandanum mismuninn út í hönd. Síðan eru að- flutningsgjöld hér greidd skv. þeim reikningi og bílarnir boðnir til sölu á lægra verði en umboðin geta boðið. Verðmunurinn er það mikill að innflytjandinn kemur út með tók Guðmundur fyrir að hann hefði þurft að beita brögðum. Hann hefði einfaldlega náð betra verði en Toyota-umboðið. Borgar- ráð leit einnig svo á, þegar það bar tilboðin saman, og ákvað að taka tilboði heildverslunar M.Ó. Ólafs- sonar. Það telst þó ný stefna hjá hinu opinbera að eiga í bifreiðainn- kaupum í gegnum einstaklinga og framhjá umboðunum. Og ekki er það síður óvenjulegt að eiga í slík- um viðskiptum við fyrirtæki sem hefur verið lagt niður og var hvergi til skráð þegar tilboði í nafni þess var tekið. „Bílaviðskipti af þessu tagi í Evrópu ganga undir nafninu „grái markaðurinn“ meðal þeirra sem fást við slík viðskipti," segir viðmælandi nokkur sem staðið hef- ur í umsvifamiklum bifreiðainn- flutningi. Engin verk- smiðju- ábyrgð þegar ekki er keypt hiá skráðu bilaum- boði ff Veljum aðeins það hagstæðasta" segir Hersir Oddsson, forstjóri Véla- miðstöðvar Reykjavíkurborgar. „Tilboð heildverslunarinnar er 603 þúsund á bíl. Þar sem upp- hersla er ekki innifalin reiknum við okkur 7 þúsund krónur á bil sem vinnu á okkar eigin verkstæði og því verður heildarupphæðin 610 þúsund,“ segir Hersir Odds- son, forstjóri Vélamiðstöðvar Reykjavíkurborgar. „Tilboð Toyota-umboðsins miðaðist við Toyota Corolla af XL-gerð, sem er betur búin en Standard-gerðin sem við kaupum af heildversluninni. Þeirra tilboð var því hærra eða 655 þúsund og fullbúinn með ryðvörn, útvarpi o.s.frv kostaði slíkur bíll úr um- boðinu 695 þúsund. Við bárum þetta verð saman við hitt og mis- munurinn í heild fyrir alla bílana 17 er því 1.445.000,“ segir Hersir. Aðspurður vissi hann engin deili á heildsölunni sem ákveðið var að skipta við. „Vissulega vill borgin kaupa af umboðunum og við höfum átt gott samstarf við þau. En við reynum alltaf að kaupa á sem hag- stæðustu verði og í þessu tilfelli varð þetta ofan á. Það er líka tiltölulega auðvelt fyrir okkur að kaupa bíla að utan með þessum hætti, því við rekum eigið verkstæði, og ég fæ ekki séð að útvegun varahluta verði vanda- mál því varahlutir fást svo víða,“ segir hann. Kvað hann bílana verða notaða af starfsmönnum borgarinnar í ýmsum þjónustu- störfum.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.