Pressan - 11.05.1989, Qupperneq 10
10
Fimmtudagur 11. maí 1989
OPIÐ BRÉF FRÁ FANGA
ÓSÓMIÁ HRAUNINU
Fangi á Litla-Hrauni gefur ófagra lýsingu á lífi og að-
búnaði fanga í opnu bréfi til PRESSUNNAR.
Litla-Hrauni 18/4 ’89
z/Bréf þetta sendir núverandi fangi í fangelsinu á
Litla-Hrauni fyrir hönd fanga sem þar dvelja.
Ekki alls fyrir löngu hringdi maour sem nýlega
hafði dvalist í Hegningarhúsinu á Skólavörðustíg 9
í Þjóðarsólina ó rós 2 og sagði ófagra sögu um að-
búnað fanga og fleira.
Kveikjan að þessu bréfi var meðal annars samtal
við þennan mann, því það er ekki vanþörf ó að mól-
efnum þeirra ógæfumanna sem í fangelsi dvelja sé
gaumur gefinn.
Þar sem ekki eru tök ó að hringja héðan verður
þetta fótæklega bréf að nægja um aðbúnað og að-
stæður fanga ó Litla-Hrauni. Einnig þykir það lík-
legt að fangelsisvfirvöld hér séu ekki beint spennt
fyrir að fleiri en þurfa þykir viti um margan þann
ósómann er hér ríkir. Þetta bréf er því ritað ón vit-
undar róðamanna og sentfram hjó ritskoðun þeirri
sem hér ríkir, að öðrgm kosti kæmist það aldrei til
viðtakf''J'
Þegar fangi' kemur hingað til
Litla-Hrauns, eftir þá oftast ein-
hverja veru á Skólavörðustíg 9, er
hann settur í klefa sem kallaðir eru
skápar vegna stærðar. Þessir klefar
eru 2x 1,5 m eða 3 m2 að flatarmáli.
Inni í þessum klefum er ekkert
nema steinsteypt rúm, enda ekki
hægt að koma þar miklu fyrir. Ofan
á „rúrninu” er eldgömul, illa lykt-
andi og oft rifin dýna og eins er um
sængur. Þegar sá er þetta ritar kom
hér var honum vísað í slíkan skáp
þar sem dýnan var alveg lögst sam-
an og veitti lítið viðnám hörðum
bálkinum, og má nærri geta hvort
það var þægilegt að liggja í. Sængin
var rifin hálf eftir endilöngu og
hékk saman á því að vera í sængur-
veri. Þegar beðið var um ný rúmföt
var svarið að þau væru ekki til.
Þessir klefar eru að engu leyti
íverustaður fyrir menn, jafnvel þótt
um dæmda menn sé að ræða.
Gluggar í þessum klefum eru svo
óþéttir að í vatnsveðrum fara þeir á
flot. Það verða menn að láta sér
lynda. Það hefur oft komið fyrir að
menn hafi þurft að dvelja i þessum
klefum mánuðum saman þar til
þeir fengu skárri klefa.
Það má nærri geta hvort ekki
verður þröng á þingi þegar viðkom-
andi fær heimsóknargesti. Heyrst
hefur að heilbrigðiseftirlitið hafi á
sínum tíma lokað þessum klefum
en einhverra hluta vegna hafa þeir
verið opnaðir aftur.
75 kr. á tímann
Hér hefur það tíðkast að fangar
vinni, enda hét þetta vinnuhæli áð-
ur en nýju fangelsislögin tóku gildi
um síðustu áramót. Hér hefur und-
anfarin ár verið stunduð vinna af
föngum og er svo enn. Um 10—12
menn vinna við hellusteypu og
milliveggjaplötugerð. 4 eru í bíl-
númeragerð, 2—3 eru í gróðurhúsi
sem hér er, sem reyndar er aðeins
unnið í á sumrin. 2—4 eru á járn-
verkstæði en afgangurinn vinnur
svokallaða fokkvinnu. Á vetrum er
rekinn hér skóli og þar eru um
5—10 menn. Föngum er greitt kaup
fyrir vinnu sína til kaupa á nauð-
þurftum, því fangar þurfa að sjá
fyrir öllum þörfum sjálfir nema
hvað mat og húsnæði snertir. Fangi
hefur í dag 75 kr. á tímann fyrir
vinnu sína auk 80 króna dagpen-
inga pr. dag. Þessar 80 krónur eiga
að duga fanga fyrir tóbaki, hrein-
lætisvörum, klippingu, læknis-
þjónustu, lyfjakostnaði, fötum og
öllu því sem fangi þarf á meðan
hann er hér, og er þá miðað við að
hann vinni ekki. Nokkrir eru hér
sem ekki vinna og sumir af heilsu-
farsástæðum má þar nefna geð-
veika menn sem hér eru vistaðir og
er þjóðfélaginu til skammar hvernig
komið er fram við. Það er varla til
í veröldinni það þjóðfélag nema hér
þar sem geðsjúklingar eru vistaðir í
fangelsi.
Vinnutími fanga er 3 tímar á dag
og þeir sem vinna hina svokölluðu
fokkvinnu hafa yfir vikuna í ráð-
stöfunarpeninga kr. 1.525.
Hér er rekin svokölluð fanga-
verslun, sem nýbúið er að koma á,
en áður versluðu fangar gegnum
pöntunarlista frá Kaupfélaginu á
Selfossi. Vörur þær sem seldar eru
í fangaversluninni eru á fullu verði,
eins og úr búð í Reykjavík. Hingað
kemur hárskeri annað slagið frá
Selfossi og klippir menn og kostar
venjuleg klipping 11—1.200 kr. En
fæstir hafa efni á að Iáta rakarann
klippa sig og klippa sig því sjálfir
eða hver annan. Öll lyf sem fangar
þurfa að nota hér eða tannlæknis-
aðstoð sem og sérfræðingsaðstoð
þurfa þeir að borga sama verði og
þeir sem frjálsir eru. Kaup fanga
hækkaði fyrir skömmu úr 50 kr. í
75 kr. en hafði verið 50 kr. á tímann
í ein 4—5 ár. Hér hefur verið mikil
óánægja hjá mönnum vegna hins
smánarlega kaups sem þeir fá og
vonuðust þeir til að eitthvað yrði
gert í því máli þegar heyrðist að til
stæði að hækka það, því að í hinum
nýju fangelsislögum segir svo í 13.
grein: „Fanga skal greiða laun fyrir
vinnuna og skal tekið tillit til arð-
semi vinnunnar og launa á almenn-
um vinnumarkaði við ákvörðun
launa.“ Þeir sem vinna hér við að
steypa hellur og milliveggjapiötur
hafa að engu leyti laun miðað við
arðsemi þess sem þeir gera né þeir
sem vinna við bílnúmeragerð, og
svo mætti lengi telja.
Fyrir mann sem hér þarf að
dvelja árum saman og ekki hefur
aðrar tekjur en þær sem hann vinn-
ur sér hér inn eru 1.525 kr. á viku
engan veginn nóg fyrir nauðþurft-
um hvað þá meir.
Ef viðkomandi reykir sígarettur,
og þá pakka á dag, er það u.þ.b.
1.050 á viku. Þurfi hann að fá lyf
hjá lækni er það minnst 440 kr.
Tannkrem, sápa, sjampó og slíkt
um 2—300 kr. Varla er hægt að
komast af með minna, en þó eru
þetta 1.790—2.800 kr. í hverri viku.
Ekki er meiningin með því sem
sagt er hér að framan að fangar eigi
að vera hátekjumenn, heldur að
föngum sé af sanngirni borgað fyrir
þá vinnu sem þeir inna hér af hendi.
Meginþorri þeirra sem hér þurfa að
dvelja er að eðlisfari duglegur til
vinnu og setur ekki fyrir sig þó hún
sé erfið eða sóðaleg ef sómasam-
lega er greitt fyrir.
Þeir sem vinna við hellusteypu
vinna þar í akkorði og eru stans-
laust að, þá þrjá tíma sem unnið er,
til að geta haft meira upp úr því en
fokkvinnunni. Það er ekki beint
hægt að hrópa húrra fyrir vinnuað-
stöðu þeirra. Þegar þeir eru að eru
þeir allir útataðir olíu, sementi og
öðrum þeim skít sem tilheyrir
steypuvinnu. Einu hlífðarfötin sem
fangelsið sér þeim fyrir eru gúmmí-
galli og vettlingar, annan fatnað
þurfa menn að kaupa sjálfir. í þess-
ari vinnu er mikið slit á fötum,
bæði af oliu og sementi. Menn eru
því margir hverjir eins og umrenn-
ingar til fara, þar sem auraráð
þeirra leyfa ekki mikil fatakaup.
Sýklar og óþverri
Eitt er hér til háborinnar skamm-
ar fyrir fangelsisyfirvöld, en það er
hreinlætisaðstaða fanga. í stærra
húsinu hérna eru 46 fangar en að-
eins tvö böð. Á öðru er einn sturtu-
haus en tveir tveir á hinu. Þegar
menn vilja fara í bað verða þeir að
fara einn og einn, þar sem vatn er
ekki meira en það að ef skrúfað er
frá einni sturtunni kemur ekkert í
hinar. Þegar byggt var við gamla
húsið bættust við 22 klefar og var
að sjálfsögðu gert ráð fyrir þriðja
baðinu. Það var hinsvegar aldrei
tekið i notkun heldur notað sem
geymsla fyrir fangaverði.
hjá honum.
Matsalur fanga, sem er á undan-
þágu frá heilbrigðiseftirliti, er það
lítill að hann þarf að tvísitja.
Gluggar eru þar svo óþéttir að þeg-
ar eitthvað er af vindi úti fyllast öll
borð af sandi og mold, sem smýgur
inn um glugga. Matardiskar fara
ekki varhluta af því frekar en ann-
að. Komið hefur fyrir að vatn hafi
flætt inn í matsal svo menn hafi
þurft að koma í stígvélum í mat. Er
það einkum í miklum vatnavöxtum
á vorin.
Pakkasúpur og bjúgu
Mataræði fanga hefur stundum
verið gert að umræðuefni þeirra
sem ekkert þekkja til þess og margir
vilja meina að fæði hér sé eitthvert
hótelfæði. Ansi er hætt við að sá er
Ekki er nóg með að aðstaða til
hreinlætis sé fyrir neðan allar hellur
heldur er hreinlæti á böðum einnig
stórlega ábótavant. Það er nefni-
lega svo að þar grassera allskonar
sýklar og óþverri. Nálægt því hver
einasti maður hefur fótasveppi sem
stöðugt klæjar undan og þeir lykta
illa. Yfirmönnum hér og læknum
hefur verið bent á þetta og þess ósk-
að að bætt verði úr, en einu svörin
sem fást er að ekkert sé hægt að
gera, þetta komi bara aftur. Þeir
sem vinna við að þrífa böðin þrífa
þau upp úr klór en það dugar engan
veginn. Þetta þarf að drepa -niður
með sterkum efnum, í hvert skipti
sem það kann að koma upp. Að
vera sífellt með kláða og sár á fótum
ásamt illum þef er ekki sérlega
spennandi. Það er eins og ekkert sé
of slæmt fyrir dæmda menn. Það
væri einhver búinn að lagfæra slíkt
ef þetta kæmi upp í sturtunni heima
héldi því fram myndi fljótt skipta
um skoðun þyrfti hann að dvelja
hér einhvern tíma. Hann kæmist
fljótt að því að kjötfars, hakk, af-
gangskássur, sem hér nefnast „sýn-
ishorn síðustu viku“, pakkasúpur,
bjúgu með yfir 50% fitu, bragð-
lausar pylsur og álíka matur, unn-
inn úr furðulegasta kjöti, er ekki
beint hótelfæði. Hann kæmist
einnig að því að nýir ávextir eru
aldrei á borðum nema á jólum. Nýtt
grænmeti er álíka sjaldséður mun-
aður. Hann myndi líka komast að
því að gróft brauð er ekki vinsælt
að hafa á borðum fyrir fanga, nema
þá í þurrara lagi og helst tveggja til
þriggja daga gamalt. Hinsvegar er
nóg af hveitibrauði. Enda kæmist
hinn sami að því að fljótlega færi
að bera á hægðatregðu hjá honum,
þar sem allan grófleika vantaði í
matinn.
Hann yrði líka hissa á því að fá
morgunmat um hádegi á sunnudög-
um. Matur hér er einhæfur og alltof
margar fæðutegundir sem aldrei
sjást hér á borðum. Þetta væri
bærilegt ef menn ættu kost á að
borða annars staðar annað slagið,
en því er nú ekki að heilsa. Menn
verða að gera sér það að góðu sem
á boðstólum er hér.
í 15. gr. nýju fangelsislaganna frá
áramótum segir svo: „Fanga skal
séð fyrir aðstöðu til tómstundaiðk-
unar og líkamsþjálfunar." Hér er
þessi aðstaða ósköp fátækleg.
Æfingasalur er hér með ýmsum
æfingatækjum en þegar mönnum
gefst kostur á að þjálfa sig þar og
liðka er svoleiðis þröng þar á þingi
að færri komast að en vilja. Salur
þessi er alltof lítill og þyrfti, ef vel
ætti að vera, að vera minnst helm-
ingi stærri.
Öllum er jú ljóst að holl og góð
hreyfing er öllum nauðsynleg, sér í
lagi á stað eins og hér, þar sem
menn þurfa að dvelja innan girð-
ingar og hafa ekki alltof mikið svig-
rúm. Tæki þau sem í salnum eru
hafa fangar ýmist keypt sjálfir eða
smíðað og hefur fangelsið ekki