Pressan - 11.05.1989, Side 11
Fimmtudagur 11. maí 1989
11
komið þar nærri nema þá með því
að veita mönnum aðstöðu til smíð-
anna.
Spilað og teflt
Nú er það svo, að í fangelsi eyða
fangar mestum tíma innan dyra,
sem eðlilegt er. Þar er ekki um auð-
ugan garð að gresja hvað tóm-
stundaaðstöðu snertir. Fangar
keyptu sjálfir fyrir nokkrum árum
billjard-borð til að spila á og er það
eina tómstundaiðkunin sem hægt
er að dvelja við innan dyra, fyrir
utan hina hefðbundnu spila-
mennsku og tafliðkun. Fangelsið
færi, sé ekki „réttur“ maður í for-
svari fyrir þá.
í skuld við fangelsið
Einn er sá hlutur er til batnaðar
hefur breyst, leyfismál fanga. í dag
gefst föngum kostur á að fá dags-
leyfi frá fangelsinu til að heimsækja
ættingja sína eða til annarra þeirra
hluta sem þörf er talin á. í 21. gr.
laga um fangelsi og fangavist segir
svo: „Veita má fanga leyfi til
skammrar dvalar utan fangelsis ef
slíkt telst heppilegt sem þáttur í
refsifullnustu eða til að búa hann
undir að afplánun ljúki.“
hefur ekki, þrátt fyrir ítrekaða
beiðni, aðstoðað fanga við að út-
vega spil, töfl og slíkt. Það verða
þeir að sjá sjálfir um. Jafnvel ösku-
bakka þurfa fangar að hafa með
sér, því þá sér fangelsið ekki um að
útvega frekar en svo margt annað.
Frá árinu 1981 hefur hér verið
starfrækt trúnaðarráð svokallað.
Því er ætlað að gæta hagsmuna
fanga sem og að sjá þeim fyrir af-
þreyingu ýmiss konar, útvega hing-
að skemmtikrafta og fleira.
Fyrstu árin einskorðuðust störf
trúnaðarráðsins við að fá ýmsa að-
stöðu fanga bætta, með samvinnu
við fangelsisyfirvöld hér, sem og að
koma fram fyrir hönd fanga, teldu
þeir að þeir væru einhverjum órétti
beittir af yfirmönnum. Árangur
starfs trúnaðarráðs á fyrstu árum
þess var mjög góður og mörg mál til
lykta leidd á sanngjarnan hátt.
Einnig komu fangar fram ýmsum
baráttumálum og þeim var breytt til
betri vegar. Því það er eins hér og
annars staðar að samtakamáttur-
inn er alltaf sterkari en einstakling-
urinn. Hin fyrstu ár var samstarf
forystumanna trúnaðarráðs og
yfirmanna hér með miklum ágæt-
um og gott starf unnið.
Það hlýtur hverjum manni að
vera ljóst að til að sá maður, sem
dæmdur hefur verið í fangelsi, geti
haft sem eðlilegust tengsl við þjóð-
félagið verður hann sem oftast að fá
að hverfa til samfélagsins í stuttan
tíma í senn. Hlutverk fangelsis er jú
einnig að bæta menn, ekki síður en
refsa þeim. Og nauðsynlegur þáttur
í að bæta menn er að þeir haldi
tengslum við fjölskyldu sína og
þjóðfélag. Ekki að þeir gleymist og
vistist sem lengst bak við lás og slá
en séu svo, þegar afplánun lýkur,
sendir sömu menn og þeir komu
aftur út í þjóðfélagið, tengslalausir
við allt og alla. Því hafa dagsleyfi
miklu hlutverki að gegna, eins og
hefur sýnt sig í nágrannalöndum
okkar.
Eitt setur þó strik í reikninginn.
Menn sem dvalið hafa árum saman
í fangelsi og ekki haft meiri laun en
þar er að hafa veigra sér við að
þiggja þessi leyfi vegna féskorts.
Komið hefur fyrir að menn hafi
ekki einu sinni átt fyrir rútunni í
bæinn, hvað þá meir.
Og ekki eru allir svo lánsamir að
geta leitað til ættingja um fjárað-
stoð, annaðhvort vegna þess að ætt-
ingjar eru ekki aflögufærir eða að
L
//uMo* /v&Lu ar LJj
En hin síðari ár hefur starfsemi
trúnaðarráðs breyst mikið og þá í
þá átt sem yfirvöld hér vilja.
Því er þannig komið fyrir þessu
starfi að ef yfirmönnum líkar ekki
sá sem er í forsvari fyrir fanga, þá er
einfaldlega ekkert gert í þeim mál-
um er viðkomandi kann að bera
upp við yfirmenn. Þá er til í dæm-
inu að yfirmenn neiti að ræða ýmis
mál eða yfirleitt ræði ekki við for-
svarsmenn. Þau skilaboð hafa
komið frá yfirmönnum að ef fangar
kjósi ekki „rétta“ menn til að gegna
störfum í trúnaðarráði hafi yfir-
menn ekkert við þá að tala.
Þessu má einna helst likja við
rússneska leppstjórnarríkið. Af
þessu leiðir að fangar eiga erfitt
með að koma málum sínum á fram-
viðkomandi fangi getur ekki „mór-
alskt“ séð, miðað við það sem á
undan er gengið, beðið nokkurn um
aðstoð. Þetta mættu yfirvöld fang-
elsismála taka til athugunar. Mönn-
um þykir jú alltaf gaman, eftir
langa fangelsisveru, að skreppa á
kaffihús, kaupa sér hljómplötu eða
fatnað, en málið versnar þegar aur-
inn er enginn til. Ekki er hér átt við
að fangar fari með fullar hendur
fjár, heldur að þeim sé séð fyrir við-
unandi launum fyrir vinnu sína svo
þeir þurfi ekki að vera upp á aðra
komnir fjárhagslega eða í skuld við
fangelsið, eins og alltof margir eru
hér.
Það er, eins og allir vita, gott að
geta gleymt vandamálum sem ekki
snerta mann sjálfan eða leiða þau
hjá sér.
Úti í þjóðfélaginu eru án efa til
einstaklingar sem hafa ekki hug-
mynd um þá hluti sem gerast í ís-
lenskum fangelsismálum eða
hvernig aðbúnaður þeirra manná,
sem einhverra hluta vegna hafa lent
upp á kant við þjóðfélagið, er. Samt
sem áður vilja margir þessara ein-
staklinga mynda sér skoðanir þar
um út frá fölskum forsendum.
Þessar fátæklegu línur, beint úr
fremstu víglínu fangelsis, geta
kannski opnað augu sumra fyrir því
að fangelsi á íslandi eru engin para-
dísarlönd og að enginn sækist eftir
því að dvelja bak við rimla. Sá er
undirritar þetta bréf vill af augljós-
um ástæðum ekki undir neinum
kringurhstæðum að nafn hans
komi fram.
Refsifangi
fangelsinu Litla-Hrauni
V FJOLBREYTT ÚRVAL POKKUNARVÉLA • LOFTTÆMINGARVELAR OG -POKAR |
TOLEDO VOGIR
FRÁ TOLEDO-USA GETUR
PLASTOS HF BOÐIÐ VOGIR FRÁ
LITLUM RANNSÓKNARVOGUM í
STÓRAR BÍLVOGIR OG NÁNAST
ALLT ÞAR Á MILLI.
TOLEDO-6400
U-pallur vogarþol að 3 tonnum
Með heilum palli
Fyrir sekki og kassa
Með brettastækkun fyrir
bretti stærri en Euro
Með uppkeyrslu
braut
Meðal stórir vagnar
Hæð upp á vogina aðeins 30mm
Með uppkeyrslubraut
Stórir vagnar
fOeos&as
KRÓKHÁLSI 6 SÍMI 671900
I .BAR-CODE" STRIKAMERKIVELAR • KASSABINDIVELAR • KASSALIMBANDSVELAR I
born °í ongJin^rir
i sumar?
Nú stendur yfir dreifing á sumarstarfs-
bæklingi íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur.
Að vanda er í bæklingnum að finna
upplýsingar um nánast alla þá starfsemi
sem félög, samtök og stofnanir í Reykjavik
gangast fyrir nú í sumar.
Bæklingnum er
dreift til allra nemenda grunnskólanna í
borginni og eru foreldrar hvattir til að kynna
sér vel ásamt börnum sínum þá möguleika
sem þar er að finna.
Innritun í starf á
vegum íþrótta- og tómstundaráðs hefst á
sérstakri innritunarhátíð í Laugardalshöll
laugardaginn 20. maí kl. 13.00-17.00.