Pressan - 11.05.1989, Síða 13
Fimmtudagur 11. maí 1989
13
Sex íslendingar íara í
ráðherraleik og setja saman
óskaríkisstjórnina
Þeir eru margir sem óska þess þegar líður að kosningum að þeir
gætu kosið fólk, ekki flokka. Þeir hinir sömu eru ekki í nokkrum vafa
um hvaða fólk væri best fallið til þess að stjórna landinu. „Ef ég mætti
ráðaþá . . /'segja þeirogþyljauppnöfnþeirrasemþeirtreystafyrir
embættunum.
PRESSAN ákvað að bregða á leik með lesendum sinum og fá að vita
hvaða fólki hinn almenni borgari treystir best til að stjórna landinu,
leysa efnahagsvandann og öll hin vandamálin. Að vísu svolítið „al-
vöruþrunginn leikur/#, eins og einn viðmælenda okkar komst að orði,
enda voru ekki alveg allir til i að taka þátt í honum. Spurningin var
þessi: Ef ÞÚ værir forsætisráðherra, hvaða fólk myndirðu velja til að
stjórna landinu með þér?
HANNES HÖLMSTEINN GISSURARSON:
„Ég myndi að vísu helst vilja vera fjármálaráðherra. Það starf held
ég að sé ögrandi og erfitt. Aðrir í ríkisstjórninni yrðu þeir sem ég treysti
fyllilega til að gegna þeim embættum.“
Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttarlögmaður, dómsmálaráðherra.
Þorsteinn Pálsson, fjármálaráðherra.
Birgir ísleifur Gunnarsson, menntamálaráðherra.
Davíð Oddsson, utanríkisráðherra.
Vilhjálmur Egilsson, félagsmála-, heilbrigðis- og tryggingamálaráð-
herra.
Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Granda, iðnaðar-, sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra.
„Ég myndiekki velja neina konu. Ég hef ekki orðið var viðað landinu
sé betur stjórnað eftir að hlutdeild kvenna á þingi jókst. Það er sama
með konur og hagfræðinga. Eftir því sem hagfræðingum hefur fjölgað
hefur hagstjórnin ekkert batnað. Það er bara ekki nein fylgni milli
þessa. Kannski er ég að gera þessum mönnum óleik að orða þá við þessa
„hryllilegu frjálshyggju"! En þetta yrði mín óskaríkisstjórn.“
RÍKISSTJÓRN HANNESAR HÓLMSTEINS GISSURARSONAR
Dómsmálaráðherra:
JÓN STEINAR
GUNNLAUGSSON
Félagsmála- heil-
brigðis- og trygginga-
málaráðherra:
VILHJÁLMUR
EGILSSON
Menntamálaráðherra:
BIRGIR ÍSLEIFUR
GUNNARSSON
Iðnaðar-, sjávarút-
vegs- og landbúnað-
arráðherra:
BRYNJÓLFUR
BJARNASON
Fjármálaráðherra:
ÞORSTEINN
PÁLSSON
Utanrikisráðherra:
DAVÍÐ ODDSSON
BIRNA ÞÓRÐARDÖTTIR, ritstjóri Fréttabréfs lækna:
„Þær grundvallarbreytingar sem ég vil sjá í þjóðfélaginu verða ekki
í höfn með því að skipta um fólk í þessum stólum sem eru fyrir hendi.
Ég vil miklu frekar virkja alþingi götunnar til að hafa einhver tök á að
koma nálægt stjórntaumunum, þess vegna alþingi vinnustaðanna líka.
Þá vildi ég frekar sjá fólk inni í stjórnarráði og annars staðar þar sem
þessar ákvarðanir eru teknar. Það fólk væri þá fulltrúar ákveðinna
hópa launamanna og væru sem slíkir ábyrgir gagnvart umbjóðendum
sínum en ekki ábyrgðarlausir eins og þetta lið er i dag. Þá kæmu menn
þangað inn með reynslu sína sem er oft ólygnust. Svo er auðvitað hægt
að setja upp einhver stjórnarandlit og þá væri gaman að sjá eftirtalda
í þeirri stjórn:
Sigríður Kristinsdóttir sjúkraliði.
Guðrún Kr. Óladóttir Sóknarkona.
Guðlaug Teitsdóttir kennafi.
Ragnar Stefánsson jarðskjalftafræðingur.
Rúnar Sveinbjörnsson ráfvirki.
María Kristjánsdóttir leikstjóri.
Guðbergur Bergsson rithöfundur, sem yrði heiðursfélagi í stjórninni.
RÍKISSTJÓRN BIRNU ÞÓRÐARDÓTTUR
RAGNAR
STEFÁNSSON
GUÐLAUG
TEITSDÓTTIR
„Eina ráðuneytið sem ég vildi úthluta er sjávarútvegsráðuneytið sem
kæmi í hlut Jóns bróður míns. Ég treysti honum fyrir þeim rnálurn."
JÓN ÞÓRÐARSON