Pressan - 11.05.1989, Side 17
O'J.'j' i i rr i r.r.fvi'r ,'‘i' 7
Fimmtudagur 11. maí 1989
PRESSU
MOLAR
f ram hefur komiö að Jón Bald-
vin Hannibalsson utanríkisráð-
herra hafi á prjónunum að kalla
heim þá sendiherra, sem orðnir eru
65 ára, og fá þeim verkefni í ráðu-
neytinu. Ef af þessu verður losna
þar með nokkrar stöður og heyrst
hefur að þá séu miklar líkur til þess
að íslensk kona verði í fyrsta sinn
skipuð í embætti sendiherra. Er þar
um að ræða Sigriði Snævarr sendi-
ráðunaut...
undanförnum mánuðum
hefur Ólafur Ólafsson rekstrarhag-
fræðingur haft það starf með hönd-
um að endurskipuleggja Almenna
bókafélagið og Bókaverslun Sigfús-
ar Eymundssonar og má sjá ýmis
merki þess í versluninni við Austur-
stræti. Töluvert var um manna-
breytingar í fyrirtækinu í tíð Ólafs
og í tengslum við þær kviknaði m.a.
sú saga að hann væri að grisja ófrítt
starfsfólk úr og ráða laglegri ein-
staklinga í staðinn — en sá kvittur
var auðvitað skilgetið afkvæmi
Gróu á Leiti. Núna er Ólafur hins
vegar sjálfur hættur störfum hjá
AB og Eymundsson og hefur snúið
sér alfarið að starfrækslu eigin
rekstrarráðgjafarfyrirtækis, sem
hann nefnir Örvun...
■i
tlenda smjörlíkið, sem kem-
ur í verslanir í dag og næstu daga,
verður fyrst og fremst í samkeppni
við Sólblóma og LéH og laggott.
Engar líkur eru á öðru en áfram-
haldandi innflutningsleyfi fáist fyr-
ir útlenda smjörlíkið, enda er það
þriðjungi ódýrara en það íslenska...
I dag fundar háskólaráð og
ákveður hvað skuli gera við stúd-
entsefnin í mennta- og fjölbrauta-
skólum landsins, sem verða ekki út-
skrifuð vegna verkfalls kennara.
Spurningin er hvort háskólinn mun
taka við próflausum stúdentum í
haust...
I^Éu hefur verið gengið frá
ráðningu fjármálastjóra Islenska
útvarpsfélagsins. Það var Ólafur
Njálsson, fjármálastjóri Bylgjunn-
ar, sem fékk endurráðningu, en Sig-
urður Thorarensen, kollegi hans af
Stjörnunni, hættir störfum hjá út-
varpsfélaginu...
r
■ eykjavíkurborg hefur undan-
farið keypt nokkrar íbúðir við
Tjarnargötu i næsta nágrenni við
ráðhúsið. Sögusagnir eru á kreiki
um að ráðhúsið sé þegar orðið of
lítið og að borgin hugsi sér að út-
vega þarna viðbótarskrifstofuhús-
næði. í framtíðinni sé svo ætlunin
að rífa húsin við Tjarnargötu næst
ráðhúsinu og byggja skrifstofu- og
þjónustuálmu við ráðhúsið...
I^Éæsta haust verður nýja
Borgarleikhúsið tekið i notkun og
mun vera búið að ákveða að frum-
sýna þar þann 21. október. Það er
raunar fyrsti vetrardagur, en eins og
sumir minnast kannski var Þjóð-
leikhúsið á sínunt tíma tekið fyrst í
notkun á sumardaginn fyrsta. Tvö
leikrit eftir Kjartan Kagnarsson
verða fyrstu verkin, sem leikin
verða á hinum nýju fjölum Leikfé-
lags Reykjavikur, og eru þau bæði
byggð á Heimsljósi Halldórs Lax-
ness. Annað verður leikið á litla
sviðinu en hitt á því stóra, en á þeim
er næstum þrefaldur stærðarmun-
ur...
F
INNLENT
Skipulagsleysi í landbúnaði
Fjallað er um niðurgreiðslukerfi,
útflutningsbætur og fleira sem tengist
afurðakerfi í sauðfjárbúskap hins
opinbera í landinu. í ljós kemur að
útgjöld ríkisins hafa farið langt fram
úr áætlunum og þess eru dæmi að
búvörusamningar og -lög hafi verið
brotin. Á sama tíma og neysla kjöts
hefur minnkað hefur framleiðslan
hvergi náð að dragast saman með
þeim hætti og samið hafði verið um.
Kerfið er margflókið og
leyndardómsfullt...
Átökin í Borgaraflokknum .........................
Nýtt tölvufyrirtæki. Blað brotið í viðskiptasögunni ....
Pappír upp á ferð og krafta. Þegar faríð
er á vestasta odda í Evrópu eiga menn
kost á því að fá viðurkenningarskjal. Á
sama stað geta menn fengið staðfestingu
krafta sinna. Magnús Guðmundsson frá
Patrekfirði, sem stendur fyrirþessari
landkynningarstarfsemi á Bjargtöngum vestra, segir frá
Skák
Af hamingjunnar hjóli. Áskell öm
Kárason skrifar um fallvaltleika
tilverunnar í skákheiminum ...........
ERLENT
9-17
22
25
MENNING
Bastillan upp er risin. Parísaróperan hefur fengið nýjan samastað við
hið fræga Bastillutorg og verður nýja húsið vígt á 200 ára
byltingarafmælinu 14. júlí n.k. Gunnsteinn Ólafsson segir frá. 41
Leikhúsfréttir .......................................... 43
Kvikmyndir
Háskaleg kynni. Marteinn St. Þórsson
skrifar um nýjar myndir og gefur
sumum stjömur ........................................... 44
„Mig hefur alltaf langað til íslands".
Viðtal við Guðrúnu Maríu
Hanneck-Kloes, þýskan íslending, sem hefur
m.a. þýtt íslenskar bókmenntir og gefið út
bækur um ísland í Þýskalandi . .„........................ 46
Menningardagar í Hallgrímskirkju ........................ 50
Heimsókn í Reykjanesvita.............................. 51-53
Hjónin í Reykjanesvita, Valgerður Hanna Jóhannsdóttir vitavörður og
Óskar Aðaisteinn rithöfundur, sótt heim.
Aldarminnig baráttukonu. Þórunn Magnúsdóttir sagnfræðingur skrifar
um Guðrúnu Jónsdóttur, forystukonu í verkakvennafélögum í
Vestmannaeyjum og í Reykjavík á fyrri hluta aldarinnar ....... 54
Bjórsaga fslands
Seinni hluti. Mjöður blandinn og Maltó í kaupfélaginu. Hallgerður
Gísladóttir safnvörður skrifar.......................... 57
VÍSINDI
■ ■■■■■
27-31
Blómabyltingin 15 ára ..
Tíðindamaður Þjóðlífs, Ámi Snævarr
var á ferð í Portúgal og ræddi m.a.
við Mario Soares forseta, de
Carvalho herforingja,sem stundum er
kallaður „síðasti byltingarmaðurinn“
og dvelur nú í fangelsi, og Kristínu
Thorberg, íslenska konu sem lent
hefur í pólitískum átökum. Sagt er
frá ástandinu í landinu í dag og þeim
breytingum sem eru að verða vegna
inngöngu Portúgals í
Evrópubandalagið.
Bretland
Samkeppni um sjúklingana................................. 32
Ungverjaland
Einar Heimisson og Gunnsteinn Ólafsson fóru til Ungverjalands og
kynntu sér umbrotin í samfélaginu:
Uppgjörið við uppreisnina hafið ......................... 33
Umbrot og ferskleiki í ungversku samfélagi ............. 34
Hæli fyrir bingósjúklinga............................... 38
í Svíþjóð er tekið til við að meðhöndla spilafíkn sem sjúkdóm og
spilasjúklingamir fá svipaða meðferð og alkóhólistar.
Sagt frá Konrad Lorenz og
atferlisfræðinni. —Nýtt risaverkefni í
vísindum. Bandaríkjamenn ætla að
fjármagna umfangsmiklar rannsóknir
á litningum, sem geta kollvarpað
læknisfræðinni; hugsanlega opna
möguleika á að lækna hingað til
ólæknandi sjúkdóma.' Áætlunin mun
gkost'a 200 milljónir dollara á ári í 15
ár. — Gleðilegt kynlíf í ellinni.
tfsRSnnsókn leiðir í ljós að fólk getur
átt ánægjulegt kyniíf fram á
grafarbakkann ......................63-68
UPPELDISMÁL
Einsetinn skóli er takmarkið. Viðtal við Birnu Sigurjónsdóttur kennara
í Snælandsskóla ............................................ 69
Skoðanakönnun um tómstundir hjá
bömum og unglingum.......................................... 70
YMISLEGT
Bamalíf ......................................................... 72
Bílar............................................................ 75
Krossgáta........................................................ 78
Erlendar smáfréttir ....................................... 36 og 39
Smáfréttir úr viðskiptaheimi..................................... 61
TRASSAÐI
ÉGNÚ
AÐ
B0RGA
RAFMAGNIÐ?
LATTU
RAFMAGNS-
REIKNINGINN
HAFA
FORGANG!
|
RAFMAGN$VEITA
REYKJAVÍKUR
SUÐURLANDSBRAUT 34 SlMI 68 62 22