Pressan - 11.05.1989, Blaðsíða 18
18
Fimmtudagur 11. maí 1989
Um miðjan maímánuð hefst
áætlunarflug Flugleiða til Parísar.
verður allt að 4 sinnum í viku yfir
sumarmánuðina. Með þessum aukna
sveigjanleika hefurðu því frjálsari hendur en áður.
í París er tiiveran engu lík: kaffihúsin, götulífið, stórkostleg söfnin
og veitingastaðirnir gera dvöl þína að einstakri upplifun.
Flugleiðir bjóða mörg góð og ódýr hótel, vel staðsett í borginni,
svo og bílaleigubíla fyrir þá sem þess óska.
Frakkland, með París í fararbroddi, er í einu orði sagt ómótstæðilegt.
Verð frá kr. 21.130*
* Súper-Apex fargjald.
BON VOYAGE!
Viltu vita meira um París? Náðu þér í nýja sumarbæklinginn okkar á
söluskrifstofum Flugleiða, hjá umboðsmönnum og ferðaskrifstofum.
FLUGLEIÐIR
Söluskrifstofur: Lækjargötu 2, Hótel Esju, Kringlunni og Leifsstöð.
Upplýsingar og farpantanir: Sími 25 100.
PRESSU
k
H^Ék.eppnin um Fegurðardrottn-
ingu íslands 1989 fer fram á Hótel
íslandi á mánudaginn kemur. Eins
og undanfarin ár gefa fjölmörg fyr-
irtæki verðlaun til keppninnar.
Meðal þeirra er Eggert feldskeri,
sem gefur fegurðardrottningunni
loðfeld likt og undanfarin ár, og
Gull og silfur, sem færir henni dem-
antshring. í auglýsingu um keppn-
ina, sem gaf að líta í Morgunblað-
inu, eru nöfn nokkurra fyrirtækja
og verslana skráð. Þeirra á meða! er
snyrtivörufyrirtækið Elizabeth Ar-
den, sem var einnig skráð sem aðili
að keppninni um Ungfrú Reykja-
vík. Aðild að keppni sem þessari
hefur ótvírætt auglýsingagildi fyrir
þá sem að henni standa og því kom
mönnum á óvart hver verðlaunin
voru sem Elizabeth Arden veitti
keppendum um Ungfrú Reykjavík.
Keppendurnir fengu einn varalit og
eitt glas af naglalakki. Fegurðar-
drottning Reykjavíkur fékk örlitlu
meira, eða eitt glas af Chloé-ilm-
vatni. Gárungarnir segja því að nú
sé ekki mesti spenningurinn að sjá
hver verður valin fegursta stúlkan,
heldur miklu fremur hver verðlaun-
in verða frá þessu stóra snyrtivöru-
fyrirtæki...
m daginn mátti sjá skara af
strákum við bakdyrainngang Þjóð-
leikhússins. Þessir ungu herrar
voru alls um fimmtíu talsins og allir
með leikarabakteríu. Það hafði
nefnilega verið auglýst eftir drengj-
um til að leika í söngleiknum Ólíver
eftir Bretann Lionel Barst, sem
sýndur verður í leikhúsinu í haust.
Til stendur að ráða fimmtán stráka,
svo einhverjir af þessum áhuga-
sömu piltum verða óhjákvæmilega
fyrir vonbrigðum...
^dlómnefndin í Fegurðarsam-
keppninni verður nánast sú sama
núna og í fyrra, að undanskildu því
að tveir dómarar hætta og tveir nýir
bætast við. Þá verður tekinn upp
svipaður siður og tíðkast víða er-
lendis, að bjóða tveimur gestadóm-
urum til landsins. Annar þeirra er
framkvæmdastjóri keppninnar
Ungfrú írland, Chris Naidoo, en
hinn kemur frá Lúxemborg, starf-
andi lögfræðingur og mikill áhuga-
maður um íslenska fegurð, og heitir
Lorei Mosar. íslensku dómararnir
verða Ólafur Laufdal formaður,
Frioþjófur Helgason ljósmyndari,
danskennararnir Erla Haraldsdótt--
ir og Sóley Jóhannsdóttir, Sigtrygg-
ur Sigtryggsson, fréttastjóri Morg-
unblaðsins, Anna Margrét Jóns-
dóttir, Ungfrú ísland 1987, og Ingi
Björn Albertsson alþingismaður.
Tvö þau síðasttöldu koma inn i
dómnefndina í staðinn fyrir Örn
Guðmundsson dansara og Maríu
Baldursdóttur söngkonu. Þá verða
tveir heiðursgestir á keppninni,
Guðni Bergsson, knattspyrnumað-
ur með Tottenham, og Hólmfríður
Karlsdóttir, hin eina, sanna...