Pressan - 11.05.1989, Blaðsíða 19
Fimmtudagur 11. maí 1989'
19
segja þér. Það er besta leiðin til
skilnings á sjálfum sér og öðrum.
FJÓLUBLÁR
Tignarleguiy andlega
þenkjandi, býr.yfir innsæi.
Fjólublár er sá litur, sem býr yfir
mestu innsæi. Þú ert andlega sinn-
uð/aður og gerir miklar kröfur til
sjálfrar/sjálfs þín og annarra. Þú
ert mjög tilfinninganæm/ur og sá
hæfileiki nýtist vel. Næmi þitt gerir
það hins vegar að verkum að þú átt
erfitt með að treysta öðrum full-
komlega. Trú þín fleytir þér yfir
ýmsa erfiðleika. Láttu meðfætt
innsæi vísa þér veginn.
BRÚNN
Heiðarlegur, jarðbund-
inn, stoð og stytta annarra.
Þú ert staðföst/fastur eins og
klettur, enda stoð og stytta fólksins
í kringum þig. Þú býrð yfir innri
styrk og hefur þann hæfileika að
geta komið öllu í röð og reglu.
Heiðarleiki er einkenni þitt, enda
fyrirlítur þú ýkjur og dylgjur. Þér
finnst afar erfitt að mega ekki tjá
þig, því þú vilt láta heyra í þér.
SVARTUR
Agaður, viljasterkur,
sjálfstæður.
Þú ert agaður persónuleiki, sem
teflir ekki í neina tvísýnu. Svarti lit-
urinn getur gefið styrk, en hann get-
ur Iíka verið eins og varnarveggur á
milli þín og annars fólks. Kannski
viltu ekki opna þig fyrir öðrum,
heldur vera einn í eigin hugarheimi.
Eða ertu að leita skjóls í svarta litn-
um? Ef svo er skaltu reyna að opna
örlitla glufu á dyrnar og gá hvort þú
ert ekki að missa af einhverju
skemmtilegu, sem er að gerast fyrir
utan.
HVÍTUR
Einmana, býr yfir lítilli
sjálfsvirðingu, sjálrselskur.
Ef þú velur hvíta litinn ertu að
öllum líkindum í einhverju milli-
bilsástandi eða að taka ákveðnum
breytingum. Þú ert sjálfið, einstakl-
ingurinn, flakkarinn, en alltaf einn
!á ferð. Þú valdir einfaldan og hrein-
an lit, sem þráir viðurkenningu.
Ekki flýja, heídur taktu þátt í því að
búa til marglitan heim með öllum
regnbogans litum. í raun og veru
þráirðu fjölskyldu og að eiga vissan
bás í þjóðfélaginu.
GRÁR
Hlutlaus, stressaður,
þjakaður, skoðanalaus.
Þú hefur valið hlutlausan lit, sem
býr yfir fremur lítilli orku. Kannski
eru þreytt/ur, stressuð/aður og
orkulítil/1. Þér finnst mest gaman
að leika þér og þarft ef til vill að
komast í frí. Sláðu öllu upp í kæru-
Ieysi og dekraðu svolítið við þig til
tilbreytingar. Þú hefðir gott af því
að hlæja og skemmta þér.
APPELSÍNUGULUR
Hæfur, skipulagður,
óþolinmóður, fram-
kvæmdasamur.
Appelsínugulur er litur forms og
hönnunar. Þú býrð yfir gífurlegri
orku og hlýju, en ert stundum eirð-
arlaus. Samt hefurðu mjög mikla
skipulagshæfileika og ættir að
njóta þín sérstaklega vel sem arki-
tekt, hönnuður eða verkfræðingur.
Þú þolir ekki óreiðu og skipulags-
leysi.
Langar þig að verða
betri mannþekkjari?
Þú þarft engin röntg-
enauqu til þess. Kann-
aðu bara hvaða liti
fólk heldur upp ó, því
litavalið gefur ýmis-
legt til kynna um per-
sónuleikann.
GREIN: JÓNÍNA LEÓSDÓTTIR
Þeir eru fyrir löngu orðnir heims-
frægir fyrir það vestur í Ameríku
að „greina“ allt milli himins og
jarðar. Þar er t.d. landlæg tíska að
láta greina í sér sálina, en það getur
víst tekið fjölda ára, þó farið sé til
„sála“ þrisvar í viku.
En það er fleira greint þarna fyrir
vestan en sálir manna. Kona nokk-
ur tók sig t.d. til í fyrra og gaf út
bók, sem fjallar m.a. um það hvern-
ig Iitaval fólks kemur upp um per-
sónuleika þess. Hún flokkar sem
sagt persónur eftir því hvernig fötin
þeirra eru á litinn.
Ekki þorum við nú að ábyrgjast
hversu vísindalegar rannsóknir
liggja að baki þessari Iitgreiningu,
en birtum hér sýnishorn af því sem
fram kemur í bókinni The Langu-
age of Color (Tungumál litanna)
eftir hina bandarísku Dorothee L.
Mella. Hún heldur því fram — og er
raunar alls ekki ein um það — að
litir hafi mismunandi áhrif á okkur.
Sumir séu róandi á meðan aðrir
virka örvandi, o.s.frv. Samkvæmt
kenningu Dorothee hefur það því
mikið með persónuleika okkar að
gera hvaða litir heilla okkur helst.
Spurðu sjálfa/n þig eftirfarandi
spurningar, áður en þú lest listann
yfir litina: Ef ég væri litur, hvaða lit-
ur vildi ég þá vera? Hugsaðu þig um
eitt andartak, en alls ekki of lengi.
Athugaðu síðan hvað sagt er um
viðkomandi lit. Getur verið að
þetta sé ekki svo galin greiningarað-
ferð?
RAUÐUR
Metnaðarfullur, kraftmik-
huarakkur, opinn per-
' IIKÍ.
sónulei
Þú hefur valið þann lit, sem er
mest áberandi, kynæsandi og
dramatískastur allra lita. Um þig
má því segja að þú sért afar mann-
leg/ur! Þú hefur sterkan persónu-
leika, nýtur þess að hafa nóg að,
gera og hefur keppnisskap. Þú veistj
hvað þú vilt og oftast færðu þaðj
sem hugurinn girnist. Þú hefur hins
vegar tilhneigingu til að bregðast
umhugsunarlítið við og á tilfinn-
ingaiegum nótum, en ekki af nægi-
legri yfirvegun.
BLEIKUR
Þú berð persónuleikann utan ó þér, því uppóhaldsliturinn
þinn segir heilmikið um hvernig manngerð þú ert
UTURINN
"
upp wm þig
Blíður, ástríkur, samúðar-
fullur, skilningsríkur.
Þú hefur valið kvenlegasta og
blíðasta litinn. Styrkur þinn liggur í
hjartahlýjunni og tilfinningunum
og þú ert afar ljúfur persónuleiki.
Veikleiki þinn kemur einungis í Ijós,
þegar þú gefur of mikið af
sjálfri/um þér, því fólk hefur til-
hneigingu tii að taka frá þér orku.
GULUR
Félagslyndur, mann-
eskjulegur, tjáir sig opin-
skátt og vel.
Þú hefur valið lit mannlegra sam-
skipta. Stundum talarðu helst til
mikið, en fólk hlustar á það, sem þú
vilt tjá. Það hentar þér vel að starfa
við sölumennsku, en þegar þú lærir
að hlusta ættirðu ekki síður erindi í
ráðgjafastarf. Þú geislar af hlýju og
ert oftast hrókur alls fagnaðar.
GRÆNN
Manneskjulegur, vísinda-
legur, býr yfir þjónustulund
og manngæsku.
Þú hefur áhuga á hvers kyns
lækningum og „heilun“, enda þjón-
arðu gjarnan öðrum eða aðstoðar
þá á manneskjulegan hátt. Þú sýnir
fólki mikla samúð, ef það á um sárt
að binda. Oftast ertu fljót/ur að
skilgreina hlutina. Þú ert lítið fyrir
óvæntar uppákomur, því svona
yfirvegað fólk vill halda ákveðnu
jafnvægi.
LJÓSBLÁR
Skapandi, glögqur, hefur
frjótt ímyndunarafl.
Þú hefur valið þann lit, sem er
mest skapandi og listrænastur af
öllum. Frjótt ímyndunarafl er ein-
kennandi fyrir þig og þér finnst öll
list örvandi. Þegar þú þarft að leysa
úr einhverri flækju ertu bæði frum-
leg/ur og hagsýn/n. Þú hefur einn-
ig ákveðna þörf fyrir að láta gott af
þér leiða.
DÖKKBLÁR
Greindur, framkvæmda-
samur, ábyrgur, sjálfum sér
nógur.
Þú hefur valið lit viskunnar. Þú
ert mikill mannþekkjari og fólk ber
virðingu fyrir greind þinni. Þú
þekkir líka sjálfa/n þig og veist
hvað þú vilt fá út úr lífinu, en hefur
tilhneigingu til að sýna of mikla
stjórnsemi. Láttu hjartað ráða og
farðu eftir því, sem tilfinningarnar