Pressan - 11.05.1989, Blaðsíða 25
ur 11. maí
^nr.nntrisn
.1^89
spam
vikuna 11. mai—18. mai.
(21. mars — 20. apríl)
Listamenn, rithöfundar og annaö list-
rænt fólk í hrútsmerkinu á góða daga í
vændum. Sköpunargáfan verður öflugri
en nokkru sinni fyrr, og núna er rétti tim-
inn til að segja skilið við hefðbundnari
starfsaðferðir. Reyndu eitthvað bylting-
arkennt, það mun örugglega færa þér
mikla ánægju.
(21. apríl — 20. mai)
Næstu dagar eru tilvaldir í smáendur-
bætur á heimilinu. Ný húsgögn gætu
verið kærkomin búbót, eða þá smámáln-
ingarvinna hérog þar. Reyndu að skreyta
íbúðina eins og þér finnst fallegast.
Láttu alla tískustrauma i þeim efnum
eiga sig algjörlega.
r\ (21. maí — 21. júni)
Þessa dagana er heilbrigðast fyrir þig
að vera á ferð og flugi um bæinn. Ef þú
eyðir of miklum tíma á bak við skrifborð-
ið verður þú bara pirraður og uppstökkur.
Fólk mun í auknum mæli leitatii þin eftir
svörum um persónuleg vandamál. Börn
munu leita til þin og trúa því algjörlega
sem þú segir. Vertu heiðarlegur ieinkalíf-
inu.
(22. jiíní — 22. júlí)
Vinslit eru i uppsiglingu. Ástarsam-
band sem þú hefurátt i mun faraí súginn
og þú verður mjög særður ef að líkum
lætur. Reyndu að takaþettaekki of nærri
þér. Drifðu þig bara út á lífiö og blandaðu
geði við gagnstæða kynið. Þá eru góðar
líkuráað þér takist að gleymavandamái-
unum.
iTt'- (23. júlí — 22. ágúst)
Þú getur átt von á auknum tekjum um
helgina ef þú leggur á þig smáyfirvinnu.
Þú gætir jafnvel lent i þeirri stöðu að
hagnast á frumiegum hugmyndum sem
tengjast vinnunni. Varaöu þig á ráðum
vina þinna. Það er mjög líklegt að þeir
segi þéreinungis það sem þeir halda að
þú viljir heyra. Farðu frekareftireigin inn-
(23. ágúst — 23. sepl.)
Ekki láta tækifæri til að auka álit yfir-
manna á þér sleppa úr hendi þér. Láttu
jafnvel sem þú hafirmikið aðgeraþótt sú
sé alls ekki raunin. Sjáðu til þess að þú
fáir viðurkenningu fyrir þá vinnu sem þú
innir af hendi. Varaöu þig á því að láta
kræsilegar kjaftasögur berast frá þér.
(24. sepl. — 23. okl.)
Einhversem þú hefurekki séð i langan
tima, og bjóst alls ekki við að hitta, gæti
komið inn i líf þitt á ný. Hér er komið frá-
bært tækifæri til aö endurnýja gömul
kynni, jafnvel af rómantískum toga. í
vinnunni skaltu nýta þér óvenjulegar að-
stæður til að reka áróður fyrir eigin hug-
myndum. Vertu samt hógvær í alla staði.
(24. okl. — 22. nóv.)
Helgin sem fer i hönd er gagnslaus til
annars en hvildar og afþreyingar. Gerðu
þér glaðan dag i góðra vina hópi. Sérlega
góð helgi fyrir rómantiska eltingaleiki.
Þaðgæti líkakomiðsérvel aðkomasam-
an tveimur vinum þínum. Ekki taka á þig
neinar auknar skyldur i sambandi við
vinnuna.
(23. nóv. — 21. des.)
Þú getur átt von á vænlegu atvinnutil-
boði yfir helgina. Ekki gleyma samt
möguleikanum á sjálfstæðum atvinnu-
rekstri, sem gæti byrjað í smáum stil en
vaxiö ört. Hjálp frá einhverjum fjölskyldu-
meðlimi er likleg, sérstaklega ef þú lend-
ir í fjárhagsiegum vandræðum.
(22. des. — 20. janúar)
Óvæntir gestir munu verða þér til mik-
illar gleði á næstu dögum. Hafðu nóg af
mat við höndina til að geta slegið upp
veislu meó stuttum fyrirvara. Fréttir frá
fjarlægum stöðum gefatilefni til mikillar
gleði af þinni hálfu.
2!. janúar — 19. febrúar)
Gamla máltækið um að heima sé best
á einkar vel við núna. I vinnunni geturðu
átt von á óþægilegri mótstöðu, jafnvel
fráyfirmönnum þínum. Þeirgætu krafist
þess að þú endurynnir verkefni sem þú
hefur lagt mikið i. Haltu metnaði í skefj-
um. Ekki gorta af því sem þú átt enn eftir
að framkvæma.
(20. febrúar — 20. mars)
Helgin verður róleg og tíðindalaus hjá ■
þér. Astvinur gæti verið upptekinn í
vinnu. Notaöu tímann til að vinna upp
bréfaskriftir sem hafa setið á hakanum i
langan tima. Smálikamsrækt gæti
hresst verulega upp á skapið. Sýndu til-
litssemi i samskiptum við vini og kunn-
ingja.
i frqmhjjáhlaupi
Þorgrímur Þráinsson
ritstjóri og fyrirliöi
Pínlegast þegar
ég var spurður:
,/Jngfrú, viltu dSrísa?!"
— Hvaða persóna hefur
haft mest áhrif á þig?
„Vitaskuld hafa foreldrar
mínir haft mest áhrif á mig,
enda var ég alinn upp í örmum
þeirra. Amma mín heitin, Ás-
laug Guömundsdóttir, var líka
mikill áhrifavaldur í lífi mínu,
en kærastan mín hefur mest
áhrif á mig í dag. Vinur minn,
Þórhallur Guömundsson, er
hins vegar sá persónuleiki
sem helst hefur opnaö augu
mín fyrir nýjum straumum I líf-
inu.“
— Hvenær varðstu hrædd-
astur á ævinni?
„Ætli það hafi ekki verið
þegar vinur minn, Helgi Krist-
jánsson frá Ólafsvík, reyndi aö
drekkja mér, sjálfum sér og
bróöur sínum meö því aö velta
bílnum sínum út í vatn. Þegar
okkur tókst — nær dauöa en
lífi — að skríöa út úr bílnum
kvartaði hann undan því aö all-
arnýju golfkúlurnarhans væru
týndar!“
— Hvenær varðstu glað-
astur?
„Ein af mínum glöðustu
stundum var þegar ég fékk
upphringingu þess efnis aö ég
hefði veriö valinn í landsliðið í
knattspyrnu í fyrsta skipti.
Einnig var ég ákaflega glaöur
aö lifa af „sjóferöina" meö
Helga.“
— Hvers gætirðu sist verið
án?
„Ragnhildar minnar. Þaö er
engin spurning. Hamingjan er
líka alveg bráönauósynleg og
þaö aö hafa eitthvað fyrir
stafni.“
— Hvað finnst þér leiðin-
legast að gera?
„Mér finnst ákaflega leiöin-
legt aö bíða. Gamla þolin-
mæöin er ekki til staðar. Ann-
ars finnst mér fátt leiðinlegt.
Maöur á víst aö líta á björtu
hliðarnar á öllu sem maður
tekur sér fyrir hendur."
— Hvað finnst þér
skemmtilegast að gera?
„Það er svo margt; útivera,
íþróttir og að vera innan um
skemmtilegt fólk. Aö sitja á
kaffihúsi í París og fylgjast
meö mannfólkinu er líka alveg
„de la“.
— Hvað fer mest í taugarn-
ar á þér?
„Sjálfumgleöi, frekjuhund-
ar, köld kók og Baldur Braga-
son þegar hann byrjar að tuöa
á knattspyrnuæfingum."
— Manstu eftir pínlegri
stöðu sem þú hefur lent í?
„Ég er alltaf aö koma mér í
einhverja pínlega stöóu. Mér
leið ekkert ofsalega vel þegar
ég var búinn aö vera að brjót-
ast inn í bíl i drykklanga stund
og var loksins kominn inn i
hann þegar ég uppgötvaöi aö
minn bíll var aöeins neðar í
götunni — vitaskuld alveg
eins á litinn! Þaö var líka dálít-
iö pínlegt aö vera ávarpaður
„ungfrú, viltu dansa“? Það
geröist á „síöhæröatískutíma-
bilinu“, þegar ég var meö hár
niður á bak og gasalega
stelpulega sætur.“
í þessari viku:
„Saphir“
(kona, fædd 21.01.1966)
Þessi kona er mjög trygglynd
aö eölisfari og mjög dagfars-
lófalestur
prúö og jafnlynd. Henni liggur á
aö veröa sjálfstæö, eins og
mörgum af hennar kynslóó, og
er fremur raunsæ.
Þaö veröa miklar breytingar á
tilfinningalífi þessarar konu,
þegarhún eráaldrinum 21 til 23
ára, en þær eru ekkert til aö
kvíðafyrir! Þegarhún er23 til 25
ára fer hún inn í tímabil, sem
gefur til kynna góöa undirstööu
— annaöhvort tengdastarfi eða
námi. Á þessum árum hefur
konan góöa möguleika á að
komast áfram í lífinu. Þettaverö-
ur nokkurs konar undirbúnings-
timi fyrir tímabiliö 1991—1998.
Þessi kona gæti notið sín á
sviðum, sem t.d. tengjast stæró-
fræöi, tækni, Ijósmyndun og
hvers kyns nýjungum. Hún er
kannski ekki beinlínis listræn,
en hefur næmt feguröarskyn.
Einnig hefur hún danshæfi-
leika.
Þaö eru líkur á aö hún eignist
tvö börn.
VILTU LÁTA LESA ÚR ÞÍNUM
LÓFA?
Sendu þá TVÖ GÓÐ LJÓSRIT
af hægri lófa (nema þú sért örv-
hent/ur) og skrifaðu eitthvert
lykilorð aftan á Ijósritin, ásamt
pplýsingum um kyn og fæö-
ingardag. .
PRESSAN — lófalestur, Ar-
múla 36, 108 Reykjavík.
AMY
ENGILBERTS