Pressan - 11.05.1989, Side 27
•cær iem .rr lugebufmmR
Fimmtudagur 11. maí 1989
sjónvarp
FIMMTUDAGUR
11. maí
Stöö 2 kl. 21.30
FLÓTTINN FRÁ SOBIBOR
(Escape from Sobibor)
Ný bandarísk sjónvarpsmynd.
'Leikstjóri: Jack Goid. Aðalhlut-
verk: Alan Arkin, Joanna Pacula,
Rutger Hauer.
Hér er á ferðinni spennumynd sem
segir frá flótta þrjú hundruð gyð-
inga úr útrýmirigarbúðum nasista í
síðari heimsstyrjöldinni. Myndin,
sem er byggð á sannsögulegum at-
burðum, gerist í Póllandi þar sem
Þjóðverjar höfðu komið upp út-
rýmingarbúðunum Sobibor. Á
tæpum átján mánuðum voru um
250 þúsundir manna teknar af lífi í
gasklefum búðanna. Nokkrir fang-
anna Iögðu drög að flóttaáætlun
þar sem öllum ófrjálsum mönnum
yrði gert kleift að flýja. Myndin er
alls ekki við hæfi barna.
Stöö 2 kl. 00.00
GÖTUR
OFBELDÍSINS* * *
(Violent Streets)
Bandarísk spennumynd frá 1981.
Leikstjóri: Miclwel Mann. Aðal-
hlutverk: James Caan, Tuesday
Weld, WiUie Nelson, James Belushi
og Robert Prosky.
Jantes Caan leikur atvinnuþjóf sem
hefur setið inni í ellefu ár. Þegar
hann losnar þráir hann að byrja
nýtt og glæsilegt líf. Til að láta
drauminn rætast er náttúrulega ein-
faldast að taka til við fyrri störf.
Caan fer hér á kostum í hlutverki
manns sem hefur það hlutverk eitt
í lífinu að Iifa af. Góð leikstjórn og
óvenjuleg kvikmyndataka gera
þessa mynd að fyrsta flokks afþrey-
ingu. Þess má geta að þýska hljóm-
sveitin Tangerine Dream semur tón-
Iist við myndina. Ekki við hæfi
barna.
FÖSTUDAGUR
12. maí
Stöð 2 kl. 17.30
í UTANRÍKIS-
ÞJÓNUSTUNNI* *
(Protocol)
Bandarísk mynd frá 1984. Leik-
stjóri: Herbert Ross. Aðalhlutverk:
Goldie Hawn, Chris Sarandon,
Richard Raomanus ogAndre Greg-
ory.
Gamanmynd þessi getur varla talist
til betri mynda Goldie Hawn, til
þess er söguþráðurinn of klisju-
kenndur og þá sérstaklega endirinn.
Ung stúlka ræðst óvænt til starfa
hjá bandarísku utanríkisþjónust-
unni, þar sem hún lendir í að útkljá
samningaviðræður í Mið-Austur-
löndum. Goldie Hawn á hér nokk-
ur góð atriði, en myndin í heild
sinni reynir verulega á áhuga manns
á sætu ljóskunni.
STROKUBÖRNIN* *
(Runners)
Ný bresk kvikmynd. Leikstjóri:
Charles Slurridge. Aðalhlutverk:
James Fox, Kate Hardie, Jane As-
h er og Eileen O’Brian.
Átakanleg spennumynd sem fjallar
um hvarf ungrar stúlku. Reiðhjól
hennar finnst liggjandi á götunni en
hún er horfin. Faðir hennar leggur
allt í sölurnar til að finna hana, en
eiginkona hans hefur gefið upp
vonina. Hann trúir því hinsvegar að
stúlkan sé einhvers staðar viðriðin
unglingaglæpastarfsemi, trúarof-
stæki eða unglingavændi, og neitar
að gefast upp. Þokkaleg sakamála-
mynd og óvænt atburðarás.
Rikissjónvarpið kl. 22.25
|í NAFNI LAGANNA
(I lagens namn)
Sœnsk sakamálamynd frá 1986.
Leikstjóri: Kjell Sundvall. Aðal-
1 hlutverk: Sven Wolter, Ani'a Wall,
: Stefan Sauk og Pia Green.
Mynd þessi er að hluta til byggð á
sannsögulegum heimildum rithöf-
undarins Leifs G.W. Persson, og
segir frá rannsókn á óhóflegu of-
beldi sænskra lögreglumanna. Lög-
regluþjónn grunar félaga sína um
að vera of harðhentir við fanga.
Hann reynir að fylgjast með þeim
en þeir eru varir um sig. Þegar
myndin var sýnd í Svíþjóð olli hún
nokkrum deilum vegna þess hve
hún þótti halla á starfsaðferðir lög-
reglunnar.
Stöð 2 kl. 23.10
FÖSTUDAGUR TIL
FRÆGÐAR*
(Thank God It’s Friday)
Bandarísk gamanmynd frá 1978.
Leikstjóri: Robert Klane. Aðalhlut-
verk: Donna Summer, The Commo-
dores, Valerie Langburg, Terri
Nunn og Chick Vennera.
Suntir gagnrýnendur hafa sagt að
þessi mynd sé sú lélegasta sem
nokkru sinni hafi hlotið Óskars-
verðlaun yfirleitt (fyrir besta titil-
lag). Hún er gerð á þeim tíma þegar
diskóið var alls ráðandi í nætur-
klúbbum heims og segir frá einu
kvöldi í diskóteki nokkru í Holly-
wood. Raunar mætti segja að
myndin væri alveg eins og lélegt
diskó; langdregin og ófrumleg.
Stöð 2 kl. 00.40
BANVÆNN KOSTUR *
(Terminal Choice)
Kanadísk spennumynd frá 1985.
Leikstjóri: Sheldin Larry. Aðalhlut-
verk: Joe Spano, Diane Venora og
\ David McCaUum.
Litlaus saga um dularful! dauðsföll
á sjúkrahúsi. Handritið og raunar
myndin öll rétt undir meðallagi þótt
leikaralið sé í sjálfu sér ágætt.
Myndin er alls ekki við hæfi barna.
LAUGARDAGUR
13. maí
Stöð 2 kl. 21.45
MAÐUR Á MANN***
(One on One)
Bandarísk mynd frá árinu 1977.
Leikstjóri: Lamont Johnson. Aðal-
hlutverk: Robby Benson, Annette
O’Toole og G.D. Spradlin.
Ungur körfuboltaleikari fær styrk
til háskólanáms vegna íþróttahæfi-
leika. Hann ætlar sér stóra hluti en
kemst fljótt að því að hann á ekki
upp á pallborðið hjá skólafélögum
sínum og þjálfara liðsins. Hann á
ekki bjarta framtíð fyrir sér fyrr en
hann kynnist ungri stúlku sent
metur hann að verðleikum. Um síð-
ir fær hann svo langþráð tækifæri
til að sanna getu sína á ieikvellin-
um. Hjartnæm og sannfærandi
saga um baráttu eins manns við
kerfið.
Ríkissjónvarpið kl. 22.05
AÐALSKRIFSTOFAN* *
(Head Office)
Bandarísk mynd frá 1986. Leik-
stjóri: Ken Finkleman. Aðalhlul-
verk: Judge Reinhold, Eddie Al-
bert, Jane Seymour og Danny
DeVito.
; Judge Reinhold leikur óreyndan og
grænan mann sem fær vinnu hjá
voldugu fjölþjóðafyrirtæki, eftir
að faðir hans togar í nokkra spotta.
Hann fellur fyrir dóttur forstjór-
ans, sem reynist ekki öll þar sem
hún er séð. Frekar ójöfn grínmynd
og góðum leikurum eytt til einskis.
Samt sem áður eru góð atriði í
myndinni og sumir leikaranna ná
sér vel á strik, t.d. Seymour, sem er
kynæsandi að vanda.
95
27
Ríkissjónvarpið kl. 23.40
EL CID***
Bandarísk œvintýramynd frá 1961.
Leikstjóri: Anthony Mann. Aðal-
hlutverk: Charlton Heston, Sophia
Loren, Raf Vallone og Herbert
Lom.
Fyrsta flokks ævintýramynd utn
spænsku þjóðhetjuna E1 Cid, sem
varuppiá 11. öld. Charlton Heston
sýnir snilldarleik í hlutverki hetj-
unnar sent bjargar Spáni undan
árás Afríkumannad. Afbragðs-
handrit prýðir myndina, sem áf-
dráttarlaust má mæla nteð.
Stöð 2 kl. 00.10
HAMSLAUS HEIFT* * *
(The Fury)
Bandarísk hrollvekja frá árinu
1978. Leikstjóri: Brian De Palma.
Aðalhlutverk: Kirk Douglas, John
Cassavetes, Carrie Snodgrass,
Charles Durning og Amy Irving.
Brian De Palnta hel'ur verið nokkuð
mistækur sem hryllingsmyndaleik-
stjóri í gegnum árin, en hér er ein al'
hans bestu. Myndin fjallar um bar-
áttu föður gegn mönnum sem hal’a
rænt syni hans í þeini tilgangi að
virkja dulræna hæfileika hans.
Samkvæmt venju er myndin alls
ekki við hæfi barna og raunar ekki
þeirra sem ekki líkar blóðugt ol'-
beldi.
14. maí
Ríkissjónvarpið kl. 23.10
KAIRÓRÓSIN****
(The Purple Rose of Cairo)
Leikstjóri: Woody Allen. Aðalhlut-
verk: Mia Farrow, Jeff Daniels,
Danny Aiello og Irving Metzman.
Hér er kontin perla helgarinnar fyr-
ir sjónvarpsáhorfendur. Ein af
bestu myndum Woody Allen til
þessa fjallar um unga stúlku á
krepputímanum í Bandaríkjunum,
sem er mikill kvikmyndaunnandi.
Líf hennar tekur óvænta stefnu
þegar átrúnargoð hennar úr kvik-
myndununt stígur beint út úr tjald-
inu og inn í líf hennar. Bitur en jafn-
framt falleg gamanmynd, sem hlýt-
ur að teljast til bestu mynda síðustu
ára. Mia Farrow og Jeff Daniels
skila fullkomnum leik sem fellur
fullkomlega að meinfyndnu hand-
riti Woody Allen. Endirinn er svo
einn sá sorglegasti sem sögur fara
> af.
Stöð 2 kl. 23.15
ÚTLAGABLÚS* * *
(Outlaw Blues)
Bandarísk mynd frá 1977. Leik-
j stjóri: Richard T. Heffron. Aðal-
’ hlutverk: Peter Fonda, Susan Saint
James, John Crawford og James
; Callahan.
Peter Fonda leikur tugthúslim sem
þráir það heitast að verða
»,,kántrý“-stjarna. Hann verðursár-
lega móðgaður þegar frægur sveita-
söngvari rænir einu laga hans og
slær í gegn. Hann nær þó að lokum
fram hefndum með því að slá sjálf-
ur í gegn. Þetta er meinfyndinn
'farsi, sem skýtur þó yfir markið
stöku sinnum.
dagbókin
hennar
-J>
Við erum alveg í vandræðum
nteð hana ömmu á Einimefnúm.
Hún er svo brjáluð út al' þessu með
Eurovision að það liggur við að
pabbi þurfi að Iæsa hana inni svo
hún geri ekki eitthvað, sem hún sér
æðislega eftir. (Hún ntyndi kannski
ekki sjá neitt voða mikið eftir því,
en familíau ntyndi sko þurfa að
flytjast til Nýja-Sjálands eða Hjalt-
lands eða eitthvað langt Iangt.)
Amma er alveg tryllt keppnis-
manneskja og ég þekki heldur erig-
an sem tekur tapi jafnilla eða er
jafnfrekur. Hún tekur akkúráfeng-
um sönsum (eins og mamma segir
alltaf), ef allt er ekki eins og henni
þóknast. Þannig er það t.d. þegar
hún heldur boð og vill að ég „uff-
arti“ (ég held að það þýði „að
ganga um beina" á dönsku) kelling-
arnar með sérrí og svoleiðis svo hún
geti sjálf „mínglað". (Það þýðir víst
„að ganga um á milli gestanna" á
ensku. Hún amma talar nefnilega
sjúklega heimsborgaralegt hrogna-
mál...) En sem sagt: Þegar amma
vill fá ntig fyrir þjónustustúlku og
ég er upptekin, þá missir hún bók-
staflega heyrn. Og auðvitað þori ég
aldrei annað en að mæta. Það gera
alltaf allir það sem antina á Eini-
melnum vill.
Núna er amma sem sagt obboðs-
lega „deprimeruð" (ég held, að það
þýði trylltur á skosku cða írsku) út
al' neðsta sætinu í Eurovision.
Henni finnst bara verst að vita ekki
almennilega út i hvern hún á að vera
mest reið. Hún er náttúrulega sjúk-
Iega sár út í Markús Örn útvarps-
stjóra fyrir að Iáta einhverja khku
'velja höfunda til að semja lögin.
Svo er hún tjúlluð út í tónlistar-
mennina fyriraðsentja þessi leiðin-
legu lög og þrælfúl út í þjóðina fyrir
að velja lagið, sem var valið. Henni
finnst líka söngvarinn allrasíðasta
sort og búningarnir á undir-
söngs-gellurnar svoleiðis algjörlega
„sjarm-forlatt“. (Það þýðir víst
ósjarmerandi á sænsku.) Og smekk-
lausa lýðinn í Evrópu minnist
amnta nú ekki á ógrátandi. Henni
finnst íslendingar eiga að hegna
þessu pakki með því að neita bara
að taka þátt í söngvakeppninni
næst og láta það finna virkilega
hvar Davíð keypti ölið. Það er
reyndar soldið ólógískt hjá henni að
hatast svona út í Evrópubúa fyrir
að gefa ekki laginu okkar stig fyrst
henni finnst það sjálfri vonlaust.
En amma á Einimelnum hefur nú
aldrei verið sérlega Iógísk...
(Mamma segir, að það sé auðveld-
ara að diskútera við dáið lík en hana
ömmu.)
Ég vona barasta til Guðs að hún
amma geri ekkert alvarlegra en að
röfla um þetta. Maður getur aldrei
verið viss, þegar hún er annars veg-,
ar. Hann Valgeir Guðjóns býr t.d.
rétt hjá henni og ég er í flækju af
áhyggjum yfir því að hún æði heim.
til hans og taki hann i gegn eða eitt-’
hvað. Það væri nú meiri bömmer-
inti.