Pressan - 07.12.1989, Síða 15
Fimmtudagur 7. des. 1989
það er nafn söngsveitar úr Austur-
bæjarskólanum sem syngur með
þeim Hildi og Barða á hljómplöt-
unni.
Frændsystkinin eru bæði í Æf-
ingadeild KHÍ og hafa verið saman
i bekk frá átta ára aldri. Þau vissu þó
ekki af skyldleika sínum í fyrstu, en
vart hafði þeim verið gerð grein fyr-
ir honum en þau tróðu upp á ættar-
móti, þá tíu ára gömul. Ellefu ára
tóku þau málin föstum tökum og
sömdu lög og texta þá sem á plöt-
unni eru.
„Axel nefndi við okkur fyrir
tveimur árum að gefa út plötu og
síðan hefur þessi plata verið í bí-
gerð,“ segir Hildur. „Við þekktum
ekki krakkana sem syngja með okk-
ur á plötunni, fyrr en við hittum þau
í hljóðverinu. Rakel .dóttir Axels er
ein úr þessum kór’ í Austurbæjar-
skólanum og hún kom með vinkon-
ur sínar."
Barði segir þau fyrst hafa komið
fram á skólaskemmtun hjá Æfinga-
deildinni þegar þau voru í tíu ára
bekk: „Upp úr því stofnuðum við
hljómsveitina Vandamál, sem tveir
aðrir voru í auk okkar."
Þegar Barði og Hildur komu við á
ritstjórn PRESSUNNAR höfðu þau
eintak af plötunni meðferðis, en þar
sem enginn plötuspilari var í ná-
grenninu bað ég þau að segja mér
um hvað textar þeirra fjölluðu:
„Á ég að syngja fyrir þig??!"
spurði Hildur. „Nei, ég held ég
sleppi því nú ...! Ég gerði tvö lög og
texta á þessari plötu, „Afmæli" og
„Ég vil strák". Textinn við það síðar-
nefnda byrjar svona: „Ég er labb-
andi um bæinn svo einmana og
stúrin ..."
„Þú heyrir að þetfa er draumóra-
manneskja!" segir Barði, og byrjar á
sínum texta, sem heitir „Falskur":
„Einu sinni var ég á söngskemmtun,
og ég söng mjög hátt. En svo kemur
lítill drengur og segir við mig: „Þú
ert falskur". . .!"
„Enda er hann falskur" segir
frænkan og brosir svolítið illkvittn-
islega, sjálfsagt að hefna fyrir yfir-
lýsinguna um „draumóramenneskj-
una"!
Þegar ég spyr hvort þeim frænd-
systkinunum semji ekki vel svarar
Barði: „Ég er góður vinur hennar
en ...“ Sennilega sagt í gríni því eft-
ir smáhvísl ákveða þau að svara:
„Nei, nei, við erum mjög góðir vin-
ir!"
Þau hafa aldrei lært söng, utan
tónmenntatímanna í skólanum, en
hinsvegar hefur Hildur lært að spila
á píanó í sjö ár og Barði í eitt, en
hann hefur jafnframt lært á gítar í
fjögur ár: „Ég býst við að læra söng,"
segir Hildur en Barði segist hins
vegar ætla að einbeita sér að því að
semja lög og texta: „Ég get þá samið
lögin sem Hildur syngur!" segir
hann. „Hins vegar er ég ákveðinn í
að leggja sönginn á hilluna og leyfa
honum að rykfalla þar. Þú skilur það
þegar þú hlustar á plötuna ...!“
Þau segja alveg frábært að sjá
plötuna komna á markaðinn og
ætla að fylgja kynningu á henni eft-
ir: „Við ætlum að kynna plötuna á
barnadansleik fyrir 10—12 ára í
Tónabæ á laugardaginn," segir Hild-
ur. „Hann byrjar klukkan fimm."
Hins vegar segja þau að fullorðnir
geti alveg eins haft gaman af plöt-
unni og börn: „Platan er kannski
15
mest fyrir þá sem eru á aldrinum
0—4 ára" segir Barði, en þau bæta
við að hún henti ekkert síður þeim
sem eldri eru.
Og þeir sem aðstoðuðu við gerð
plötunnar eru ekki af verri endan-
um. Til dæmis syngur Sverrlr
Stormsker með Barða í lagi hans
Falskur og útsetningar á lögunum
önnuðust Axel Einarsson, Pétur
Kristjánsson, Pálmi Sigurhjartarson
og aðrir tónlistarmenn.
Hvort þau hafi nokkuð mátt vera
að því að læra fyrir skólann og hvort
hugurinn hafi ekki allur verið við
upptöku plötunnar svara þau: „Við
höfum reynt að skipta þessu réttlát-
lega á milii. Annars erum við komin
af Hrólfi sterka sem var mikill vits-
munamaður...!"
og íbúðarkanp
Lög um húsbréfaviðskipti gilda um kaup og sölu notaðra íbúða,
sem eiga sér stað eftir 15. nóvember 1989.
Húsbréf eru skuldabréf sem seljandi íbúðar fær hjá húsbréfadeild
Húsnæðisstofnunar ríkisins, í skiptum fyrir fasteignaveðbréf, sem
kaupandi íbúðarinnar gefur út.
Hfil eðal þeirra starfs-
manna á Stöð 2 sem fengu upp-
sagnarbréf um mánaðamótin var
Guðrún Þórðardóttir leikkona.
Varð sú uppsögn mörgum undrun-
arefni, enda þykir Guðrúnu hafa
tekist sérlega vel upp með val á
barnaefni Stöðvarinnar. Þá fékk
einn starfsmaður Stöðvar 2 upp-
sagnarbréf i annað skipti. Hitt
bréfið fékk hann sama dag fyrir ári,
en þessi dagur er þó ekki endilega
óhappadagur mannsins því hann er
einnig afmælisdagur hans...
d
^WBanskennarinn Hermann
Ragnar Stefánsson lætur ekki sitt
eftir liggja á jólamarkaðinum í ár. í
fyrra sendi Hermann frá sér sam-
talsbók, en í ár er það jólaplata.
sem hann hefur unnið í samvinnu
við hljómplötuútgáfuna Alfa Beta.
Hér er á ferðinni barnaplata sem
hefur að geyma öll vinsælustu
danslög yngri kynslóðarinnar eins
og Skósmiðadansinn, Litlu and-
arungana og Óla skans auk fleiri
laga. Nú geta sem sé allir dansunn-
endur brugðið sér í dans um jólin
eða í afmælisveislum og sú tíð er lið-
in þegar píanóleikarar sáu um all-
an undirleik í danstímum...
ijósvakamiðlarnir keppa ekki stð-
ur um hlustendur yfir jólin en aðra
daga og má búast við ýmsu kræsi-
legu útvarps- og sjónvarpsefni yfir
hátíðina. Við höfum frétt að Bylgj-
an hyggist endurflytja léttgeggjuðu
leikþættina um þá Harrý og
Heimi, sem frumfluttir voru fyrir
tveimur árum. Einnig verður Bylgj-
an með langan og mikinn viðtals-
þátt á jóladag, en hann verður í
umsjón Ómars Valdemarssonar
blaðamanns og mun hann hafa
boðið til sín fjölmörgu þekktu
fólki...
’^TYGreiðslumat.
_______A Tilvonandi kaupandi verður að
sækja um mat á greiðslugetu sinni til ráðgjafastöðvar
Húsnæðisstofnunar.
/\
Skrifleg umsögn.
Að fenginni skriflegri umsögn
ráðgjafastöðvarinnar, þar sem m.a. er tilgreint
hugsanlegt kaupverð íbúðar, er tímabært að skoða
sig um á fasteignamarkaðnum.
A \ íbúð fundin - gert kauptilboð.
Þegar seljandi hefur gengið að
tilboði, sækir tilvonandi kaupandi um skuldabréfa-
skipti við húsbréfadeildina, þ.e. aö skipt verði á
fasteignaveðbréfi, útgefnu af kaupanda og
húsbréfum, sem verða eign seljanda. Fasteigna-
veðbréfið getur numið allt að 65% af kaupverði
íbúðarinnar.
/\ \Afgreiðsla húsbréfadeildarinnar.
/ \ Húsbréfadeild metur veðhæfni
íbúðarinnar og matsverð og athugar greiðslugetu
væntanlegs íbúðarkaupanda með tilliti til kaupverðs.
Samþykki hún kaupin sendir hún væntanlegum
kaupanda fasteignaveðbréfið til undirritunar, útgefið
á nafni seljanda.
/\ c. \ Kaupsamningur undirritaður -
° \ fasteignaveðbréf afhent
seljanda.
íbúðarkaupandi og íbúðarseljandi gera með sér
kaupsamning og seljandinn fær afhent fasteigna-
veðbréfið.
Fram að 15. maí 1990 eiga þeir einir aðgang að
húsbréfakerfinu sem sóttu um húsnæðislán hjá
Húsnæðisstofnun ríkisins fyrir 15. mars sl.
og hafa lánsrétt.
SAMÞYKKI HÚSNÆÐISSTOFNUNAR ER SKILYRÐI.
Það er skilyrði fyrir skuldabréfaskiptum, að
greiðslugeta hlutaðeigandi íbúðarkaupanda og
veðhæfni íbúðar hafi verið athuguð áður en
íbúðarkaup eiga sér stað og að húsbréfadeild
Húsnæðisstofnunar samþykki íbúðarkaupin.
HÚSNÆÐISSTOFNUN
RÍKISINS
HÚSBRÉFADEILD
SUÐURLANDSBRAUT 24 ■ 108 REYKJAVÍK ■ SÍMI • 696900
& \ Kaupandinn lætur þinglýsa
\ kaupsamningnum.
/\ -| \ Seljandi lætur þinglýsa
^~~\...V \ fasteignaveðbréfinu.
\ Seljandi skiptir á fasteigna-
_Y "
veðbréfi fyrir húsbréf.
/\ Oj \Greiðslur kaupanda hefjast.
“—\_________A Húsnæðisstofnun innheimtir
afborganir af fasteignaveðbréfinu af kaupandanum.
Þær hefjast á 2. almennum gjalddaga frá útgáfudegi
fasteignaveðbréfsins, en gjalddagar eru 4 á ári.