Pressan - 28.06.1990, Síða 28

Pressan - 28.06.1990, Síða 28
PRESSU ■ að er sælt að vera sigurveg- ari. Ýmsir sjálfstæðismenn í borg- arstjórn munu hafa áhuga á að láta kné fylgja kviði í kjölfar kosninga- sigursins í nýafstöðnum borgar- stjórnarkosningum. Þeir láti sér ekki nægja að hafa fengið 10 af 15 borgarfulítrúum og 4 fulltrúa í flest- um 5 manna nefndum heldur séu þeir nú að bollaleggja að þrengja enn frekar að minnihlutanum. Þannig eru nú uppi hugmyndir meðal sjálfstæðismanna um að hækka laun sinna manna, sem gegna formennsku í nefndum, og lækka laun áheyrnarfulltrúa minni- hlutans í borgarráði. Þeir munu að auki vera að velta því fyrir sér að af- nema rétt áheyrnarfulltrúanna E_l- ínar G. Ólafsdóttur, Kristínar A. Ólafsdóttur og Sigrúnar Magn- úsdóttur til að kalla inn varamann í sinn stað þegar þær forfallast. En þar með er ekki öll sagan sögð. Þeir hafa nefnilega líka orðað það að varaborgarfulltrúi geti ekki verið varamaður borgarráðsfulltrúa. Þetta myndi með öðrum orðum þýða það, miðað við núverandi skip- an borgarráðs, að Guðrún Agústs- dóttir gæti ekki tekið sæti Sigur- jóns Péturssonar í borgarráði ef hann veiktist eða tæki sér sumar- leyfi. Það sama myndi einnig gilda um varafulltrúa Elinar G. Ólafs- dóttur og Sigrúnar Magnúsdótt- ur, en þær verða borgarráðsfulltrú- ar síðar á kjörtímabilinu. Flogið hef- ur fyrir að þeim mislíki það háttalag varaborgarfulltrúa að vera með bókanir og tillögur í borgarráði. . . Þ að varð enginn smáhvellur þegar Júlíus Hafstein, borgarfull- trúi Sjálfstæðisflokksins, var sakað- ur um lóðabrask vegna úthlutunar borgarinnar á lóðinni Lágmúla 6 til fyrirtækis hans Snorra hf. Mikið var talað um að Snorri hf. hefði selt flest sín umboð til O. Johnson og Kaaber og því spurt hvort nýja hús- ið ætti að hýsa símsvara fyrirtækis- ins. Það kom fram í PRESSUNNI í nóvember sl. að Júlíus hefði í raun selt Herði Jónssyni, byggingar- stjóra framkvæmdanna, lóðina, en formlegheitin ættu að bíða þar til nýbyggingin yrði fokheld. Hún er löngu orðin fokheld og húsið enn á nafni Snorra og Ólafs H. Jónsson- ar, en aftur á móti kemur fram í ný- legu Lögbirtingablaði að um sama leyti og húsið varð fokhelt hafi Júli- us og Hörður stofnað ásamt Krist- jáni og Jóni Knútssonum, Jóni Ivarssyni og Magnúsi Hilmars- syni hlutafélagið Actus. Þetta er inn- og útflutningsfyrirtæki með 2,5 milljóna króna hlutafé, þar sem framkvæmdastjóri og prókúruhafi er borgarfulltrúinn Júlíus . . . Þ rátt fyrir krepputal í ýmsum eru ekki allir svartsýnir á landinu. Þannig mun ný tískuverslun verða opnuð á Laugavegi 101 ein- hvern næstu daga. Þar verður á boðstólum vandaður franskur kven- fatnaður og nafn verslunarinnar verður í stíl við fatnaðinn: Gala . . . L ■ Hann var lítt hrifinn skip- stjórinn á hinu konunglega skipi Brittaníu þegar hafnsögubátur rakst utan í skipið og rispaði það. Brittanía var vel iökkuð eins og menn sáu og skipstjóranum varð svo mikið um, að í stað þess að klífa niður kaðalstigann og skamma þann sem stýrði hafnsögubátnum notaði hann til þess gjallarhorn. Buldu því ansi hressileg blótsyrði yf- ir nágrenni Ægisgarðs. . . d______________________ Guðbjartsson, skipaði nýveriö nefnd sem á að annast endurskoð- un reglugerðar um ökukennslu og ökuréttindi. Skipan þessarar nefndar vekur athygli fyrir tvær sakir; annars vegar að forveri Óla Þ. Guðbjartssonar, Halldór Ásgríms- son, skipaði sams konar nefnd sem skilaði áliti í mars 1989 og hins veg- ar vekur val á nefndarmönnum eft- irtekt. Þar eru borgaraflokks- menn í miklum meirihluta og er for- maður nefndarinnar Sigurður Jónsson, aðstoðarmaður dóms- málaráðherra. Aðrir í nefndinni eru Guðmundur Ágústsson, þing- maður Borgaraflokksins, Guðjón Andrésson, forstöðumaður próf- deildar Bifreiðaskoðunar íslands, en mikill styr stóð um ráðningu hans fyrir skemmstu, Sigurður Gíslason ökukennari og Ragn- heiður Davíðsdóttir, ritstjóri og fyrrum lögreglukona. Við val á nefndarmönnum var ekki haft sam- band við Ökukennarafélag ís- lands en þó tengist verksvið nefnd- arinnar starfssviði félagsins að miklu leyti. Munu félagar í Öku- kennarafélaginu ekki ýkja hrifnir af því að framhjá þeim hafi verið geng- ið. Þá mun ekki alveg ljóst hvort verksvið hinnar nýju nefndar er að endurskoða störf fyrri nefndar, sem skilaði góðum og ítarlegum til- lögum, eða hvort hefja á vinnuna alla upp á nýtt. Þykir þessi nefndar- skipun nokkuð táknræn fyrir bákn- ið, nefnd á nefnd ofan . . . / - •/•/• LADASAMARA; FKMKIFSBÍLL í UHBRR VFKBI / 1 \ ' LA DA SA MA RA er glæsi- lega útfærður framdrifsbíll, sem hefurverið á götum \ landsins síðan árið 1986, _ hefur sýnt að þörfin fyrir fjölskyldubíl, meðþeim eiginleikum sem þessi bíll' \'------, býryfir, ermikil. - \Tökumgamla bílinn uppínýjan1 og semjum um eftirstöðvar. \ ‘ ' \ '/ I . ' • V ^ _ Opið laugardaga frá kl. 10-14. • x ’ \ « . nmtum Staðgr. verð 1200 SAFÍR 4ra g ...345.268,- . 1500 STATION 4ra g 429.763,- 1500 STATION 5ra g 452.711,- 1500 STATION LUX 5 g 467.045,- 1600 LUX 5g 454.992,- 1300 SAMARA 4 g., 3 d... 452.480,- » 1300 SAMARA 4 g., 5 d... 492.349,- - ‘1500 SAMARA 5 g„ 3 d.. 495.886,- *1500 SAMARA-LUX 5 g„ 3 d. 507.714,- \ ‘1500 SAMARA 5 g„ 5 d.. 523.682,- *1500 SAMARA-LUX5 g„ 5 d. 542.029,- 1600 SP0RT 4 g 678.796, 1600 SPORT 5 g 723.328,- * „Metallic" litir kr.l 1.000 - Nýjung! BONDABRIE lítill ostur með sterk áhrif MUNDU EFTIR OSTINUM

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.