Pressan - 27.09.1990, Qupperneq 2
2’
vVW' »vv* A\
Fimmtudagur 27. sept. 1990
LJÓSMVNDIR:
JÓHANNA ÓLAFSDÓTTIR
’ANNA KRISTINE
MAGNÚSDÓTTIR
PRESSU
Listamennirnir
Magnús Tómasson
og Eyjólfur Einarsson
í félagsskap góðs vin-
ar, Lofts Ólafssonar
tannlæknis.
Frændurnir Hans Kristján Árnason, einn af stofnendum Stöðvar 2, og séra Þor-
björn Hlynur Árnason biskupsritari ræða við Kristínu Finnsdóttur.
Niðri. Sonur afmælis-
barnsins, Sigurður
Guðmundsson, lista-
maður i Hollandi, á
tali við tvo vini sína,
Magnús Tómasson
myndlistarmann og
Ólaf Jónsson, for-
stöðumann listasafns
ASÍ.
Synir Guðmundar, Sigurður og Kristján, eru báðir þekktir
listamenn. Hér sést Kristján á tali við annan myndlistar-
mann, Sigurjón Jóhannsson.
Einn af mestu sjarmörum
Reykjavíkurborgar, lífs-
kúnstnerinn Guðmundur
Árnason verslunarmaður,
varð áttræður á mánudag-
inn. Guðmund þekkja
margir frá þeim tíma er
hann rak innrömmunar-
verkstæði á Bergstaða-
strætinu, en þangað komu
„myndlistarmenn og skáld,
businessmenn og bureau-
kratar" og „læknar, lög-
fræðingar, þjóðkirkjuprest-
ar, listamenn og laumufar-
þegar” svo vitnað sé til
orða Einars Benediktsson-
ar sendiherra og Einars
Guðmundssonar skálds í af-
mælisgreinum í Morgun-
blaðinu.
Guðmundur er einnig oft
kallaður „innrammarinn
mikli frá Stóra-Hrauni", en
hann er einn ellefu barna
Elísabetar Sigurðardóttur
og Árna Þórarinssonar pró-
fasts. Vinir og ættingjar
Guðmundar eru fjölmargir og til að samfagna afmælisbarninu mættu um tvöhundr-
uð manns til hófs á afmælisdaginn. Þar mátti sjá hina sömu litríku karaktera og sótt
höfðu gleði sína til Guðmundar á innrömmunarverkstæðið og þá þarf enginn að
spyrja hvort hafi verið gaman! Jóhanna Ólafsdóttir ljósmyndari tók meðfylgjandi
myndir fyrir PRESSUNA.
Systir Guðmundar, Anna Árnadóttir, sem er 89
ára, hélt ræöu og minntist þeirra tíma þegar
henni var falið að gæta bróður síns. Var þetta
ekki í fyrsta skipti sem Anna kom fólki til að
hlæja.. .I
T.v. Sigfús Halldórsson tón-
skáld og Örlygur Sigurðs-
son listmálari fóru á kostum
á sviðinu. Þeir sungu saman
„Litlu fluguna" og að auki
sungu veislugestir lag Sig-
fúsar við undirleik hans, „í
dag", en Ijóðið er eftir
tengdaföður Guðmundar,
Sigurð Sigurðsson frá Arn-
arholti.
Niðri. Afmælisbarnið, Guð-
mundur Árnason, með eig-
inkonu sinni, Áslaugu Sig-
urðardóttur. Þau hjónin hafa
verið gift í 54 ár og eiga 21
afkomanda.
SJARMÖRINN ORÐINN
ÁTTRÆÐUR!