Pressan - 27.09.1990, Blaðsíða 10

Pressan - 27.09.1990, Blaðsíða 10
10 Fimmtudagur 27. sept. 1990 Velta greiðslukorta þrefaldast á þremur árum En þá komum við að greiðslukortafyrirtækjunum. Notkun greiðslukorta hefur færst mjög í vöxt á undan- förnum árum og eru þau nú í æ ríkari mæli notuð til að greiða ýmiss konar reikninga og þegar um afborgunarvið- skipti er að ræða. Þannig þre- faldaðist velta þeirra frá árinu 1985 til 1989. Á þriggja mán- aða tímabili, nánar tiltekið frá apríl til júní á þessu ári, var veltan 10.043 millj. kr. Á mánuði eru þetta 3.348 millj. kr. og þar af eru 465 millj. vegna úttekta erlendis. Þeir sem nota greiðslukort borga enga vexti af úttekt sinni, aðeins fast árgjald sem er um 1600 kr. og 120 kr. út- tektargjald af hverjum gíró- seðli. Það þýðir þó ekki að það kosti þjóðina ekki neitt að velta milljörðum á greiðslukortum í hverjum mánuði. Miðað við tölurnar hér á undan má gera ráð fyrir að innanlandsvelta á greiðslukortum verði á þessu ári um 34 milljarðar. Það er að vísu fremur fátítt að kaup- menn veiti staðgreiðsluaf- slátt en þeir sem það gera miða oft við 5% afslátt af upp- gefnu verði. Það má reyndar færa rök fyrir því að sá af- sláttur sé of lítill, en ef hann næði til alls þess sem nú er greitt með greiðslukortum mætti spara um 1,7 milljarða á ári. í júlíhefti af Hagtölum mán- aðarins er fjallað nokkuð um greiðslukortaviðskipti og þar kemur m.a. fram að miklar sveiflur eru í veltu greiðslu- kortanna innan ársins. Hún er minnst á fyrsta ársfjórð- ungi, þegar fólk er að ná sér niður eftir jólavertíðina, en mest á þeim þriðja en þá standa sumarfríin sem hæst. Að óreyndu gæti maður haldið að aukin notkun greiðslukorta hefði dregið úr notkun ávísana en sú virðist ekki raunin. Heildarvelta ávísana hefur aukist milli ár- anna 1986 og 1989 en hún byggist á því að fleiri ávísanir eru gefnar út en áður þó meðalupphæð hverrar sé heldur lægri. Þetta gefur manni vísbendingu um að fyrst nýti fólk heftið og það sem út úr því er að hafa, en síðan snúi það sér að greiðslukortunum. Fyrirframgreidd laun Það mun almennt ekki tíðkað að greiða dagvinnu- laun út fyrirfram nema hjá ríki, sveitarfélögum og bönk- um, en þessir aðilar greiða fastráðnum starfsmönnum laun sín fyrirfram. Ekki tókst að fá neinar tæmandi tölur um heildarupphæð þessara greiðslna á mánuði en það er hægt að fara ansi nærri henni. Áætlað er að um 80% opinberra starfsmanna í þjónustu ríkisins séu með fyr- irframlaun. Samkvæmt upp- lýsingum frá Launaskrif- stofu ríkisins eru stöðugildi hjá ríkinu 16.246 talsins og meðaldagvinnulaunin 75.766 kr. Ríkið greiðir því tæpan milljarð, eða 984 millj. kr., fyrirfram í laun við hver mánaðamót. Samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá launadeild Reykjavíkur- borgar má áætla að borgin greiði mánaðarlega um 115 millj. kr. í fyrirframlaun. Um 95% af öllum banka- starfsmönnum eru á fyrir- framgreiddum launum en í öllum bönkum landsins eru um 3.000 árs^erk og meðal- dagvinnulaun um 82.000 kr. í bönkunum eru því greiddar um 240 millj. fyrirfram í laun „Lendir i hring sem eriitt er að komast út úr" Einstœö móöir meö eitt barn. Vinnur á skrifstofu. „Vinnan tekur mið af ógreiddum areiðslu- korlareiknfngi" Opinber starfsmaður meö þrjú börn. Maki vinnur viö verslunarstörf. Bœöi í rúmlega fullu starfi. „Greiðslukortid er okkar vítahringur. Við erum ekki með yfir- dráttarheimiidir eða launalán en við veltum 60—80 þúsund krónum á mánuði í gegnum greiðslukortið. Við höf- um reynt að einskorða notkun greiðslukorts við matarinnkaup, en þegar harðnar á daln- um er freistandi að grípa tii þess til ann- arra nota. Við byrjuðum að nota greiðslukort þegar ég var í barneignarfríi. Þá ákváðum við að fá okkur kort vegna þess einfaldlega að ein laun dugðu ekki til að framfleyta fjölskyldunni. Þá fórum við að borða út á krít og þá fór maður að telja sér trú um að það væri ágætis fyrirkomu- lag að halda bara heimilis- bókhald út á greiðslukortið. Ég verð líka að segja það að mér hafði aldrei tekist að hafa yfirlit yfir matarkostn- aðinn fyrr en með greiðslu- kortinu. Þetta var að vissu leyti hagkvæm lausn því maður borgar ekki vexti af kortinu. í grundvallaratrið- um er ég hins vegar á móti greiðslukortum því þau hækka vöruverð og þjónustu. í raun og veru eru þessi neyslulán sambærileg við skattana áður en staðgreiðsl- an var tekin upp. Þá gat fólk ekki minnkað við sig vinnu af því að það átti alltaf eftir að borga skattana frá síðasta ári. Á sama hátt verður öll vinna núna að taka mið af því að þú átt ógreiddan greiðslukorta- reikning. Hjá okkur fara al- veg önnur íaunin í greiðslu- kortið. Hin fara í afborganir af húsnæðinu en þær eru nú sem stendur um 100 þúsund krónur á mánuði og verða þannig næsta hálfa annað ár- ið. Við erum nýbúin að stækka við okkur húsnæði og það hefur auðvitað sett strik í reikninginn og þýtt það að veltan á greiðslukortinu er hærri en hún var. Nú fara skólaföt barnanna líka á kort- ið af því að það eru ekki til peningar fyrir þeim.“ , ,Greiðslukortareikn - ingurinn hjá mér er um 60 þúsund krónur á mánuði og ég er með yf- irdráttarheimiid upp á 10 þúsund krónur sem ég nýti ailtaf. Ég veit ekki af hverju ég er að velta þessu á undan mér. Maður lendir í einhverjum hring sem er erfitt að koma sér út úr. Yfirdráttarheimild- ina tók ég vegna þess að mér hætti til að fara yfir á heftinu og þá var eins gott að vera bara með heimild. Upphaf- lega tók ég greiðslukortið af því að ég var að fara utan. Ég ætlaði ekkert að nota það innanlands en þetta vatt bara upp á sig. Ég festi kaup á tveggja herbergja íbúð í Verkamannabústöðum fyrir þremur árum og þarf að borga af henni og lífeyris- sjóðsláni sem ég þurfti að taka fyrir útborguninni. Og það lán er hryllilega erfitt. Ég hef reynt að koma mér út úr þessu og mér tókst það einu sinni en það var þegar ég átti barnið og var heima í fjóra mánuði og gerði ekki neitt. Mér finnst að ég gæti ekki komist af með minni neyslu og eyðslu. Það kostar að fæða og klæða krakka og mér finnst ég ekki leyfa mér neinn stórkostlegan munað. Ég hef t.d. ekki farið utan í mörg ár. Ég er með ákveðna fasta veltu á greiðslukortinu, eins og t.d. afborganir af þvottavél sem ég keypti mér. Þetta fer í daglega neyslu og annað ekki.“ Haustið er komið, skólarnir byrjaðir, styttist til jóla og börnin þurfa sitt. Einmitt á þess- um árstíma standa margir foreldrar andspænis því að snjógallarnir og kuldaskórnir sem dugðu í fyrra eru orðnir of litlir og allur glans farinn af gömlu jólafötunum. Og þá er nær- tækt að grípa til greiðslukortsins. á mánuði. Kemur að skuldadögunum ? En heildarupphæðin sem við veltum á undan okkur er semsagt um 9,3 milljarðar króna á mánuði, sem svarar til 56% af allri einkaneyslu landsmanna á mánuði. Ef þessar stærðir eru færðar nær hvunndegi venjulegs fólks má segja að hvert heim- ili í landinu velti að meðaltali um 103 þúsund krónum á undan sér í mánuði hverjum. Ef fyrirframgreiddu launin eru dregin frá, þar sem mjög afmarkaður hópur nýtur þeirra, lækkar upphæðin í rúmlega 88 þúsund krónur á mánuði. Og eins og ævinlega þegar meðaltöl eru annars vegar er rétt að hafa í huga að sumir eiga þarna engan hlut að máli en aðrir stóran. Hreinn kostnaður af þess- ari veltu er ekki undir 2,4 milljörðum á ári, en til sam- anburðar má geta þess að það er ríflega sú upphæð sem Reykjavíkurborg áætlar í all- ar sínar byggingarfram- kvæmdir á þessu ári. Það má því ljóst vera að við lifum um efni fram. En af hverju? Eru efnin of lítil, þ.e. launin okkar of lág, til að end- ar nái saman eða erum við kannski of neysluglöð — nema hvort tveggja sé? Auð- vitað eru flottræflar á meðal vor sem vilja hafa mikið um- leikis og leita til þess allra leiða sem færar eru. En marg- ir hafa líka lent í erfiðri víxl- verkun kaupgjalds og lána, þ.e. þegar kaupgjaldið rýrnar aukast lántökurnar. En kemur að skuldadögun- um og þá hvenær? Hjá sum- um getur þetta gengið snurðulítið fyrir sig ár eftir ár og kemur ekki að sök meðan launin berast reglulega og bankinn múðrar ekki. Það er því rétt eins og skuldadagarn- ir komi aldrei. En ef upp kem- ur atvinnuleysi, veikindi eða verkfall er hætt við að marg- ur átti sig á því að boltinn sem hann veltir á undan sér er þyngri en hann ræður við með góðu móti. „Þetta er spumingin um að hafa rjóma ofan ú vöfflurnar" Bankastarfsmaður meö tvö börn. Maki nýbyrjaöur í námi. „Ég er með viðvar- andi yfirdráttarheimild upp á 65 þúsund og svo er ég á fyrirframgreidd- um launum sem eru 85 þúsund á mánuði. Ég reyni að nota greiðslu- kortið mjög lítið en það er samt 20—30 þúsund um hver mánaðamót. Við tókum yfirdráttarheim- ildina í tengsium við tvær af- borganir af íbúðinni sem við vorum að kaupa okkur og okkur hefur ekki tekist að greiða hana niður. Greiðslu- kortið tók ég þegar ég þurfti að skreppa til útlanda fyrir rúmum tveimur árum. Éftir það var kortið við höndina og þegar mjög þröngt verður í búi er svo auðvelt að leiðast út í að nota það. Reynsla mín úr bankanum er sú að fólk taki gjarnan yfir- dráttarheimild í tengslum við greiðslur vegna íbúða, t.d. þegar það þarf að greiða af veðdeildarláni eða fasteigna- gjöldin. Allar slíkar greiðslur setja hinn daglega fjárhag úr skorðum. Núna finnst mér líka mjög áberandi að fólk biðji um nýjar heimildir eða hækki þær sem fyrir eru. Ástæðan er oftar en ekki sú að það reiknaði með vaxta- bótum inn í greiðsluáætlun sína en svo brugðust þær. Margir eru með 70—80 þús- und króna heimild og eru að fara upp í 110 þúsund og sjá ekki fram á að geta borgað það niður. Mánaðarlaunin duga jafnvel ekki fyrir heim- ildinni og fólkið fer aldrei nið- ur á núllið. Þetta er bara eins og að vera með viðvarandi lán sem er endurnýjað en aldrei greitt neitt niður. Ef fólk ætlar að losa sig út úr slíku á það engra annarra kosta völ en taka tveggja til þriggja ára lán og greiða það niður með föstum mánaðar- legum afborgunum. Verkalýðshreyfing- in tekur ekki á málinu Rótin að þessum vanda finnst mér fyrst og fremst vera sú að fjárhagur fólks er of þröngur, launin eru of lág. Meðölin sem í boði eru við þessu eru „reddingar", sem fólk skilar fullum tryggingum fyrir. Þannig tryggja bank- arnir sig fullkomlega og svo einn góðan veðurdag, þegar þeim finnst nóg komið, þá segja þeir bara stopp; þú færð ekki meiri heimild, þú verður að fara að athuga þinn gang, þú eyðir um efni fram. Þetta er verið að segja við fólk sem er kannski með 50—100 þús- und króna laun og sér ekkert fram á að það breytist. En þetta fólk situr uppi með sekt- arkennd yfir eyðsluseminni. Allt þjóðfélagið bendir á við- komandi og segir: Þú hefur eytt um efni fram. Þá verður fólk að fara að gera eitthvað í málunum og getur það jafn- vel ekki. Það hefur enga út- gönguleið. Ég vil ekki samþykkja það að fjölskylda eins og mín eyði um efni fram. Við erum kom- in yfir þrítugt, eigum tvö börn, þriggja herbergja íbúð og bíl. Það er ekki um það að ræða að fara í utanlandsferðir eða aka um á dýrum bíl. Þetta er í rauninni spurningin um að hafa öðru hvoru rjóma ofan á vöfflurnar. Svo geta ráðamenn í bankanum, sem sjálfir eru á miklu hærri laun- um, sagt við mann að maður eyði um efni fram. Mér finnst það mjög lítilsvirðandi. Verkalýðshreyfingin tekur ekkert á þessu máli vegna þess að það er búið að gera þetta að svo miklu einstakl- ingsvandamáli. Verkalýðs- hreyfingin nær ekki til fólks og það leitar ekki þangað með vandamál sín. Því finnst það ekki hafa neitt að segja. Þeir sem stjórna verkalýðs- hreyfingunni eru ekki á því kaupi sem fólk almennt er á og þurfa því ekki að standa frammi fyrir þessu. Mér finnst að verkalýðshreyfingin eigi að taka á þessu máli en hvernig veit ég svo sem ekki. En þetta er orðið viðvarandi ástand hjá fólki."

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.