Pressan


Pressan - 27.09.1990, Qupperneq 4

Pressan - 27.09.1990, Qupperneq 4
4 oeer .tqoa XZ lugcbuímmíi Fimmtudagur 27. sept. 1990 litilrædi af kókoshnetu Á löngum ferli mínum sem rithöfundur, skáld og (e.t.v. öðru fremur) dálkahöfundur hef ég löngum, bæði í Ijóðum og lausu máli, gert mér far um að drepa niður þar sem æðasláttur þjóðlífsins er örastur, kanna hvað er efst á baugi hverju sinni, vera virkur í þjóðmála- umræðu líðandi stundar, hlusta á meðborgara mína bæði beint og af bandi og gaumgæfa dagblöðin sem endurspegla gleði og sorg þjóðarinnar og heimsbyggðarinnar allrar, lukku og lánleysi. Á hverjum morgni opnast manni óravíddir nýrra sanninda í dagblöðum, hulunni er bók- staflega svipt af leyndardómum sem hafa blundað í undirmeðvitundinni, en blasa svo skyndilega við á þrykki í allri sinni dýrð. Það er hlutverk okkar, sem höfum gengið Pegasusi á hönd og færum hugsun í letur, að varpa nýju Ijósi á gamla fleti og vekja þjóðina til meðvitundar um einstaka þætti samtíðar- innar. En umfram allt ber okkur að halda vöku okk- ar. Þetta geri ég með því að lesa öll dagblöðin á hverjum morgni og tilefni framangreindra hugleiðinga er merkileg frétt sem ég rakst á í Morgunblaðinu í hinni vikunni undir fyrirsögn- inni: VARHUGAVERÐAR KÓKOSHNETUR. Leikkonan Gréta Scacchi lenti í þeirri raun þegar hún var að vinna við upptökur kvik- myndarinnar „Turtle Beach" að kókoshneta féll ofaná höfuðið á henni. Susan Smith, umboösmaöur Grétu, sagði að leikkonunni hefði ekki orðið meint af, en til að hafa vaöið fyrir neðan sig hefði hún hvílt sig slysdaginn og næsta dag. Þrátt fyrir kókoshnetuna hefur vel gengið með myndina og sýningar hafnar fyrir vestan haf. Og ég hugsa sem svo: Munur að fá heimsfréttirnar með skilum. Svo fer ég að hugleiða hvort þessi frétt geti hugsanlega orðið mér efniviður í hugvekju sem samanstendur öðru fremur af orðum sem eru í tíma töluð. Ég gæti tildæmis leitt hugann að því hve gróflega er gengið framhjá öryggisreglum á sumum vinnustöðum og bent á þá staðreynd að þetta slys hefði ekki hent leikkonuna ef hún hefði verið með öryggishjálm, taug og stáltá í skónum. Ef reglum um aðbúnað á vinnustað hefði verið fylgt hefði kókoshnetan ekki með slíkum hætti ógnað lífi og limum leikkonunnar Grétu Scacchi. En við nánari umhugsun kemst ég að þeirri niðurstöðu að þessari frétt af leikkonunni og kókoshnetunni hefi verið gerð taemandi skil í Morgunblaðinu og réttara sé eftilvill að fara ofaní saumana á einhverju af heimaslóð. Svo ég fletti Mogganum svona einsog í brí- aríi en finn svosem ekkert merkilegt. Þarna er að vísu smáfrétt um það að Álafoss hafi tapað tvöþúsundmilljón krónum á tveim og hálfu ári, en það eru nærri tvær milljónir á dag á tímabilinu. Og þegar ég fer að gaumgæfa þetta nánar rekst ég á viðtal við forstjóra fyrirtækisins á „viðskipta- og atvinnulífssíðum" Morgun- blaðsins undir fyrirsögninni: ULLARIÐNAÐURINN Á FRAMTÍÐ FYRIR SÉR. Og ég verð svo undurglaður að ullariðnaður- inn, með þessa undarlegu fortíð, skuli þó eiga framtíð fyrir sér. í þessari grein segir frá því að þegar núver- andi forstjóri hafi verið ráðinn til fyrirtækisins fyrir ári hafi það verið orðið þvísemnæst órekstrarhæft vegna fjárhagsstöðunnar og stefnt hraðbyri í gjaldþrot. Og síðan segir orðrétt: Hann tók að sér að snúa dæminu við og byggir þar á langri reynslu af ullariðnaðinum þarsem hann starfaði áður hjá Álafossi í Bandaríkjunum auk þess sem hann rak eigin fyrirtæki í ullarvöruútflutningi. Síðar ígreininni er svofrá þvísagt að nú virð- ist horfa betur í rekstri Álafoss og ef marka má tölur sem birtar eru í greininni stefnir tapið ekki í meira en milljón á dag, ef vel gengur. Og maður er í sjöunda himni yfir því hvað framtíðin er og hefur alltaf verið björt hjá Ála- fossi þó fortíðin sé nú að vísu öðru fremur eins- og svolítil rökkursaga. En með því að ég er nú bæði ótölfróður mað- ur, og ber þaraðauki fremur lítið skynbragð á blæbrigði æðri viðskipta á íslandi, læt ég öðr- um eftir að lofsyngja fortíð og framtíð ullar- spekúlasjóna á þessu guðsblessaða landi og útskýra þjóðhagslega nauðsyn þess að blóð- mjólka landsins börn til að halda fyrirtækjum gangandi sem tapa eitt til tvöþúsund milljón- um á ári. En allt er þetta nú einber tittlingaskítur sem tæplega er umhugsunarefni fyrir daglauna- fólk, hvaðþá spekúlanta, svo ég ákveð að drepa niður penna um eitthvað sem máli skipt- ir. Og ég minnist þess að ég skrifaði um daginn einhverjar nótur á vindlapakkann minn, eitt- hvað sem ég man að mér fannst að ætti brýnt erindi til íslensku þjóðarinnar. Þá er að finna vindlapakkann. Og ég kalla blíðlega til konu minnar: — Hvur andskotinn hefur orðið af tóma vindlapakkanum sem lá hérna á borðinu hjá mér? — Ætli einhverjum hafi bara ekki þótt tíma- bært að þrífa undan þér ruslið og óreiðuna, svarar hún um hæl. Ég gæti þess vandlega að halda sálarrónni og segi með nokkrum þunga: — Á þennan vindlapakka var skráð allt það sem mér hefur dottið í hug þessa vikuna. — Nú, þá gerirvístekki mikiðtil þó hann hafi lent í öskutunnunni, svarar hún. Við þetta þarf maður að búa. Svo fer ég útí öskutunnu og hef æðislega leit að hinum andlega fjársjóði í sorpinu og viti menn. Ég finn pakkann. Og ég hugsa til Árna Magnússonar og skinn- handritanna þegarég opna pakkann og dreg út innra pappahulstrið. Með erfiðismunum get ég ráðið í það sem á pakkann er skráð: Muna eftir að fara á Gjaldheimtuna og borga. Annað stóð ekki á pakkanum. Og ég hugsa sem svo: Það var lóðið. A/VIfí BILAR A HAGSTÆÐU VERÐI HRINGDU OG VIÐ KOMUM MEÐ BÍLINN TIL ÞÍN • Nissan Micra, Mazda 323, Toyota Cor- olla, Nissan Sunny, Lada 1500 Station • FJÓRHJÓLADRIFSBÍLAR: Subaru Sta- tion, Toyota Tercel, Lada Niva, Range BÍLALEIGAN Rover, Mitsubishi Pajero, Nissan Patrol, Toyota Landcruiser, Ford Econoline • 5—12 SÆTA: Mitsubishi. Pajero (5—7), Nissan Patrol (7), Toyota Hiace (11), Toyota Litace (8), Ford Econoline (12) IGEY5IR sími: 688888 Sudurlandsbraut 16, Reykjavik, gengid inn frá Vegmúla.

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.