Pressan - 27.09.1990, Side 5
Fimmtudagur 27. sept. 1990
5
SÉRSTÆÐ VIÐSKIPTI ALMENNA BÖKAFÉLAGSINS OG BORGARINNAR
DAVÍÐ BEGGJA
VEGNA BORÐSINS
*
A sl. fjórum mánuðum hefur borgarráð
samþykkt aukafjárveitingu til bókakaupa
á vegum Skólasafnamiðstöðvar upp á 5,1
milljón króna. Af þeirri fjárhæð hefur 4,6
milljónum verið varið til kaupa á bókum
sem gefnar eru út af Almenna bókafélag-
inu. Það vekur óneitanlega athygli ef haft
er í huga að borgarstjórinn í Reykjavík,
Davíð Oddsson, er stjórnarmaður í þessu
félagi, sem á nú í verulegum fjárhagserf ið-
leikum.
EFTIR: INGIBJÖRGU SÓLRÚNU GÍSLADÓTTUR '
við um sambærilegar bækur
frá öðrum bókaútgefendum.
„Finnst þetta
ekki óeðlilegt “
Af samanlögðum aukafjár-
veitingum upp á 5,1 millj. kr.
standa enn eftir um 500 þús-
und kr., sem verður varið til
bókakaupa síðar á árinu og
skiptast þá væntanlega milli
annarra bókaútgefenda, en
þeir munu vera um 50—60
talsins. 4,6 millj. kr. voru hins
vegar notaðar til að kaupa
bækur af Almenna bókafé-
laginu. Til samanburðar má
svo geta þess að þær upplýs-
ingar fengust hjá Máli og
menningu að það sem af er
þessu ári hefði Skólasafna-
miðstöðin keypt af þeim
bækur fyrir samtals 439 þús-
und krónur. Eru öll þau kaup
sérstaklega merkt tilteknum
skólum. Með öðrum orðum:
Keypt hefur verið af Al-
menna bókafélaginu fyrir
a.m.k. tíu sinnum hærri upp-
hæð en af Máli og menningu,
svo aðeins eitt dæmi sé nefnt.
PRESSAN hafði samband
við Björn L. Halldórsson,
forstöðumann Skólaskrif-
stofu Reykjavíkurborgar,
og spurði hann hvernig á því
stæði að aukafjárveitingin
hefði eingöngu verið nýtt til
að kaupa bækur af Almenna
bókafélaginu. Sagði Björn að
þeim hefðu boðist mjög hag-
stæð kjör á bókunum og þótt
sjálfsagt að nota sér það. En
finnst honum þessi kaup ekk-
ert óeðlileg? „Nei, mér finnst
það ekki. Auðvitað geri ég
ráð fyrir að önnur forlög
hefðu viljað fá hluta af þess-
um peningum en ég efast um
að þau hefðu viljað gefa okk-
ur jafngóðan afsíátt, nema þá
ef keypt hefði verið fyrir
verulegar upphæðir. Það er
alltaf svo að maður fær ekki
verulega góð kjör nema geta
skipt fyrir verulegar peninga-
upphæðir." Ekki fékkst upp-
gefið hver afslátturinn var.
Munnlegt tilboð
fráAB
Aðspurður um það, hvort
Almenna bókafélagið hefði
átt frumkvæðið að þessum
/viðskiptum, sagði Björn. „Já,
þetta tilboð, skulum við
segja, kom frá þeim og því
var tekið." Tilboðið sem
Björn talar um var ekki skrif-
legt og ekkert kom fram um
að slíkt tilboð væri fyrir
hendi þegar borgarráð sam-
þykkti aukafjárveitinguna.
Sagði Björn að engu að síður
hefði verið rætt um tiltekna
bók í því sambandi, þ.e. ís-
ienskan söguatlas, þannig að
mönnum hefði verið ljóst við
hvaða fyrirtæki átti að skipta.
Þeir fulltrúar minnihiutans í
borgarráði og skólamálaráði,
sem PRESSAN hafði sam-
band við, sögðust aftur á móti
ekkert hafa heyrt um þetta
mál og var ekki ljós sú nýting
á aukafjárveitingunum sem
greint er frá hér að ofan.
Sú spurning hlýtur að
vakna, varðandi þessi
skyndilegu og miklu viðskipti
Skólasafnamiðstöðvar Reykja-
víkurborgar við Almenna
bókafélagið, hvort þau teng-
ist á einhvern hátt þeirri stað-
reynd að Davíð Oddsson
borgarstjóri er jafnframt
stjórnarmaður í Almenna
bókafélaginu? Kom PRESS-
AN skilaboðum til borgar-
stjóra og gerði ítrekaðar til-
raunir til að ná í hann en án
árangurs.
Aukafjárveiting borgarráðs iil bóka-
kaupa 5, T milljón. Bækur keypiar
af Aimenna bókafélaginu fyrir 4,6
milljónir og af öðrum fyrir 500
Á fjárhagsáætlun borgar-
innar fyrir þetta ár er samtals
8,7 milljónum króna veitt til
bókakaupa á vegum skóla-
bókasafna. Pessi upphæð
skiptist niður á einstaka skóla
og getur verið mjög mismun-
andi, allt eftir því hvort gró-
inn eða nýr skóli á í hlut. Skól-
arnir ákveða sjálfir hvaða
bækur þeir kaupa fyrir þessa
fjármuni en Skólasafnamið-
stöðin, sem starfar á vegum
Skólaskrifstofu Reykja-
víkurborgar, sér um inn-
kaupin og skráir bækurnar.
Ráðstöfun þessara fjármuna
er því í samræmi við óskir og
þarfir hvers skóla.
Miðstýrð bókakaup
Eins og PRESSAN hefur áð-
ur gert ítarlega grein fyrir á
Almenna bókafélagið nú í
verulegum fjárhagskröggum.
Að undanförnu hafa þeir boð-
ið lánardrottnum sínum upp
á samninga um að félagið
greiði þeim um 65% af því
sem það skuldar þeim. Hafa
menn verið misfúsir til að
ganga að slíkum samningum
og eru aðrir bókaútgefendur,
sem eiga talsverðar upphæð-
ir inni hjá Bókaverslun Ey-
mundssonar, lítt hrifnir af
því að koma samkeppnisað-
ila sínum þannig til bjargar.
En Almenna bókafélagið er
sem sagt í verulegri þörf fyrir
lausafé og hver milljón skiptir
máli. Óvænt bókakaup borg-
arinnar upp á 4,6 milljónir
hljóta því að koma sér vel fyr-
ir félagið.
Þessi bókakaup eru þannig
til komin að þann 5. júní sl.
samþykkti borgarráð, að ósk
skóiaskrifstofu borgarinnar,
aukafjárveitingu til Skóla-
safnamiðstöðvar upp á 1,5
millj. kr. Þann 4. september
sl. var svo samþykkt önnur
aukafjárveiting upp^ á 3,6
millj. kr. til kaupa á íslensk-
um söguatlas. I beiðni skóla-
skrifstofu var vísað til þess að
hann nyti nú mikilla vin-
sælda og nýttist vel til
kennslu. Er það eflaust bæði
satt og rétt en það sem vekur
athygli er hvernig aukafjár-
veitingin var nýtt að öðru
leyti. Henni var ekki skipt
milli einstakra skóla heldur
var bókakaupunum stýrt frá
skólaskrifstofunni. Þegar
PRESSAN spurðist fyrir um
hvaða bækur hefðu verið
keyptar fyrir fjárveitinguna
kom í ljós að þær voru allar
gefnar út af sama bókaforlag-
inu, þ.e. Almenna bókafélag-
inu. Bækurnar sem um er að
ræða eru: íslenskur sögu-
atlas, Atlas AB, íslenskir
málshættir, íslenskt orð-
takasafn, Islenskar smá-
sögur (6 bindi), íslensk Ijóð
(6 bindi) og Fuglar íslands
og Evrópu. Allt eru þetta
hinar bestu bækur sem gagn
er að fyrir skólabókasöfnin,
en það á auðvitað alveg jafnt