Pressan - 27.09.1990, Side 6
6
Fimmtudagur 27. sept. 1990
A^//2Z/
KRÖKKT AF KRÁM
Bjórkrárnar halda áfram að spretta eins
og gorkúlur (sumir segja illgresi) út um
Reykjavík þvera og endilanga, flestar í
miðbænum. PRESSAN skoðaði sex nýjar
krár og skemmtistaði sem á að opna á
næstunni. Stærst eru Breiðvangur, með
pláss fyrir yfir 1000 manns, og Borgar-
kjallarinn í Kringlunni, sem verður opnað-
ur bráðlega sem skemmtistaður fyrir 600
manns.
T.h. Ný krá á horni Þingholts
strætis og Bankastrætis.
EFTIR: BJÖRGU EVU ERLENDSDÓTTUR
MYNDIR: EINAR ÓLASON
Hverfiskráin Arnarbakka. Umhverfið er ekki spennandi.
Ný krá á horni Klapparstígs og Hverfisgötu.
Samkvæmt lauslegum
ágiskunum PRESSUNNAR
geta þessir sex nýju staðir á
höfuðborgarsvæðinu og sá
sjöundi í Garðabæ auðveld-
lega tekið á móti 2.500
manns. Sumir af þessum stöð-
um verða opnir á hverju
kvöldi og miðað við framboð-
ið sem er fyrir er varla ofsagt
að bjartsýnismenn hljóti að
standa á bak við fram-
kvæmdirnar. Það verður
fróðlegt að fylgjast með fram-
vindu mála og sjá hverjir lifa
og hverjir deyja í skemmtana-
og bjórbransanum. Ýmsir eru
þeirrar skoðunar að bjórkrár
séu nú þegar orðnar of marg-
ar. „Best væri ef íbúum
Reykjavíkur fjölgaði um
200.000 drykkjumenn. Það
er nóg af krám í bænum svo
við verðum að taka kúnna frá
hinum," segja menn sem eru
að leggja síðustu hönd á inn-
réttingar einnar ölstofunnar í
miðbænum. Þeir viija ekki
láta nafns getið.
Krá á hverju horni
Á horni Þingholtsstrætis
og Bankastrætis, í fyrrver-
andi húsnæði Álafoss, verða
opnuð matsölustaður og bjór-
krá á tveimur hæðum. Þung-
ar og dökkar tréinnréttingar í
suður-amerískum stíl ein-
kenna þennan stað, sem
verður með þeim stærri í
bænum og tekur 200 manns í
sæti. Eigandinn ætlar að
freista með Ijúffengum stór-
steikum á efri hæðinni, en lif-
andi tónlist á þeirri neðri.
Einnig er því lofað að tónlist-
in verði ekki yfirgnæfandi
um allt húsnæðið og hægt
verði með góðu móti að tala
saman hávaðalaust í hornun-
um.
Talað er um að þessi staður
verði opnaður 5. október.
Samkvæmt heimildum
PRESSUNNAR var annar eig-
andinn áður einn af eigend-
um veitingastaðarins Arg-
entínu, heitir hann Anton
og er frá Chile. Félagi hans
og meðeigandi er Ingþór
Björnsson.
Ný krá er nánast tilbúin á
horninu á Hverfisgötu og
Klapparstíg, en ekki náðist í
eiganda hennar.
Tómas Tómasson í Hard
Rock Café er ekki af baki
dottinn og opnar bráðlega
600 manna skemmtistað í
kjallara Kringlunnar, heitir
sá Borgarkjallarinn. Þetta
mun vera hinn glæsilegasti
skemmtistaður.
Breiðvangur í Mjóddinni
verður enn einu sinni opnað-
ur og bak við þá framkvæmd
stendur bíókóngurinn Árni
Samúelsson. Breiðvangur
getur tekið á móti langt yfir
þúsund skemmtanafíklum og
pláss er fyrir 500 manns í
mat.
Breiðhyltingar fá fleira en
endurvakinn skemmtistað í
Breiðvangi. Unnið er við
smíðar á innréttingum í nýja
krá við Arnarbakka, þar
sem áður var pósthús. Fram-
kvæmdir virtust ekki mjög
langt á veg komnar og engir
smiðir voru sjáanlegir þegar
PRESSUNA bar að garði.
Samkvæmt heimildum blaðs-
ins er eigandinn Vilhjálmur
Svan og mun hann ætla sér
að opna krána í næsta mán-
uði. Þessi staður verður lík-
lega dæmigerð hverfiskrá
sem fyrst og fremst laðar að
sér íbúa úr nágrenninu sem
ekki ætla beinlínis út að
skemmta sér, en kjósa frekar
að skála við nágranna sína í
rólegheitum.
Garðbæingar verða held-
ur ekki útundan í bjórdrykkj-
unni. Nýr skemmtistaður
þeirra með bar og tveimur
veislusölum stendur við
Garðatorg, þar sem áður var
Heilsugarðurinn. Þetta er
fyrsti staðurinn sem sækir
um vínveitingaleyfi í Garða-
bæ en bæjaryfirvöld hafa enn
ekki afgreitt umsóknina.
Garðurinn hf. er eigandi
staðarins sem auðvitað heitir
Café Garður. Framkvæmda-
stjóri er Árni Sólonsson.
Tónlistarbar
Sérstæðasta nýjungin er
liklega tónlistarbarinn á
Vitastíg 3 við hliðina á
Bjarnaborg. Það er Tónlist-
armiðstöðin hf. sem mun
reka staðinn, en Vífilfell á
húsnæðið. Að sögn Jóhanns
G. Jóhannssonar verður
þessi staður „nýr vettvangur"
fyrir tónlistarmenn og lifandi
tónlist. Tónlistarbarinn tekur
að minnsta kosti 200 manns í
sæti og þar er líka dansgólf
og stórt svið.
„Það verður lagt mikið upp
úr góðu sviði og plássi fyrir
tónlistarmennina. Við höfum
líka lagt sérstaka áherslu á
vandað hljóðkerfi og gott
loftræstikerfi. Það verður
flygill á staðnum og góð að-
staða til að taka tónleika
beint upp í stúdíói í félags-
heimili tónlistarmanna á
þriðju hæð. Við hugsum okk-
ur að vera með fjölbreyttan
tónlistarflutning; jazz, blues,
country og þjóðlagatónlist,
auk þess sem við ætlum að
reyna að vera með klassísk
kvöld," segir Jóhann. Stefnt
er að því að hafa opið öll
kvöld vikunnar. „Þetta er ein
af mörgum tilraunum til þess
að bjarga félagsheimili tón-
listarmanna á þriðju hæð
hússins. Til að byrja með
verður þetta tilraunastarf-
semi, en við vonumst til þess
að geta náð til almennings
með tilboði sem er öðruvísi
en það sem annars gerist í
einhæfu skemmtanalífi
Reykjavíkur," segir Jóhann.
„Tónlistarmiðstöðin ætlar
að hafa lifandi tónlist á barn-
um öll kvöld. En þrátt fyrir
tónlist af öllu tagi verður
þetta staður þar sem fólk get-
ur talað saman og látið sér
líða vel í þægilegu umhverfi,"
segir Jóhann G. Jóhannsson.
Heiti potturinn flytur úr
Duus-húsi á tónlistarbarinn
og Jazzvakning mun einnig
halda til á þessum stað. Stefnt
er að opnun 3. október og þá
heldur Jazzvakning upp á
fimmtán ára afmæli sitt dag-
ana 4., 5. og 7. október.