Pressan - 27.09.1990, Blaðsíða 8
8
Fimmtudagur 27. sept. 1990
PRESSON
VIKUBLAÐ Á FIMMTUDOGUM
Útgefandi:
Framkvæmdastjóri:
Blad hf.
Hákon Hákonarson
Blaðamenn:
Ljósmyndari:
Útlit:
Prófarkalestur:
Auglýsingastjóri:
Anna Kristine Magnúsdóttir
Björg Eva Erlendsdóttir
Friðrik Þór Guðmundsson
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
Jón Daníelsson (ábm.)
Einar Ólason
Anna Th. Rögnvaldsdóttir
Sigríður H. Gunnarsdóttir
Hinrik Gunnar Hilmarsson
Ritstjórn og skrifstofur: Ármúla 36, sími: 68 18 66. Auglýsingasími: 68 18 66.
Askrift og dreifing: Ármúla 36, sími 68 1866. Setning og umbrot: Leturval sf.
Prentun: Oddi hf.
Áskriftargjald 500 kr. á mánuði. Áskriftargjald: Pressan og Alþýðublaðið:
1000 kr. á mánuði. Verð i lausasölu: 150 kr. eintak'ið.
FÉLAGSMÁLASTOFNUN
EINKAFRAMTAKSINS
Það er svo skrýtið að þeir sem tala hæst um ágæti
einkaframtaksins virðast jafnframt manna fúsastir til að
þiggja opinbera framfærslustyrki. Þetta er raunar ekk-
ert nýtt en staðfestist enn einu sinni um þessar mundir
þegar ríflega fjórar og hálf milljón króna eru sóttar í
sjóði Reykjavíkurborgar og látnar renna í tóma buddu
Almenna bókafélagsins, eins og frá er skýrt í PRESS-
UNNI í dag.
Þær bækur sem keyptar eru fyrir peningana eru vafa-
laust ágætar og hér skal síst dregið í efa að skólabóka-
söfnin við grunnskólana í Reykjavík þurfi á þeim að
halda. Það er þessum peningatilflutningum hins vegar
með öllu óviðkomandi. Segja má að skólabókasöf nin séu
svo heppin að fjármálaspekúlantarnir þurftu á þeim að
halda til að reikningsdæmið gengi upp í bókhaldinu.
Nokkur bókaforlög hafa farið á hausinn eða a.m.k.
orðið að hætta starfsemi að undanförnu. Á lagerlista
þeirra hefur einnig verið að finna ágætar bækur sem
sjálfsagt hefðu sómt sér vel í hillum skólabókasafnanna
í Reykjavík. Af því fer hins vegar ekki sögum að bóka-
söfnin hafi fengið aukafjárveitingar til að kaupa bækur
þeirra til að forða þeim frá gjaldþroti. Um Almenna
bókafélagið gegnir öðru máli. Að því standa voldugir að-
ilar og sjálfur borgarstjórinn í Reykjavík situr í stjórn
fyrirtækisins.
Upphæðin, 4,6 milljónir, er í sjálfu sér ekki stór. Hún
er þó um tuttugasti hluti af því sem talið er að Almenna
bókafélagið þurfi til að komast hjá gjaldþroti. Hver upp-
hæðin er skiptir heldur ekki höfuðmáli. Aðalatriðið er
ósvífnin. Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar hefur
úr litlum peningum að spila miðað við þau vandamál sem
henni er ætlað að leysa. Hin sjálfskipaða félagsmála-
stofnun einkaf ramtaksins tekur hins vegar það sem hún
telur sig þurfa. Og þurfalingarnir eru ekki valdir af
handahófi.
Ný sýn
EINAR ÓLASON
hin pressan
„Þjóðin vill ekkert bruðl
sinn kostnaö."
Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, í samtali við Timann.
„Ég hafna því að staða sauð- V
fjárbænda sé vonlaus."
Gunnar Sæmundsson bóndi
Hrútatungu
„Katrínu virtist finnast hálf
klént að gera það bara átta
sinnum og var komin i hasar-
fréttamannsham."
Úr pistli Elísabetar Þorgeirsdóttur í
Þjóðviljanum. Um Katrinu Baldurs-
dóttur.
„Annaðhvort verður ráðherr-
ann að skipta um veröld eða
veröldin að skipta um ráð-
herra."
Hreinn Loftsson, lögmaður og for-
maður utanrikisnefndar Sjálfstæð-
isflokksins, um Jón Baldvin Hanni-
balsson utanrikisráðherra. Morgun-
blaðið.
„Hvernig fór með sjóferðina
sem hófst með fullfermi af
draumum eftir formannskjör
Jóns Baldvins Hannibalsson-
ar?"
Úr lesendabréfi Arnar Karlssonar i
Morgunblaðinu.
„Viljum við frekar hafa eins
konar vændi á Ijósvakamiðl-
unum?"
Lesendabréf í DV.
,, Fréttamennirnir
taka þessu eins
og veörinu meö
sauökindarlegri
þolinmœði í staö
þess aö skoöa
hvernig fjármunir
hins skattpínda
almennings voru
notaöir til aö
kaupa hina digru
valdastóla undir
flokksgœöingana.“
Ólafur M. Jóhannesson í Morgun-
blaðinu
„Saddam Hussein var ekki i
fforsendum þjóöarsáttarinn-
ar.##
Hannes G. Sigurðsson, hagfræðingur VSÍ. Timinn.
,,Merking veröi
sett utan á húsiö
um aö þarna séu
almenningssalerni
svo aö fleiri en
þeir sem gœddir
eru dulskyggni-
gáfu átti sig á
þeirri þjónustu
sem boöiö er upp
á á þessum staö.“
Úr tillögu Kristínar Á. Ólafsdóttur
borgarfulltrúa vegna almennings-
salerna á Vesturgötu 7.
„Karlinn i brúnni situr á
bryggjustólpanum, þreytuleg-
ur og dorgar með hálfbrotinni
stöng á ótraustum nýjum
vettvangsmiðum."
Lesendabréf i Morgunblaðinu. Um
Jón Baldvin Hannibalsson, formann
Alþýðuflokksins.
„Dauðinn er spennandi ef
maður lifir."
Jónas Jónasson í Alþýðublaðinu
„Það var kannski ágætt að Ei-
ríki Bylgjumorgunþáttarstjóra
tókst ekki að ná í hinn nýráðna
Aðalverktakaforstjóra, en
hann var í fríi á Flórída."
Ólafur M. Jóhannesson í Morgun-
blaðinu