Pressan - 27.09.1990, Síða 9
,iof>r Tv' mor.htttmTiR
Fimmtudagur 27. sept. 1990
/ hverjum mánuði veltir hvert heimili í landinu
á undan sér um 100 þúsund króna neysluláni í formi greiðslukortaáttektar,
yfirdráttarheimildar, fyrirframgreiddra launa og „hraðlána'
ÁÐUR EN VIÐ ÖFLUM
Fyrir örfáum árum átti venjulegt launa-
fólk fárra kosta völ þegar þröngt var í búi
eða endar náðu ekki saman. I besta falli
var hægt að fara með „vígseðil“ til banka-
stjóra og kría út úr honum einhverja lús.
En núer öldin önnur. Neyslulán bjóðast úr
öllum áttum og mjög margir nýta sér þau
að staðaldri. Hann er stór boltinn sem við
veltum sameiginlega á undan okkur.
EFTIR: INGIBJÖRGU SÓLRÚNU GlSlADÓTTUR
MYNDIR: EINAR ÓLASON
— Björn, sparar þú reglu-
lega? spyr Anna.
— Nei, svarar Björn.
— Af hverju ekki?
— Eg hef ekki efni á því.
— Hvað meinarðu?
— Eg er alltaf svo blankur.
Um hver mánaðamót fara öll
launin mín í að greiða reikn-
inga og það eru aðeins
nokkrir dagar liðnir af mán-
uðinum þegar ég er farinn að
nota greiðslukortið aftur og
yfirdráttarheimildina af
tékkareikningnum. Svo held-
ur þú að ég geti sparað?!
— Af hverju tekurðu ekki
upp nýjan útgjaldalið sem
rennur beint í reglulegan og
arðbæran sparnað? Þú getur
gert það með áskrift að spari-
skírteinum ríkissjóðs . . . þú
getur greitt skírteinin með
greiðslukorti.
Eyðum 9,3
milljörðum
fyrirfram á mánuði
Þessi saga er úr bréfi sem
Þjónustumiðstöð ríkis-
verðbréfa er að senda inn á
heimilin í landinu þessa dag-
ana til að auglýsa spariskír-
teini ríkissjóðs. Eins og sést af
sögunni gera sölumenn á
vegum ríkisins beiniínis ráð
fyrir því að eytt sé áður en af I-
að er, en það kemur þó ekki
í veg fyrir að fólki sé sagt að
spara með því að eyða enn
frekar — ef svo má að orði
komast.
Það er engin tilviljun að
þjónustumiðstöðin segir
þessa sögu. Hún veit að
svona er þessu háttað hjá
mjög mörgu fólki og reynir að
laga sig að því. Um hver ný
mánaðamót fara launin í það
að vinda ofan af mánuðinum
á undan; greiða greiðslu-
kortareikninginn og yfir-
dráttarskuldina svo hægt sé
að hefja skuldasöfnun á nýj-
an leik. Sumir velta ekki að-
eins á undan sér einum mán-
aðarlaunum heldur tvenn-
um. í þeim hópi eru t.d. þeir
sem fá dagvinnulaun sín
greidd fyrirfram.
En hvað skyldi þessi bolti
vera stór ef allt er lagt s,
an? Hverju veltir þjóði
mánuði hverjum gegn
greiðslukort, yfirdráttarl
launalán og fyrirframgreid
laun? PRESSAN reyndi a,
gera sér grein fyrir þeksu og
niðurstaðan var vægast sagt
ógnvekjandi. í hverjuiqBnán-
uði eyðum við um það
milljörðum um efni fram.'
Þetta eru neyslulánin okkar.
Yfirdráttur og
„hraðlán“
Þessi tala er hvorki ná-
kvæm né endanleg en hún er
eins góð og hún getur verið
miðað við þær upplýsingar
sem fyrir liggja og hægt er að
fá með góðu móti. Það gekk
t.d. illa að fá umbeðnar upp-
lýsingar hjá bönkunum ef frá
er talinn íslandsbanki.
Þannig sá Baldvin Tryggva-
son, sparisjóðsstjóri í
SPRON, öll tormerki á því að
láta nokkrar upplýsingar í té
sem að gagni mættu verða í
því að reikna þetta dæmi út.
Ef þær upplýsingar sem feng-
ust hjá íslandsbanka, um
hlutfall yfirdráttarlána og
launalána af einstaklingslán-
um, eru hins vegar færðar yf-
ir á bankakerfið í heild má
segja að sæmilega góð mynd
fáist af slíkum lántökum.
Samkvæmt upplýsingum
úr Hagtölum mánaðarins
námu lán bankanna til ein-
staklinga 34.807 millj. kr. í
júní sl. Sá varnagli skal þó
sleginn hér strax að inni í
þessari upphæð gætu verið
lán til einyrkja og verktaka
sem reka starfsemi sína út á
eigin reikning og kennitölu.
Ef við gefum okkur að nýttar
yfirdráttarheimildir séu
8,14% af þessum útlánum,
eins og raunin er hjá íslands-
banka, þá nema þær um
2.833 millj. kr. á mánuði.
I flestum bönkum eru
greiddir 10% ársvextir af yfir-
dráttarheimild hvort sem hún
er nýtt eða ekki. En ef aðeins
er miðað við nýttan yfirdrátt
eru ársvextir af honum yfir-
leitt 17,5% og er þetta ein
dýrasta lántaka sem völ er á.
Ef við reiknum svo með því
að nýttur yfirdráttur sé nokk-
uð svipaður frá mánuði til
mánaðar má gera ráð fyrir að
kostnaðurinn af honum sé
um 496 millj. kr. á ári.
Við þetta bætast svo hin sk.
„launalán" eða „hraðlán", en
þau hafa færst mjög í vöxt á
undanförnum árum. Eru
þetta víxlar eða skuldabréf til
skamms tíma, sem föstum
reikningseigendum standa til
boða í flestum bönkum og
sparisjóðum, og eru upphæð-
irnar í lægri kantinum eða
50—350 þúsund kr. Til að fá
slíkt lán þarf ekki að þramma
á fund bankastjóra heldur er
það afgreitt af þjónustufull-
trúum. Samkvæmt upplýs-
ingum frá íslandsbanka eru
slík lán um 5,11% af útlánum
til einstaklinga. í júní sl. má
því ætla að þau hafi verið um
1.779 millj. kr.
Almennir skuldabréfavext-
ir eru um 12,5% og ef við
reiknum með að „hraðlán"
séu svipuð milli mánaða er
kostnaður vegna þeirra um
222 millj. kr. á ári.
NEYSLULAN EINSTAKLINGA
A MANUÐI
3.350 milljonir
2.830 milljónir
1.780 milljónir
980 milljónir
115 milljónir
240 milljónir
9.295 milljónir
Greioslukortaviöskipti
Nýttar yfirdráttarheimildir
Hraðlán, launalán, reikningslán
Fyrirframgreidd laun hjá ríkinu
Fyrirframgreidd laun hjá borginni
Fyrirframgreidd laun hjá bönkunum
Samtals á mánuði