Pressan - 27.09.1990, Qupperneq 15
15
Fimmtudagur 27. sept. 1990
Guðrún Helgadóttir er
verkstjóri á saumastofu
Bergiðjunnar. Hér er hún
að sníða nýjustu línuna í
barnafatnaði.
Laugavegurinn, Kringlan eða Kvosin eru þeir stadir sem
flestir heimsækja þegar farið er í verslunarferð eða annarrar
þjónustu óskað. Innan um stórar verslanir Reykjavíkurborgar
leynast þó margar minni, sumar svo smáar í sniðum að sölu-
varningurinn er geymdur í kommóðuskúffum. PRESSAN lagði
leið sína um borgina og leitaði að „litlu búðunum“ sem fáir eða
jafnvel engir vita um.
EFTIR: ÖNNU KRISTINE MAGNÚSDÓTTUR - MYNDIR: EINAR ÓLASON
Á milli stórmarkaðarins Miklagarðs og
Kleppsspítalans er að finna eina af þessum
verslunum. Þar er Bergiðjan til húsa og þar
má sjá fjölbreytt úrval af alls kyns vöru. Berg-
iðjan var upphaflega sett á stofn að hluta til
fyrir gjafafé af K-degi Kiwanismanna, sem
veitt hafa geðsjúkum mikinn stuðning í
gegnum árin. Að sögn Jóhannesar Sig-
urðssonar forstöðumanns eru reknar tvær
Bergiðjur. Önnur er rekin sem endurhæfing-
ardeild og iðjuþjálfun fyrir vistmenn þar sem
áhersla er iögð á að þjálfa þá fyrir starf á al-
mennum vinnumarkaði. „Efri” Bergiðjan, sú
sem versiunin er rekin í, er verndaður vinnu-
staður og nokkurs konar framhald af þeirri
fyrrnefndu. Þar starfa fyrrverandi vistmenn
sjúkrahússins sem sækja ekkert til stofnunar-
innar.
Af þessari verslun fréttum við fyrst
'nemma í sumar þegar lesandi PRESSUNN-
iR hringdi til að segja okkur frá henni. Kon-
n hafði verið í veislu þar sem eitt barnanna
kar sig úr vegna þess hversu fallega klætt
iað var. Konan hafði á orði að þessi föt hlytu
ið vera keypt í París, en fékk þær upplýsing-
ir að því færi fjarri, þau væru keypt í Bergiðj-
mni.
í versluninni á hæðinni er margt að sjá. Þar
nru seld barnaföt, jogginggallar úr bómullar-
efnum og apaskinnsefnum, náttföt og nátt-
fatasamfestingar, frotténáttsloppar, peysur,
pils og regnfatnaður. Mest ber á barnafatn-
aði, en einnig er ágætt úrval af fötum á full-
orðna. Þá eru þarna seld garðhúsgögn, sem
hægt er að leggja saman, blaðagrindur og
tréstigar, diskamottur, púðar og annað:
„Timbrið er unnið í iðjuþjálfuninni, þar
sem mest af járnsmíðinni fer einnig fram.
Hér eru húsgögnin sett saman og bæsuð. í
Bergiðjunum tveimur starfa um 50 manns,”
segir Jóhannes en auk þess sem fram er
komið starfa nokkrir við að raða ávísana-
blöðum fyrir bankana, líma og hefta ávís-
anahefti.
Verslunarstjóri Bergiðjunnar er Erla
Valdimarsdóttir og segir hún verslunina
hafa verið rekna í þrjú ár. Þótt margir komi
og versli hjá þeim regluiega sé greinilegt að
ekki viti allir af versluninni: „En þeir sem
hingað koma einu sinni koma aftur.”
Fyrir jólin skapast mikil stemmning í Berg-
iðjunni. Þá er búið til jólaskraut í úrvali, mik-
ið af borðskrauti, plöntur og jólatré eru seld
þar auk útiljósasería úr gúmmíi. Bergiðjan
framleiðir einnig og selur gróSurmold, auk
þess sem þar er pakkað inn og seldur vikur
frá Vikurvörum. Þá eru framleiddar þar
trefjahellur sem Jóhannes segir mikla gæða-
vöru: „Hér framleiðum við gangstéttarhellur
og kantsteina, enda er markmiðið að vera
með verkefni fyrir sem flesta,” segir hann.
Missti sjónina og getur
aðeins prjónað
Á horninu á Njálsgötu og Barónsstíg gefur
að líta lítinn miða í glugga á íbúðarhúsi. Þar
stendur að seldir séu vettlingar og sokkar á
vægu verði. Við bönkuðum upp á hjá hjón-
unum Guðlaugu Karlsdóttur og Magnúsi
sem fáir
vita um