Pressan - 27.09.1990, Page 24
24
Firrimjtyjagur ?7,^pt, ia90
— Hvaöa persóna hefur haft
mest áhrif á þig?
„Móöir mín sjálfsagt. Hún ól
mig upp."
— An hvers gætiröu síst ver-
iö?
„Fjölskyldu minnar."
— Hvaö finnst þér leiðinleg-
ast aö gera?
„Taka til í töskunni minni og
öðrum ruslakistum."
— Hvaö finnst þér skemmti-
legast aö gera?
„Leika mér. Vera stundum
fimm ára."
— Hvaöa eigínleiki finnst þér
eftirsóknarveröastur í fari
fólks?
„Heiöarleiki gagnvart sjálfum
sér og öðrum sem oft elur af sér
hugrekki til að halda áfram að
þroskast."
— Viö hvaða aðstæöur líður
þér best?
„Mér líður yfirleitt alltaf vel.
Ein mesta uppáhaldsstund mín
er þegar ég ligg í notalegu baði
með klassíska músík á fullum
styrk og þarf ekkert að flýta mér.
Svo líður mér yndislega að loknu
góðu verki."
— Ertu ánægö meö kjör þín?
„Ekki launin, en þar fyrir utan
lifi ég góðu lífi."
— Geturðu nefnt mér einn
kost þinn og einn löst?
„Ég er auðsnortin. Það finnst
mér mikill kostur því þess vegna
fæ ég notið svo margs. Einn löst-
urinn er að ég get átt það til að
fresta óþægilegum verkefnum.
Óþægindin minnka því miður
ekkert við það."
— Viö hvaö ertu hrædd?
„Það sem ég hræðist er það
sama og flest venjulegt fólk
hræðist, held ég. Brjálaðir öku-
menn, að eitthvað komi fyrir
börnin mín."
— Hvert er eftirlætisfarar-
tæki þitt?
„Hugurinn, hann flytur mig
hraðast og lengst og klikkar aldr-
ei."
— Hverer eftirlætismaturinn
þinn?
„Venjulegur, íslenskur matur.
Kjötsúpa, fiskur og lambakjöt."
— Hvaö fer mest í taugarnar
á þér?
„Nánasarskapur hverskonar
og skriffinnahugarfar. „Sexísk-
ur" uppbelgingur í karlmönn-
um.
— Hvaö iangar þig til aö af-
reka áöur en þú ert öll?
„Ég á mér draum um að vinna
eitthvert það verk sem fullnægi
mér svo algerlega að ég gleymi
sjálfri mér á meðan og verði eitt
með verki mínu. Þarfyrirutan vil
ég auðvitað breyta heiminum,
koma á jafnrétti kynjanna, fé-
lagslegu réttlæti og fleiru smá-
legu."
— Trúir þú á líf eftir dauöann?
„Eg trúi svosem engu í þeim
efnum og bíð bara spennt. Hins
vegar trúi ég staðfastlega' á líf
fyrir dauðann og á þann mikil-
leika mannsins að skynja meira
en hann fær skilgreint."
i frqmhjáhlaupi
Hildur Jónsdóttir
fjölmiðlafræðingur
„Hugurinn flytur mig
hraðast og lengst"
kynlifsdálkurinn
Sjafnaryndi
Bréf til kynlífsdálksins má skrifa undir dulnefni.
Utanáskriftin er: PRESSAN — kynlífsdálkurinn, Ár-
múla 36, 108 Reykjavík.
Það er ekki á hverjum degi að sá
atburður gerist í íslenskum fjölmiðl-
um að reynt sé að taka á kynlífsmál-
um án gríns. Þegar ég rak augun í að
nýr þáttur um kynlíf ætti að hefja
göngu sína á Aðalstöðinni vakti það
náttúrulega forvitni mína. Ég var
bæði spennt að vita hvernig yrði
tekið á efninu og hverjir það væru
sem stýrðu þættinum.
Það var vel við hæfi að nefna þátt-
inn Sjafnaryndi — ánægju ástkon-
unnar. Þegar ég heyri orðið sjafnar-
yndi dettur mér annars í hug ágætis
bók sem kom út árið 1978 með því
nafni. Það var einmitt sú bók sem
gaf mér einna fyrst þá mynd af
kynlífinu að það væri heiibrigt og
gott.
Þœgilegur útvarpsþáttur
Eftir að hafa hlustað á útvarps-
þáttinn einu sinni finnst mér um-
fjöllunin lofa góðu. Þarna var mælt
á máli sem fólk skilur og sérfræð-
ingahroki víðsfjarri. Það var víða
leitað fanga — allt frá kenningum
Wilhelms Reich til hugmynda
jógans Amrits Desai. Áhugavert að
bregða upp vestrænum og austur-
lenskum kenningum í sömu and-
ránni og tengja þær saman. Til
dæmis að heyra þá skoðun Elísabet-
ar að heppilegt sé fyrir nýástfangna
að fresta mikilvægum ákvarðana-
tökum í samskiptum parsins, svo
sem barneignum og hjónabandi, á
meðan ástin blindar.
Þægileg tónlist og ljóðalestur
öðruhvoru undirstrikuðu að hér var
á ferðinni afslappaður þáttur. Ég
óska aðstandendum alls góðs með
þetta framtak og vona að þeir haidi
ótrauðir áfram og nái því markmiði
sínu að losa kynlífsumræðu frekar
úr „viðjum tepruskapar og feimni".
Svona þáttur á vissulega eftir að
slípast og stjórnendur læra af reynsl-
unni. Til dæmis teygðust sum símtöl
hlustenda, sem hringdu inn, óþarf-
lega lengi.
Kynlífsumrœöu á ekki
aö þagga niöur
Gott er að gera sér grein fyrir því
að vonlaust er að gera öllum til hæf-
is. Umræða um kynlíf er alltaf við-
kvæm og viðhorf og skoðanir stang-
ast auðveldlega á. Uppeldi fólks og
reynsla eru mismunandi og ekki
finnst öllum það jafnsjálfsagt að
opna eðlilegar umræður um kynlíf.
Því kom mér ekki á óvart að sjá
lesendabréf í einu dagblaðanna þar
sem fólk var hvatt til að þagga niður
opinskáa kynlífsumræðu eins og í
Sjafnaryndi. Ég held hins vegar að
þetta megi alls ekki, því kynlífsmór-
allinn hér á landi þarf síst á þögn að
halda. Það þekkja þúsundir íslend-
inga og margir af þeim sem ég hef
talað við þjást af fælni við að ræða
um eins eðlilegan hlut og kynlíf.
Það þekkja þolendur sifjaspella til
dæmis mætavel. Mun betri aðferð
er því til fyrir þá sem vilja þagga nið-
ur kynlífsumræðu í útvarpi —
slökkva á útvarpinu og snúa sér að
öðrum hugðarefnum.
Afar góö
frϚsluaugnablik
Mér fannst líka alveg dæmalaust
• fróðlegt að heyra sjónarmið eldri
manns sem finnst samkynhneigð af-
brigðileg og heyra svo stuttu seinna
í samkynhneigðum manni sem lýsti
því yfir að kynlíf sitt væri afar gef-
andi. Við ætlum seint að læra að
það skiptir meira máli að geta elsk-
að en hvort sá sem maður elskar er
af sama kyni eða gagnstæðu.
í heild kom ekkert fram í fyrsta
þættinum sem á nokkurn hátt gæti
skaðað hlustendur. Þeir sem hafa
þroska og vilja til að hlusta geta ef-
laust nýtt sér margt sem kemur fram
í þætti eins og Sjafnaryndi. Ég get
vel ímyndað mér nytsemi þáttarins.
Kennarar gætu til dæmis nýtt sér
spurningar hlustenda sem innlegg í
umræður um viðhorf og þekkingu
almennings á kynlífi. Hjón geta
gripið tækifærið og rætt ýmis mál
sín á milli sem hafa legið í láginni og
svo mætti lengi telja. Er tilgangur-
inn ekki alltaf sá að takast á við erf-
iðleika og finna fyrir aukinni nánd
og vellíðan?
spcam
27. september—3. október
(21 murs—20. aprill
Ef þú hafðir ekki hugsað þér að fara út á lífið
um helgina aettirðu alvarlega að hugsa um
að skipta um skoðun, þvi miklir möguleikar
virðast á ástarævintýri eða óvæntri og inni-
legri vináttu ef þú freistar gæfunnar og þorir
að taka skrefið út í óvissuna.
(21 upril—20. mui)
Þú færðef til vill á tilfinninguna aðfólk í þínu
nánasta umhverfi, vinnustað, heimili eða
einhvers staðar þar sem þú venur komur
þínar, hafi eitthvað á móti þér; þetta álykt-
arðu af þurrkuntulegu viðmóti og þvinguðu
andrúmslofti. Þetta er misskilningur, ef ein-
hver andúð fyrirfinnst þá beinist hún ekki
gegn þér. Taktu frumkvæðið í samræðum
og þú kemst að þvi að þú ert vel liðinn.
(21 mui—2L júní)
Þú færð fréttir af óæskilegu framferði fólks
sem þú þekkir. Ekki dæma of hart eða of
fljótt. Athugaðu allar hliðar málsins áður en
þú dæmir eða láttu kyrrt liggja. Ef þú veitir
nákomnum ættingja sérstaka athygli muntu
kynnast nýrri hlið á honum.
(22. júni—22 júli/
Þú kannt að verða var (vör) við timabundna
tómleikatilfinningu og áhugaleysi. Reyndu
að harka af þér og taka til hendinni, þá fylgir
áhuginn í kjölfarið.
(23. júli—22. úijúsl)
Maki þinn eða nákominn vinur móðgast við
þig. Sýndu sveigjanleika, annars getur málið
farið i hnút. Settu þig í spor mótaðilans og
gerðu þér jafnframt far um að útskýra þina
hlið málanna. Sunnudagur er tími hvíldar
fyrir þig og íhugunar.
(23. dgúsi — 23. sepl.)
Þú færð fréttir um veikindi eða ógæfu ann-
arra sem kunna að koma þér úr jafnvægi.
Ekki ergja þig á þvi sem þú getur ekki breytt.
Bjóddu fram hjálp þína, hennar er þörf þó að
ekki sé um beðið.
(23. sept —2'1 ukl.)
Aðgát skal höfð í nærveru sálar: Félagi þinn
er þungbúinn og þú veist ekki af hverju. Ekki
ganga hart að honum en vertu tilbúinn að
hlusta. Ástamálin eiga eftir að blómstra
næstu daga.
(24. okt.—22. nóu.)
Hugur þinn virðist opinn fyrir háleitum iðk-
unum ef þú gefur honum tækifæri til þess
og tima. Þessa dagana er sköpunargáfa þín
í hámarki en það er ekki víst að þú áttir þig
á því. Hlustaðu á þinn innri mann og reyndu
að loka þig einu sinni frá hávaðanum í kring-
um þig.
(23. nóu.—2l. des.j
Þú hefur of miklar áhyggjur af tilteknu máli
en kemst að því síðar að þær voru meira og
minna óþarfar. Sýndu maka þínum og/eða
vini nærgætni, þú kannt að virðast hrana-
legri en þú heldur.
(22. des.—20. jun.)
Þú skalt ekki vanmeta börn sem verða á vegi
þínum. Það sem þú heldur vera ómerkilegt
krakkahjal kann að vera þér meira virði en þú
hélst ef þú leggur við eyru. Það er allt í lagi
að vinna mikið yfir helgina þvi þú býrð yfir
mikilli orku um þessar mundir, hvort sem þú
hefur tekið eftir þvi eða ekki.
(21. janúur—W febrúur)
Öfundsýki sækir að þér með einhverjum
hætti. Reyndu að hugleiða orsakirnar og þá
verðurðu sáttari við umhverfið og sjálfan
þig. Seint um helgina reynir einhver um of á
þolinmæði þina. Hugleiddu vel mótleik þinn
áður en þú slærð frá þér.
(20. febrúur—20. mars)
Eitthvað freistar þin sem þú veist innst inni
að er andstætt vilja þinum. Sýndu sjálfstjórn
og löngunin liður hjá. Ef þú stenst mátið
muntu finna fyrir sterkri ánægjutilfinningu.