Pressan - 27.09.1990, Qupperneq 28
PRESSU
MOJLAR
r
■ étt pólitík og fjölskyldutengsl
eru gott veganesti við atvinnuum-
sóknir og gildir sú staðreynd víðar
en hjá Islenskum aðalverktök-
um. Dæmi um þetta er talin nýleg
ráðning tollvarðar á Keflavíkur-
flugvelli. Það er utanríkisráð-
herra sem veitir þessa stöðu og
meðal tollvarða heyrist hvíslað að
pólitík og ættartengsl hafi ráðið
meiru en menntun og starfsreynsla.
Sá sem starfið hlaut heitir Sig-
mundur Bjarnason en faðir hans
heitir Bjarni Kristinsson og er
tollfulltrúi í Keflavík. Lögreglu-
stjórinn í Keflavík, Þorgeir Þor-
steinsson, mælti með manni í starf-
ið eins og venjan er, en utanríkis-
ráðuneytið leit framhjá tillögum
hans. Félag tollvarða ræddi mál
þetta á fundi í gær og mun beiðast
þess að utanríkisráðuneytið leysi frá
skjóðunni og geri grein fyrir hinum
umsækjendunum og forsendum
ráðningarinnar. Fimm aðrir um-
sækjendur voru um starfið, þeir
höfðu allir starfsreynslu og tilskilda
menntun, en hjá þeim sem ráðinn
var skorti á hvort tveggja ...
o
^^Fsamkomulag meðal manna a
Stöð 2 finnst víðar en á milli fyrr-
verandi og núverandi eigenda
stöðvarinnar. Þegar Þorvarður El-
íasson sjónvarpsstjóri kom úr fríi
kom hann að Jóni Ólafssyni í Skíf-
unni í stól sínum, enda hafði Jón
gegnt stöðu sjónvarpsstjóra meðan
hinn skipaði stjóri var í fríinu. Jón
neitaði hins vegar að yfirgefa stól-
inn og vildi setja Þorvarð í sérverk-
efni. ..
c
%9jónvarpsstjórinn, Þorvarður
Elíasson, gat þó náð sér niðri á
Jóni Ólafssyni. Umræddur Jón
vill nefnilega komast til Cannes til
að kaupa inn myndir fyrir Stöðina,
ásamt Jónasi R. Jónssyni, sem sér
um þau kaup. Þorvarður neitaði
hins vegar algjörlega að Stöð 2
greiddi fyrir þessa ferð Jóns og segir
sagan að Þorvarður hafi spurt Jón
hvorum megin borðsins hann ætl-
aði að vera, sem seljandi eða kaup-
andi. Var Þorvarður þar með að vísa
til þess að Jón Ólafsson seldi ný-
verið Stöð 2 kvikmyndir sem hann
er með umboð fyrir, að upphæð 15
milljónir króna, og fékk þar með til
baka allt það fé sem hann hafði lagt
í Stöð 2. Aður hafði Sýn hf. hafnað
boði Jóns í Skífunni um að kaupa
þessar sömu myndir á 10 milljón-
ir . . .
o
fulltrúaráðsfundinum hjá
Starfsmannafélagi Reykjavíkur-
borgar (St.Rv.) í síðustu viku urðu
heitar umræður í tilefni af því að
stjórn St.Rv. ákvað að tilnefna full-
trúa í húsnæðisnefnd Reykjavík-
urborgar í blóra við vilja aðildarfé-
laga BSRB í Reykjavík. í tillögunni
fólst að kjör stjórnarinnar á utanfé-
lagsmanninum Kristjáni Thorl-
acius, fyrrum formanni BSRB, yrði
lýst ómerkt. Átalin voru þau vinnu-
brögð að ganga framhjá aðildarfé-
lögum BSRB og félagsmálaráðu-
neyti í þessu máli, en taka undir
túlkun borgarstjóra, og að utanfé-
lagsmaður skyldi verða fyrir valinu,
sem væri vantraust á virka félags-
menn. Dæmafá uppákoma varð síð-
an við talninguna að kosningum
loknum. I þremur tilraunum kom í
öll skipti upp misræmi þannig að
meðatkvæði voru frá 22 upp í 25.
Loks var ákveðið að kjósa upp á nýtt
og var þá tillagan felld 23:26. Því má
bæta við að Kristján hefur verið
kjörinn varaformaður húsnæðis-
nefndarinnar og jók það ef nokkuð
á reiðina innan aðildarfélaganna í
Reykjavík, sem ekki hafa gefist upp
og ætla að krefjast réttar síns í mál-
inu ...
H^Éeðlimir Eurocard fengu
gullið tilboð með yfirliti síðasta
mánaðar. Með yfirlitinu fylgdi pen-
ingagjöf frá Sævari Karli Olasyni,
ávísun upp á fimmhundruð krónur.
Þessa fjárhæð geta meðlimir Euro-
card notað sem innborgun á keypta
vöru á lagerútsölu Sævars Karls sem
haldin verður á laugardaginn.
Reyndar fá Eurocard-hafar að koma
daginn áður og velja sér fatnað
meðal annars frá Étienne Aigner,
Jil Sander, Brooksfield, René
Lezard og Kathleen Madden.
Fimmhundruðkallinn hrekkur lík-
lega skammt til slíkra innkaupa, en
auglýsingaaðferð þessi er mjög ný-
stárleg...
I apríl síðastliðnum, í byrjun
kosningabaráttunnar, var haldinn
stofnfundur Þróunarfélags mið-
bæjar Reykjavíkur og var þar
fundarstjóri Davíð Oddsson borg-
arstjóri. Ákvörðun um stofnun fé-
lagsins hafði verið tekin haustið áð-
ur. Á fundinum komu fram ýmsar
athugasemdir við drög að lögum fé-
lagsins og þegar sjálfstæðismönn-
um þótti nóg komið var ákveðið að
blása til framhaldsaðalfundar og
skipa nefnd til að fara yfir breyting-
artillögur þær sem fram komu.
Fundurinn kaus í nefndina þau
Hjörleif Kvaran, forstöðumann
stjórnsýsludeilar borgarinnar, Vil-
hjálm Þ. Vilhjálmsson borgarfull-
trúa og Guðrúnu Jónsdóttur arki-
tekt. Nefnd þessi var hins vegar
aldrei kölluð fyrir og framhalds-
fundur aldrei haldinn. í staðinn
beitti borgarstjóri sér einfaldlega
fyrir stofnun nýs þróunarfélags,
væntanlega til að losna við það fólk
sem hafði „eyðilagt" stofnfund fyrra
félagsins. Á borgarráðsfundi sl.
þriðjudag gerðist það síðan að lagt
var fram bréf borgarstjóra um form-
lega stofnun hins nýja félags. Þegar
spurt var um hitt félagið bárust óljós
svör um að hætt hefði verið við það
félag og ákveðið að stofna nýtt. í
nýju útgáfunni er gert ráð fyrir að
stjórn félagsins semji lög fyrir félag-
ið — og það er einmitt skipan stjórn-
arinnar sem vekur athygli. í eldra fé-
laginu var gert ráð fyrir að forsæt-
isráðherra tilnefndi einn mann,
borgarstjóri einn og að þrír yrðu
kjörnir á aðalfundi. í nýja félaginu á
forsætisráðherra áfram að tilnefna
einn, sömuleiðis Samband við-
skiptabanka og sparisjóða og svo
Skrifstofa viðskiptalífsins, en tvo
á að kjósa af borgarstjórn. Með öðr-
um orðum á ekki að kjósa einn ein-
asta stjórnarmann á aðalfundum fé-
lagsins, en aukin áhrif þess í stað
færð bönkum og fyrirtækjum ...
b
^^^ylgjan er að auka starfsemi
sína af fullum krafti. Á mánudag-
inn verður fréttastofa Bylgjunn-
ar sameinuð fréttastofu Stöðvar 2
og verður Elín Hirst sérstakur
váktstjóri. Á fréttastofu Bylgjunn-
ar munu sex fréttamenn verða við
störf, en stofan fær stuðning frá
fréttastofu Stöðvar 2 ...
ar
an
- eða nýtt teppi
ÓKEYPIS!
Þau hafa aldeilis slegið í gegn GEMINI teppin okkar - sem þola næstum allt.
Þessi þykku gæðateppi klæða nú fjölda stigahúsa auk annarra gólfa hérlendis sem
erlendis. Núna geturðu teppalagt fleti sem hingað til var óhugsandi að hafa á teppi
vegna bletta og slitálags.
Skoðaðu ábyrgðarskilmálana. MARQUESA er alger bylting í teppagarni og þraut-
prófað af hlutlausum rannsóknarstofum með tiijíti til slitþols, fjaðurmagns og eigin-
leika til að halda áferð sinni - þetta er gæðatrygging fyrir kaupandann.
GEMINI teppin eru þétt, efnismikil, lykkjuofin gæðateppi, 880 gr af garni í hverjum
fermetra og að auki blettaþolin.
ÞAÐ MÁ JAFNVEL ÞRÍFA BLETTINA
MEÐ KLÓR.
Mælum, rífumgömlu
teppinaf-gerumtil-
boð og leggjum nýju
teppin fljótt og vel.
Gemini - teppi ofin úr
Einkar sterk gæðateppi með þéttum lykkjum
og góðu undirlagi. 15 ferskir litir. Framleitt
úr 100% polypropylene. Hentar á alia heimil-
jsfléti, stigahús og skrifstofur.
Full ábyrgð.
Breidd: 400 cm. Efnismagn: 880 gr. m3
Marquesa
ÁBYRGÐ:
5 ára blettaábyrgð!
Myndist, innan 5 ára frá kaupdegi blettur,
sem ekki tekst að þrífa úr skv. leiðbeiningum,
eða sérfræðingar okkar ná ekki úr þá skiptum
við orðalaust um teppi hjá þér.
5 ára slitþolsábyrgð!
Slitni teppið í gegn innan 5 ára frá kaup-
degi, skiptum við þvl slitna út með nýju teppi.
5 ára litaheldni!
Láti teppi lit innan 5 ára frá kaupdegi, skiptum
við því upplitaða út með nýju teppi.
Ath:
Abyrgöin fellur úr gildi við misnotkun,
skemmdarverk eða náttúruhamfarir.
TEPPABUÐIN
GÖLFEFNAMARKAÐURINN, SUÐURLANDSBRAUT 26. Sími 91-681950.