Pressan - 08.11.1990, Side 2

Pressan - 08.11.1990, Side 2
2 iii/3 /rn/ & V* % iHV'iJltt C'l <:'»/il: IT'j.i/n FIMMTUDAGUR PRESSAN 8. NÓVEMBER Margir af lögmönnum landsins brutu „prinsipp" sín um sið- ustu helgi til að fá ókeypis brennivín. Þeir sættu sig við að mæta í kokkteil hjá einkavini SÍnum ÓLAFI RAGNARI GRÍMSSYNI fjármálaráð- herra. Lögmennirnir náðu þó að halda smá- reisn því enginn þeirra mun hafa rætt við Ólaf. Laugardagur með BJARNA FEL á Englandi er nú fastur liður. Margir hafa tekið eftir því hvað lýsingar Bjarna úr ensku knattspyrnunni hafa batnað þegar hann er úti að lýsa. Ferðalög Bjarna eru reyndar kostuð af ís- lenskum getraunum, sem þykir greinilega kostur að hafa þá á sjón- varpinu í góðu skapi. Þykir tilvalin leið til þess að hafa Bjarna Fel í út- löndum. Fatafellan BONNY gerir það gott þessa dagana enda boðið upp á alvöru „show". Partíið hjá henni kostar 35 til 40 þúsund og er jafnvel hægt að fá hana til að taka lagið. Eru þetta eintómar skepnur Árni? ,,Nei, nei, alls ekki. En þeir eru jafngóöir fyrir þad.“ Arni Mathiesen dýralæknir keppir um öruggt sæti á lista Sjálfstæðisflokksins á Reykja- nesi. I viðtali í Morgunblaðinu lýsti hann því yfir að menntun hans kæmi að góðum notum innan um sjálfstæðismenn. IANGI-SEU í BRASIM IÖGGUNA langi-seli, axel í Langa- Sela og Skuggunum, á ekki í minnstu vandræðum með samskipti við rottur og ketti, enda ber ný plata Skugg- anna nafn þessara dýrateg- unda. En það er annað mál með viðkynni hans af lög- reglunni. Um síðustu helgi lenti hann nefnilega í því að löggan stal bílnum hans, eða réttara sagt bíl eigin- konunnar, sigrunar eddu björnsdóttur leikkonu. Aðfaranótt sunnudags voru Skuggarnir við töku myndbands eftir laginu Rabbi-rotta hjá þeim Hall- dóri Gunnarssyni og Helga Sverrissyni í Islensku hreyfimyndastofnuninni. Um miðja nótt þurfti kvik- myndagengið á aðalleik- konunni að halda og Langi- Seli, í góðmennsku sinni, bauðst til að skutlast eftir henni. „Klukkan var orðin það margt að ég kunni ekki við að flauta í hverfinu," sagði Langi-Seli í samtali við PRESSUNA. „Ég ákvað því að hlaupa út úr bílnum og ná í hana. Vissi að hún stæði tilbúin í ganginum. Svo löbbuðum við okkur aftur út á götu og var þá búið að stela bílnum. Fórekki á milli mála, að þarna voru „prof-gæjar" á ferðinni. Þeir höfðu gert þetta á snilldar- legri „tæmingu"." Nú voru góð ráð dýr, því Langi-Seli mundi ekki bíl- númerið. Hann fékk því lán- aðan annan bíl og ætlaði að skutlast heim til að finna einhver gögn sem gætu komið honum á sporið... Þá stöðvaði lögreglan hann, í venjubundnu tékki í hverf- inu. „Þegar ég ræddi við lögreglumennina kom í Ijós að löggan sjálf hafði verið að verki. Þeir gerðu mér þann greiða að taka bílinn, sögðu það betra en einhver annar gerði það. Ég hafði skilið bílinn eftir með Ijósin á og það mun vera lögbrot." Morguninn eftir þurfti skráður eigandi, eiginkon- an, að sækja bílinn í lög- regluportið og slapp með skrekkinn. snilldarlega „tæm ingu", segir Langi seli um lögguna sem hnuplaði brln um hans. BÚÐ SEMSELURLOFT „Hér verður bráðlega opn- uð búð í anda nýrra tíma," auglýsir Gulli í Karnabæ utan á verslunarhúsnæði sínu í Austurstræti 22, sem stendur autt um þessar mundir. í sam- tali við PRESSUNA skýrði Gulli betur hvað hann á við með þessum „anda“ nýrra tíma: „Eg ætla að segja spak- mæli við þig,“ sagði hann, „svona rétt til upphitunar. „Þeir einir verða ríkir í nýja tímanum sem kunna að lifa af litlu." Meiri hagvöxtur verður ekki til. Þeir sem lofa þér meiru í umslagið eru að ljúga að þér. Það er ekkert hægt að taka meira, nema ræna jörð- ina og þriðja heiminn enn meira en búið er. Til þess að við eigum einhverja von verður íhaldið að hrynja, sem það kemur til með að gera á næstu mánuðum. Það sem gerist er einfaldlega það, að þetta kerfi, sem byggist á meiri og meiri neyslu, hryn- ur.“ Það lítur semsagt út fyrir að Gulli ætli að opna búð sem selur loft. Og sjálfur útilokar hann það ekki. Ekkier öllnott úti... Fari svo að Ásta Sigríð- ur Einarsdóttir hljóti ekki titilinn Ungfrú heimur, eða Miss World, í kvöld, sem langflestum lands- mönnum finnst þó sjálfsagt, á hún ennþá möguleika á titlin- um Miss Universe eða Ungfrú alheimur, sem þykir enn meiri viðurkenning. Reyndar eiga fleiri möguleika á þeim titli, því ekki hefur verið tekin ákvörðun um hverjar keppa fyrir íslands hönd. Auk Ástu Sigríðar, það er ef hún vinnur ekki í kvöld, eru það stúlkurnar sem lentu í öðru og þriðja sæti í keppninni um Ungfrú ísland, þær Þórdís Steinsdóttir, sem reyndar keppti í Miss Int- ernational í september, og Sigríður Stefánsdóttir, sem enn hefur ekki keppt ytra. Sigríður hefur hins vegar starfað sem fyrirsæta í Japan við góðan orðstír. Það eru bandarískir aðilar sem standa fyr- ir Miss Universe-keppninni og þykir hún jafnvel meiri „glamúr" en Miss World. LÍTILRÆÐI af berrassaðri konu Ég held að Grímur frændi konunnar minnar sé enn að reyna að hætta að drekka. En ég held það gangi bara ekkert hjá honum. Að minnsta kosti var það ekki að sjá þegar hann kom í heimsókn um síðustu helgi og var meira en lítið niðri fyrir. Hér verð ég að bæta því inní, svona í framhjáhlaupi, að það var einmitt „Grímur frændi" sem tók mig afsíðis á brúðkaupsdaginn minn (og konunnar minnar) og gaf mér eftirfarandi heil- ræði: — Þú átt aldrei að neita konunni þinni um hjálp við heimilisstörfin eða innifyrir þegar hún biður þig um það. En gerðu það bara svo illa að þú verðir ekki beð- inn aftur. Hér þarf ég að skjóta því inní að konan mín hefur takmarkað dálæti á Grími frænda sínum, en það er nú önnur saga. Mér tókst, með nokkrum erfiðismunum, að laða það uppúr honum hversvegna honum væri svona mikið niðri fyrir og það var þá út- af grein sem ég skrifaði í síðustu Pressu um berrass- aða manninn sem er á góðri leið að leggja íslenska alþjóðaknattspyrnu í rúst með nærveru sinni á lands- leikjum. — Aldrei megum við neitt, ekki einusinni vera berrassaðir, öskraði Grím- ur. ... Það er einsog kven- fólk hafi bókstaflega einka- rétt á því. Þessar andskot- ans merar. Hér má skjóta því inní að Grímur er nýskilinn við konu sína Guðrúnu. — Sástu Vísi á þriðjudag- inn var? Berrassaðar konur í hljómplötpverslun í Mel- bourne í Ástralíu, ungfrú Lillehammer berrössuð að spila á fiðlu, Steinar Thor Friðriksson með herðatré í hendinni sem hann kallar fatafellu og stærsta auglýs- ingin í smáauglýsingunum í Vísi mynd af kvenmanns- rassgati sem auglýst er til sölu og sýnis fyrir steggja- partí og skemmtanir um land allt. Þær mega víst og eiga að vera berrassaðar um allar trissur öskraði Grímur. Og fyrir peninga. Þessar andskotans mer- ar. Nú var það að konan mín tók prjónana sína, setti þá niður í tuðru og sagðist þurfa að fara á söngæfingu. Við yrðum að „sjá um okk- ur sjálfir". Þetta sárnaði mér að sjálfsögðu vegna þess að Grímur er nú einusinni frændi hennar en ekki minn svo ég sagði ofur blíð- lega: — Það er nú ekki svo oft sem hann Grímur frændi þinn lítur inn. En Grímur lét ekki slá sig útaf laginu heldur sneri sér að frænku sinni og sagði: — Sástu berrössuðu negrakellingarnar í sjónvarpinu í gær? —- Já, syaraði frúin. — Veistu hver er munur- inn á berrassaðri negrakell- ingu, berrassaðri hvítri kellingu og berrassaða kallinum á 'vellinum? spurði þá Grímur. — Nei. — Berrössuð svört kell- ing er mannfræði, berröss- uð hvít kelling er leyfilegt klám en berrassaður kall er stórglæpur. Og nú fór konan mín á söngæfingu. S.ÞÓR

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.