Pressan - 08.11.1990, Blaðsíða 30

Pressan - 08.11.1990, Blaðsíða 30
Vaxmynd af Hall- dóri Asgrímssyni sett upp I Sea World-safninu — veröur varöveitt í hvala- deildinni FJÖLLEIKASÝNING í HLÉI Á FUNDUM í BORGARA- FLOKKNUM — aösókn hefur skánað aðeins en er enn ekki nógu góð, segir Júlíus Sólnes. Sænsk au-pair-stúlka í Hlíðahverfinu NEITAR AD SNÚA AFTUR HEIM TIL FJÖLSKYLDU SINNAR — höfum reynt að teija henni hughvarf undanfarin fimmtíu ár, segir Skafti Jörmundsson banka- fulltrúi Lotta við störf á heimili Skafta Jör- mundssonar. 6. TÖLUBLAÐ 1. ÁRGANGUR FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER STOFNAÐ 1990 Bolungarvík: GAFU FYRIRTÆKIÐ OG TÓKST AD FLÝJA SJÓDINA Bolungarvík, 31. október „Okkur líður stórkost- lega. Það er eins og við höfum ekki áttað okkur á því hvað þetta hefur tekið á okkur fyrr en það var afstaðið," sagði Jón- atan Einarsson, fyrrver- andi atvinnurekandi í Bolungarvík og núver- andi beitningamaður á Sólrúnu frá Patreksfirði, í samtali við GULU PRESSUNA. Jónatan og fjölskyldu tókst að losna við fyrirtæki sitt eftir margra ára til- raunir. „Málið er að ekkert okk- ar kærði sig um þetta fyrir- tæki eða vildi reka það áfram. Við settum það hvað eftir annað á hausinn en allt kom fyrir ekki. Alltaf kom einhver sjóðurinn, át upp skuldirnar og dældi í það nýju fjármagni. Við sátum því uppi með það enn og aftur," segir Jónatan. Að sögn Jónatans var það bróðursonur hans, Einar K. Guðfinnsson, sem loks fann aðferð sem blekkti sjóðina. „Ég var að horfa á þátt um hjátrú í sjónvarpinu og datt þá í hug að kannski gætum við gefið Strandar- kirkju fyrirtækið og látið það iíta út sem áheit," sag- ði Einar í samtali við GULU PRESSUNA. „Þessi tíðindi komu okk- ur að sjálfsögðu á óvart,“ sagði Guðmundur Malm- quist, forstjóri Byggðastofn- unar. „Við vonumst hins vegar til að eiga ánægjulegt samstarf við nýjan eiganda fyrirtækisins.“ Þorvaldur Garöar Kristjánsson STORKOSTLEGT KOSNIN GAS VINDL — hefnr notað ýmis nöf n í þingkosningum á undanförnum árum Isafirði, 8. nóvember Samkvæmt fréttum dag- blaðsins Tímans í Reykja- vík hefur Þorvaldur Garð- ar Kristjánsson orðið upp- vís að meiriháttar kosn- ingasvindli í prófkjörum og þingkosningum á und- anförnum árum. Upp komst um svindlið þegar Þorvaldur Garðar ætlaði að bjóða sig fram í próf- kjöri sjálfstæðismanna á Norðurlandi vestra undir nafni virts lögmanns, Þor- valdar Ara Arasonar. í kjölfar rannsóknar á mál- inu hefur komið í Ijós að Þor- valdur hefur í raun boðið sig fram í ýmsum kjördæmum undir mismunandi nöfnum og fyrir ólíka flokka. Þannig kom í ljós að hann hafði feng- ið ágæta kosningu á þing fyr- ir Reykvíkinga árið 1987 und- ir nafninu Þórhildur Þorleifs- dóttir, en hann notaði það nafn innan Kvennalistans. „Við töldum okkur örugga Þorvaldur Garðar lætur ekkert uppi varðandi ásakanir um kosningasvindl. Breskur miðill skrifar ævisögu forsætisráðherra Reykjavík, 7. nóvember Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur hefur sagt upp starfi sem ævisögurit- ari Steingríms Hermanns- Tillögur á boröi íslensku ríkisstjórnarinnar KVÓTAKERFI TIL AD KOMA í VEG FYRIR ATVINNULEYSI Indriði G. Þorsteinsson hefur gefist upp á Stelngrfmi... sem nú er staddur í Austurríki á skíðum. Þingvöllum, 7. nóvember Á sérstökum fundi ríkis- stjórnarinnar á Þingvöll- um í dag voru Samþykktar tillögur um aðgerðir gegn atvinnuleysi. I þeim felst að hverjum vinnufærum manni verður úthlutað sérstökum vinnukvóta. Kvótinn samanstendur af meðalvinnuframlagi hvers vinnandi manns undanfarin þrjú ár. Ríkissjóður mun síð- an ábyrgjast laun mannsins upp að þessum kvóta. Ef maðurinn vinnur umfram kvótann er það algjörlega á hans eigin ábyrgð og at- vinnurekandans. Aðgerðir þessar hafa mælst vel fyrir, bæði innan verka- lýðshreyfingarinnar og eins meðal atvinnurekenda. Eini hópurinn sem hefur hreyft mótmælum er Nem- endafélag Hagaskóla. í sam- þykkt stjórnar þess kemur fram að nemendurnir óttast að það muni reynast erfiðara fyrir þá að fá vinnu þegar fram í sækir. Samkvæmt til- lögunum verða þeir sem ekki hafa unnið á viðmiðunarár- unum annaðhvort að kaupa sér kvóta eða falast eftir hon- um hjá ættingjum. „Að sjálfsögðu er þetta ekki fullkomið kerfi," sagði Halldór Ásgrímsson sjávarút- vegsráðherra eftir fundinn. „Ekkert kerfi er fullkomið. Aðalatriðið er að þessi niður- staða er fengin í fullu samráði við alla helstu hagsmunaað- ila.“ sonar, forsætisráðherra íslands. í samtali við GULU PRESS- UNA sagði Indriði að ástæð- an væri alls ekki ósætti þeirra tveggja eða skortur á sam- starfsvilja af hálfu Steingríms. „Ástæðan er einfaldlega sú að eftir nokkurra mánaða vinnu hef ég ekki einu sinni efnivið til að smíða skrítlu, hvað þá heila ævisögu. Það virðist vera sama hvar borið er niður í æviferlinum; Stein- grímur man fátt og það litla sem hann rámar í man hann afskaplega illa,“ sagði Indriði. Framsóknarflokkurinn hef- ur nú ráðið breska miðilinn Ray Logan til að rita sögu Steingríms. Logan er gæddur þeim eiginleika að honum nægir að fá nafn Steingríms og þarf því ekki að treysta á stopult minni hans. „Ég hef ekkert á móti Indr- iða,“ sagði Steingrímur í sam- tali við GULU PRESSUNA. „Ef hann kemur á skrifstof- una mína getur vel verið að ég geti aðstoðað hann við að fá þennan riðuveikiúrskurð felldan úr gildi. Það held ég nú.“ um að hafa fellt Þorvald af þingi," sagði Matthías Bjarna- son þingmaður í samtali við GULU PRESSUNA, en sem kunnugt er tókst Vestfirðing- um að fella Þorvald niður í fjórða sætið á lista Sjálfstæð- isflokksins í prófkjöri um dag- inn. „En eftir þessi tíðindi er ljóst að maður getur aldrei verið öruggur. Hver er til dæmis þessi Einar Kr. Guð- finnsson?" spurði Matthías. Nýjung Slúðurlína Landsímans Reykjovfk, 8. nóvember_ Stjórn Pósts og síma hefur ákveðið að hefja rekstur Slúðurlínu Landsímans. „Við höfum verið að breyta ímynd fyrirtækis- ins að undanförnu. Fyrst kom Bíólína Landsímans, síðan Poppiínan og nú er komið að Slúðurlínunni," sagði Jóhann Hjálmars- son, blaðafulltrúi Pósts og síma. Að sögn Jóhanns mun fólk geta hringt í síma 99-1010 og hlustað á heit- asta slúður dagsins. Aðspurður hvort Póstur og sími væri þarna kom- inn í samkeppni við viku- blaðið PRESSUNA sagði Jóhann að því færi fjarri. „Slúðrið í PRESSUNNf verður eins og Passíu- sálmarnir við hliðina á því sem við erum að fara út í.“ Jóhann Hjálm- arsson telur aö Slúöurlína Landsímans muni slá slúör- iö í PRESS- UNNI út.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.