Pressan - 08.11.1990, Blaðsíða 18

Pressan - 08.11.1990, Blaðsíða 18
18 FIMMTUDAGUR PRESSAN 8. NÓVEMBER Það er undarlegt hvað dálkar í dagblöðunum, þar sem starfsmenn þeirra skrifa undir dulnefnum, geta haft mikil áhrif. Stefán Valgeirsson þing- maður hélt því til dæmis fram einu sinni í ræðu að hann væri ofsóttur af pólitískum andstæðingum og nefndi þar fyrstan til sögunnar Loka í DV. En þetta er kannski rétt hjá Stefáni. Auðvitað er Loki ekki einhver persónuleysingi. Þeir sem skrifa Loka eru fréttastjórarnir á DV; þeir Jónas Haraldsson og Elías Snæland Jónsson. Reyndar grípur Sigurdór Sigurdórsson líka í að skrifa Loka þegar hann leysir þá tvo af sem fréttastjóri. En Loki er ekki eina fígúr- an sem birtist í dagblöðun- um. Þjóðviljinn hefur komið sér upp tveimur köppum þar sem ritstjórarnir fá að skrifa undir dulnefni. Annar heitir Skaði og er hugverk Árna Bergmann en Helgi Guð- mundsson, nýráðinn ritstjóri, heldur úti skrifum Þránds. Reyndar er einnig til fyrir- brigði á Þjóðviljanum sem heitir systir Skaða. Sú sem hefur skrifað fyrir hana heitir Lilja Gunnarsdóttir. I Tímanum er dálkur sem sjálfur fígúruna. I Morgunblaðinu er bara einn dálkur undir dulnefni, þó þar séu margir ómerktir þættir. Sá heitir Víkverji. Þeir sem halda honum úti eru fréttastjórar Moggans; Sig- tryggur Sigtryggsson, Ágúsl Ingi Jónsson og fleiri. heitir Garri og höfundur hans er svarthöfði sjálfur; Indriði G. Þorsteinsson. Ind- riði er margreyndur í svona skrifum og hélt uppi merki Svarthöfða í Vísi í fjölda ára. Arftaki Svarthöfða er Dag- fari. Báðir ritstjórar DV skrifa hann; þeir Ellert B. Schram og Jónas Kristjáns- son. En aðrir koma þar líka við sögu. Það er eitt best geymda leyndarmál blaða- heimsins hveíTÍT pað eru, en oftast eru nefndir til sögunn- ar þeir Haraldur Blöndal og Baldur Hermannsson. Litla Alþýðublaðið á einnig sinn skríbent og heitir sá Dagfinnur. Þar stýrir Ingólf- ur Margeirsson pennanum. Reyndar teiknaði Ingólfur Banka- skelfirinn Bankaskelfirinn Gvendur jaki óð inn í íslandsbanka og reif út 105 milljónir í vikunni. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem skelfirinn hefur notast við þá breilu að veifa spari- sjóðsbókum Dagsbrúnar framan í bankastjóra. Hann fór létt með Alþýðubankann á sínum tíma þegar hann stillti Birni Björnssyni banka- stjóra upp við vegg. 1 það skiptið var jakinn að hjálpa vini sínum Ola Kr. í OLÍS, sem átti í stríði við Landsbankann er neitaði OLÍS um ábyrgðir vegna olíuflutninga frá Sovét. Enginn skildi hvaða hags- muna Alþýðubankinn hafði að gæta gagnvart OLÍS og allra síst sendisveinum sovét- Ásókn I alheims- andann Breski miðillinn Ray Logan vakti sannarlega athygli í PRESSU-um- fjöllun í síðustu viku, enda maðurinn, eða rétt- ar sagt alheimsandinn sem talaði í gegnum hann, ótrúlega glöggur í lýsingum sínum á lands- málum og þjóðþekktum íslendingum. Eftir um- fjöllunina hefur síminn ekki stoppað hjá Dónald Jóhannessyni og Helgu Mattínu Björnsdóttur, sem sáu um hingað- komu hans. Fyrirspurn- um bókstaflega rignir yfir andann. Að sögn Dónalds hafa símhringingar verið 20—50 á dag og einka- samtöl Logans eru orðin um 50 talsins, en kapp- inn kom hingað til lands aðfaranótt þriðjudags í síðustu viku. Þegar hafa 75 einstaklingar pantað útskrift, sem felur í sér persónulýsingar og ráð- leggingar alheimsandans. stjórnarinnar, sem ætluðu í fyrstu ekki að taka þessu þegjandi. Þá benti jakinn Ola vini sínum á að bregða sér niðr’í sendiráðið í Garða- stræti. „Segðu bara Union bank of Iceland. Þeir hljóta að skilia það," hvíslaði jakinn. Og allt gekk eftir — eins og í lyga- sögu. Hvaða Blöndalur er nú þetta? Sumt er óum- breytanlegt í lifinu og eitt af því er slauf- an ó Haraldi Blöndal, uppboöshaldara og lögmanni. Haraldur er búinn að ganga með slaufu frá unglingsárunum og þau okkar sem ekki hafa séð hann í sundi geta sjálfsagt ekki ímyndað sér hann án hennar. Myndin hér að of- an er því ekki af Har- aldi Blöndal. Þó þetta sé andlitið á Haraldi erþettaekki hann, því slaufuna vantar. Hver þetta er veit enginn, en sam- kvæmt svipnum er þetta einhver Blön- dalurinn. Versta afsökun eiginmannsins „Ég var ekld að kyssa hana, ég var að hvisla upp i munninn á henni.## CHICO MARX AÐ PANTA BÍLA Það var vinsælt sport í gamla daga að sitja úti í glugga og „panta bíla" eða skrá niður bílnúmer. Starfsmenn höfuðstöðva íslandsbanka í Húsi versl- unarinnar eru komnir í svipaðan leik eftir sam- einingu bank- anna þriggja. Þeir hafa dund- að sér við það í frístundum að telja glæsijepp- ana á stæðinu fyrir utan. Aðal- málið er hve margir jeppar tilheyra bönk- unum sem standa að ís- landsbanka. Þrátt fyrir end- urteknar taln- ingar hefur fyrr um starfs- mönnum Verslunarbanka ekki tekist að rétta hlut sinna manna, því Iðnaðar- bankinn hefur ótvíræða forystu með hvern fagur- jeppann af öðrum. Starfs- menn frá gamla Alþýðu- bankanum mega sín hins vegar lítils í þessum leik, ekki síst þegarÁsmundurStef- ánsson, alþýðuforseti og bankaráðsmaður, rennir í hlaðið á jap- önsku tíkinni sinni.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.